Feykir - 18.02.2016, Blaðsíða 10
10 07/2016
Vel lukkað
þorrablót á
Skagaströnd
Fullt hús í Fellsborg
Góð skemmtun var í Félagsheimilinu Fellsborg laugardaginn
13. febrúar síðastliðinn þegar Þorrablót Kvenfélagsins Ein-
ingar fór þar fram. Fjölmennt var að vanda og vel heppnuð
skemmtiatriði sem voru í höndum leikhóps heimamanna.
Veitingar voru að hætti kvenfélagskvenna og að loknum skemmti-
atriðum léku Trukkarnir fyrir dansi. Meðfylgjandi myndir tók
James Kennedy. Feykir þakkar honum fyrir myndasendinguna.
/BÞ
06/2016 3
Viðurkenning fyrir góðan
árangur í forvörnum
og öryggismálum
Steinull hf. á Sauðárkróki
Fyrirtækið Steinull hf. á
Sauðárkróki fékk nýlega
viðurkenningu frá VÍS fyrir
góðan árangur í forvörnum og
öryggismálum. Einar
Einarsson framkvæmdastjóri
Steinullar veitti verðlaununum
viðtöku frá Sigrúnu Rögnu
Ólafsdóttur forstjóra VÍS.
Afhendingin fór fram á
forvarnaráðstefnu VÍS og
Vinnueftirlitsins á Grand
Hóteli í Reykjavík síðastliðin
fimmtudag.
„Steinull er gott dæmi um þar
sem vel hefur tekist til að efla
þátttöku og virkni starfsfólki í
öryggismálum vinnustaðarins,“
sagði Auður Björk Guðmunds-
dóttir framkvæmdastjóri fyrir-
tækjasviðs VÍS við verðlauna-
afhendinguna.
„Á þriðja hundrað atriða hafa
verið skráð með áhættugrein-
ingu og atvikaskráningu undan-
farin fimm ár. Lykill að
árangrinum er að tvinna saman
„Maður er víst orðinn miðaldra“
Ingi Jónasson hefur búið í
Svíþjóð að verða 30 ár en hann
sleit barnsskónum á Króknum.
Hann bjó lengst af á Öldu-
stígnum en einnig á Hóla-
veginum og í Háuhlíðinni. Ingi
er sonur Jónasar Hróbjarts-
sonar og Auðar Vilhelmsdóttur.
Nú býr hann rétt utan borgar-
innar Skövde í vestur Svíþjóð.
-Leið mín lá til Svíþjóðar í ágúst
1987. Anna Beta Sæmunds Her-
mannssonar plataði mig með sér í
það sem átti að vera tveggja mán-
aða haustvinna á Skáni en nú eru
að verða 30 ár. Ég vann í nokkur
ár á Skáni, kynntist eiginkonu
minni sem er sænsk og flutti mig
um set með henni og fór síðan í
háskóla.
Síðustu rúm tíu árin hef ég
unnið hjá hugbúnaðarfyrirtækinu
Asitis, sem framkvæmdastjóri.
Asitis er stofnað 2002 af öðrum
brottfluttum Króksara, Þórði
(Dodda) Erlingssyni. Hann er nú
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
InExchange sem hann stofnaði
2007. Það sem hefur verið sérstakt
í þessari útlandsveru er að leiðir
okkar Dodda Erlings lágu saman
hér ytra fyrir einum 26 árum fyrir
hreina tilviljun. Við frændur
vorum miklir mátar frá fornu fari
og höfum margt brasað saman
Akke og Ingi Vaff. MYND: ÚR EINKASAFNI
fyrr og síðar. Manni leiðist ekki á
meðan.
Ég er þeirrar gæfu aðnjótandi
að fáir dagar eru öðrum líkir. Það
er alltaf eitthvað nýtt að ske. Asitis
er fyrirtæki sem hefur verið í
stöðugum vexti og þróun frá
upphafi. Sem framkvæmdastjóri
tek ég virkan þátt í þróun á þeirri
þjónustu sem við bjóðum okkar
viðskiptavinum, sölu og markaðs-
setningu. Annaðhvort er vinnu-
dagurinn á skrifstofunni eða á
ferðalögum til viðskiptavinanna
sem eru dreifðir um Norður-
löndin.
Þá daga sem ég er ekki á
ferðalagi byrja ég á milli klukkan 7
og 8 á morgnanna. Klukkan 9:30
er sameiginlegt morgunkaffi hjá
starfsfólki Asitis og InExchange.
Við erum 35 hjá Asitis og starfsfólk
InExchange er nær 80. Af þessum
rúmlega 110 manna hópi erum
við 14 Íslendingar. Þetta ágæta
fólk er víðsvegar af á landinu
nema úr Húnaþingi. Það sem
mest er um vert er að við erum
fjórir Skagfirðingar. Fyrir utan
mig og Þórð eru þeir Gunnar
Búason og Pétur Örn Erlingsson
manna fremstir. Alveg einstakir
snillingar sem kunna skil á hvort
heldur sem er straumum og
( DAGUR Í LÍFI BROTTFLUTTRA ) berglind@feykir.is
Ingi Jónasson / frá Sauðárkróki / býr í Svíþjóð
Frá afhendingu viðurkenningarinnar sl. fimmtudag. Auður Björk Guðmundsdóttir
framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs VÍS, Einar Einarsson framkvæmdastjóri Steinullar
og Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS. MYND: VÍS
SJÁVARLÍFTÆKNISETUR EINBÚASTÍG 2 545 SKAGASTRÖND
Rannsóknamaður
BioPol ehf., Sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd
auglýsir stöðu rannsóknamanns lausa til um-
sóknar. Um er að ræða ráðningu til eins árs með
möguleika til framlengingar. Auglýst er vegna
fæðingarorlofs.
Markmið verkefnisins
Umsækjanda er ætlað að vinna að almennum störfum á
rannsóknastofu í samvinnu við sérfræðinga félagsins.
Starfsstöð umsækjanda verður á Skagaströnd.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa B.S. gráðu í líftækni, líffræði,
lífeindafræði, örverufræði, lífefnafræði, matvælafræði
eða skildum greinum náttúruvísinda. Viðkomandi
þarf að geta starfað sjálfstætt en jafnframt hafa góða
hæfileika til samstarfs með öðrum. Öguð og skipuleg
vinnubrögð eru jafnframt skilyrði. Reynsla af sambæri-
legum störfum mikill kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 29. febrúar nk.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um menntun,
starfsreynslu og meðmælendur berist BioPol ehf.,
Einbúastíg 2, 545 Skagaströnd eða á eftirfarandi
netfang: halldor@biopol.is
Nánari upplýsingar veitir:
Halldór G. Ólafsson, BioPol ehf. í síma 896-7977.
Hafðu samband!
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á feykir@feykir.is