Feykir - 18.02.2016, Qupperneq 7
07/2016 7
börnin. Þetta var ágætis starf þó
það gæfi manni ekki mikið
félagslega en það er krefjandi
og slítur manni út líkamlega.
Þannig að þegar mér fannst ég
vera orðin þreytt á því og farin
að hjakka í sama hjólfarinu
fannst mér tími til að fara að líta
í kringum mig“.
Selma ákvað því að breyta til
og árið 2007 keyptu þau
gistihúsið Miklagarð við Kirkju-
torg á Sauðárkróki, hús sem í
daglegu tali er kallað Rússland.
Selma sá alfarið um rekstur
þess. Árið 2009 kom Jón
þáverandi skólameistari FNV
að máli við þau og bauð þeim að
taka heimavist FNV á leigu til
rekstur sumarhótels og varð það
úr að þau hófu rekstur þess það
sumar. Árið 2012 keyptu þau
síðan Hótel Tindastól ásamt
húsinu að Lindargötu 1, sem
stendur fast við hótelið. Í fram-
haldi á þessum kaupum var
ákveðið að markaðssetja allan
þennan rekstur undir nafninu
Arctic Hotels og er það nú
skrásett vörumerki. Þá voru þau
komin með 220 gistirými til
útleigu á sumrin. Í kjölfarið
hætti Tómas fljótlega hjá FISK
Seafood og hafa þau bæði
starfað alfarið við hótelrekst-
urinn síðan. Selma bætir því
brosandi við að enn í dag sé fólk
að spyrja hvort þau séu „bara“ í
þessu.“
„Þetta kjaftaðist
svona til“
Við Arctic Hotels starfa mis-
margir starfsmenn eftir árstíð-
um og hafa starfsmenn verið
sex í vetur en voru 27 í fyrra-
sumar. Það er í mörg horn að
líta við hótelrekstur auk hinna
daglegu vakta við móttöku gesta,
þrif og því um líkt til að mynda
bókhald, bókanir, markaðssetn-
ing og margt fleira.“ Með góðu
starfsfólki við hótelreksturinn
fór hugurinn á flug og í kjölfar-
ið bættu þau við sig eignum
og rekstri Videosports. Þegar
blaðamaður innir þau eftir
hvernig það hafi komið til segja
þau einfaldlega að það hafi
„kjaftast svona til.“ Þau segjast
hafa átt í góðu samstarfi við
Stínu og Sigga Dodda gengum
tíðina, enda hafa hópar og ein-
staklingar sem koma á Arctic
Hotels iðulega keypt veitingar af
Ólafshúsi eða Kaffi Krók.
„Við höfum sagt það stund-
um í gegnum árin að það væru
mikil samlegðaráhrif af þessum
tveimur fyrirtækjum, hvort sem
að þau keyptu af okkur eða við
af þeim. Síðan kjaftaðist þetta
svona til í haust og gekk hratt
fyrir sig og um áramótin vorum
við tekin við,“ útskýra þau.
Aðspurð um framtíðarsýn fyrir
rekstur veitingahúsanna segjast
þau vilja komast vel inn í
reksturinn áður en ráðist verði í
einhverjar breytingar eða nýja
stefnumótun, þangað til verði
áhersla lögð á að treysta þann
góða rekstur sem þau tóku við.
Verkaskiptingin hjá þeim
hjónum er sú að Selma sér um
rekstur Arctic Hotels en Tómas
hefur umsjón með veitinga-
stöðunum. „Ég réði svo til mín
mann sem ég kalla mína hægri
hönd, Óla Grétar Óskarsson
sem er rekstrarstjóri veitinga-og
skemmtistaðanna. Hann hafði
unnið hjá okkur á hótelunum í
nokkur ár og einnig dálítið á
Ólafshúsi þannig að hann
þekkir okkur vel og hvernig við
hugsum og viljum hafa hlutina.
Við erum með góðan kjarna af
starfsfólki í báðum fyrirtækj-
unum sem kann vel til verka,“
segir Tómas. Núna eru um 24
stöðugildi í heildina á báðum
stöðum en í sumar reikna þau
með að það verði 50-60. Við
ráðningu á sumarstarfsfólki
segjast þau vinna að því að það
sé ýmist heimafólk eða fólk sem
hafi ættartengsl við svæðið. Í því
samhengi berst talið að því að
bæst hafi í hóp þeirra góðu
kokka sem starfa á Ólafshúsi.
Sauðkrækingurinn Stefán Ingi
Svansson er væntanlegur á
staðinn í sumar með fjölskyldu
sína. „Það er einkar ánægjulegt
að fá hann til liðs við okkur og
hann mun flytja hingað með
eiginkonu og þrjú börn,“ segir
Tómas.
Það er í mörg horn að líta í
þessum viðamikla rekstri . Fram
kemur í spjallinu að bygging-
arnar í rekstrinum séu allar
komnar til ára sinna. Elst er
Hótel Tindastóll, sem var
upprunalega byggt árið 1820 í
Grafarósi handan Skagafjarðar
en síðar flutt á Sauðárkrók 1884.
Þar hafa þau haldið áfram
endurbótum sem fyrri eigendur
höfðu gert. Viðamest er sú
breyting að gera innangengt á
milli Tindastóls og hússins við
hliðina, Lindargötu 1, og útbúa
þar eldhús. Er sú breyting eink-
um gjörbylting fyrir starfsfólkið
og möguleika á nýtingu hús-
næðisins. Þar með er aðstaða
komin til að útbúa minni veislur
í húsinu. Gistiheimilið hefur
einnig verið endurbætt smám
saman. „Það er alltaf verið að
endurbæta eitthvað og við
höfum lagt áherslu að halda
þessum gamla stíl hérna á
hótelinu,“ segja þau um leið og
blaðamaður virðir fyrir sér
notalegt umhverfi í Jarlstofu,
sem er á jarðhæð hótelsins, en
Selma á Jakobsveginu á Spáni. MYND: ÚR EIINKASAFNI
þar fær hinn gamli andblær
virkilega að njóta sín. Ýmsum
gömlum munum hefur verið
gaukað að þeim gegnum tíðina
og fá þeir að njóta sín í hlýlegri
stofunni.
Samstarf skagfirskra
ferðaþjónustufyrir-
tækja til fyrirmyndar
Selma og Tómas hafa bæði verið
virk í félagsstarfi ferðaþjónustu
aðila. Þau eiga m.a. aðild að
Félagi ferðaþjónustunnar í
Skagafirði og segja víða horft til
þess sem fyrirmyndar hvað
samstarfið innan þess sé gott.
Tómas situr jafnframt í stjórn
Ferðamálasamtaka Norður-
lands vestra og er formaður
stjórnar. Þá eiga þau aðild að
Markaðsstofu Norðurlands og
Samtökum aðila í ferðaþjónustu.
Selma er einnig meðlimur í
félaginu Á Sturlungaslóð og
Samtökum um sögutengda
ferðaþjónustu. Hún segist
áhugasöm um allt sögutengt og
fer í samlestur á Sturlungu í
Glaumbæ á veturna.
Þar með víkur talinu að
öðrum áhugamálum og þótt
ótrúlegt kunni að virðast finna
þessi athafnasömu hjón sér
tíma fyrir slíkt og eru til að
mynda bæði virkir félagar í
Oddfellow.
„Við grínuðust oft með það
að þegar ég var fimmtug að
langaði mig í heitan pott í
afmælisgjöf. Ég fékk heita
pottinn en það fylgdi bara heilt
hótel með,“ segir Selma og
brosir. Hún gefur sér samt tíma
fyrir áhugamál sín og er
fastagestur í Króksbíói, les
mikið, stundar hannyrðir og
segist þessa dagana vera að
dunda sér við að sauma
faldbúning. Í haust lét hún
nokkurra ára gamlan draum
rætast og gekk 300 kílómetra af
Jakobsveginum, þekktri píla-
grímaleið á Spáni. „Ég var búin
að ætla mér þetta lengi. Vinkona
mín hafði farið þetta áður og var
tilbúin að fara með mér á þeim
forsendum sem ég hafði. Við
gengum í tæpar þrjár vikur, 15-
25 kílómetra á dag og enduðum
svo á vikudvöl á sólarströnd.
Þetta var ógleymanlegt,“ segir
Selma.
Þau segjast ferðast mikið, en
oft í sitthvora áttina, enda hafi
þau ekki alltaf haft tök á því að
taka sér frí saman. „Við fórum
þó saman til Svíþjóðar. Bróðir
minn sótti mig á flugvöllinn en
Tommi var sóttur af veiðifél-
ögum og fór að veiða,“ segir
Selma og Tómas bætir því við að
þau hafi þó farið saman til
Hollands til að kynna fyrirtækið
fyrir ferðaskrifstofum og heim-
sækja son sinn sem þar býr.
Tómas segist vera „forfallinn
veiðisjúklingur.“ Hann hefur
m.a. farið á svartbjarnarveiðar í
Kanada og náði einum sem er
nú uppstoppaður heima, villi-
svínaveiðar í Póllandi og víðar.
Einnig stundar hann refa- og
hreindýraveiðar en segir stang-
veiðarnar á undanhaldi vegna
tímaskorts eftir að hann fór
alfarið að starfa við ferða-
þjónustu.
Blaðamaður rifjar upp verk-
efni sem Tómas kynnti fyrir
fáeinum árum, hugmynd að
skreiðarsetri á Sauðárkróki. „Sú
hugmynd er ennþá til. Jón
Mínus hannaði líkan að setrinu
og við eigum það heima. En það
þarf meira fjármagn og tíma til
að ráðast í þetta verkefni,“ segir
Tómas. Þau hjónin segja gríðar-
lega möguleika felast í ferða-
þjónustu á svæðinu. „Það má
bæta við þá afþreyingu sem
fyrir er og gera hana sýnilegri.
Þarna þarf einstaklingsfram-
takið að koma sterkt inn. Það
hafa mörg ný fyrirtæki sprottið
upp, sem hafa alla burði til að
vaxa. Það er margt að gerast og
það er líka gott að eiga eitthvað
eftir. Beint flug á Akureyri
skapar mikla möguleika en það
er mikilvægt að það verði allt
árið,“ segja þau.
Skoðun þeirra er sú að
svæðið geti borið fleiri ferða-
menn á sumrin en mikilvægt sé
að keyra af fullum krafti á
vetrarferðaþjónustuna. „Þjóð-
félagið þarf að líta á ferða-
þjónustu sem alvöru atvinnu-
grein. „Við erum bjartsýn á
uppgang í héraðinu á komandi
árum og teljum að samvinna í
samkeppni sé það sem kemur
okkur öllum til góða,“ segja þau
hjón að lokum.
Fjölskyldan saman um jólin. MYND: ÚR EIINKASAFNI
Tómas á villisvínaveiðum í Póllandi. MYND: ÚR EIINKASAFNI