Feykir - 18.02.2016, Page 11
07/2016 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Þessi gáta hefur birst áður í Feyki
Verðlaun Sá sem ekki leysir þrautina þarf að muna
að æfingin skapar meistarann.
Spakmæli vikunnar
Að baki öllum stórafrekum er hreykin eiginkona
og undrandi tengdamóðir.
- Höf. óþekktur
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Krossgáta
og dreift í botninn á formi.
Rjóminn er þeyttur og skyrið svo
hrært út í þeytta rjómann.
Rjómaskyrinu er dreift yfir
hafrakexið. Gott getur verið að
toppa kökuna með sultu að eigin
vali, en það er ekki nauðsynlegt.
Geymist í kæli í nokkrar klst. áður
en kakan er borin fram.
Verði ykkur að góðu!
Guðrún Eik og Óskar Már skora á
Álfheiði Haraldsdóttur og Böðvar
Friðriksson að taka við keflinu.
Skyrtertan tilvalin fyrir
tímanauma bændur
AÐALRÉTTUR
Tex Mex hakkréttur
500 g nautahakk
1 bolli hrísgrjón
½ laukur
½ paprika
sveppir
2 gulrætur
blómkál
spergilkál
blaðlaukur
pítsaostur
Sósa:
Mexíkóostur
1/3 askja rjómaostur
½ lítil dós salsasósa
rjómi
Aðferð: Hrísgrjónin eru soðin og
lögð í botninn á eldföstu móti.
Hakkið er steikt á pönnu og
kryddað eftir smekk (gott að nota
t.d. taco krydd) og svo dreift yfir
hrísgrjónin. Grænmetið er skorið
niður, steikt á pönnu og dreift yfir
hakkið. Mexíkóosturinn er rifinn
niður og bræddur í rjómanum á
pönnunni. Rjómaostinum og
salsasósunni er bætt við og sósan
látin malla þangað til mexíkó-
osturinn er allur bráðinn. Sósunni
er þá hellt yfir eldfasta mótið og
pitsaostinum dreift yfir. Best er að
stilla ofninn á grill og baka réttinn
í nokkrar mínútur, eða þar til
osturinn er gullinbrúnn.
EFTIRRÉTTUR
Einfalda skyrtertan
hans Óskars
½ l rjómi
1 dós skyr að eigin vali
Hafrakex
Aðferð: Hafrakexið er mulið niður
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
„Matgæðingar vikunnar eru
bændurnir Guðrún Eik
Skúladóttir og Óskar Már
Jónsson á Tannstaðabakka í Hrútafirði, Tex Mex hakkrétt í
aðalrétt og skyrköku í eftirrétt. „Skyrtertan er tilvalin fyrir
tímanauma bændur að útbúa og hakkrétturinn slær alltaf í
gegn,“ segir Guðrún.
Guðrún Eik og Óskar Már matreiða
Guðrún Eik og Óskar Már. MYND: ÚR EINKASAFNI
Feykir spyr...
Tekur þú
þátt í starfi
Skagfirðinga-
félagsins?
Spurt á Facebook
UMSJÓN kristin@feykir.is
„Nei, því miður, en fylgist vel
með því frábæra starfi sem er
þar í gangi. Húrra fyrir þeim!“
Guðrún Jóna Valgeirsdóttir
„Já, með ánægju.“
Sigríður Sigurlína Pálsdóttir
„Já, hef mætt á tvö síðustu
þorrablót og sé um
vefsíðu félagsins..“
Björn Jóhann Björnsson
„Hef ekki gert það hingað til
en best að bæta úr því.“
Helga Stefanía Magnúsdóttir
„Hef ekki gert það
enn sem komið er.“
Steinar I Sörensson
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... lengsti tími sem liðið hefur á milli fæðingu tvíbura er 87 dagar?
... í Susami-flóa við Japan er póstkassi á 10 metra dýpi?
... knapinn Frank Hayes vann Belmont-kappreiðarnar í New York árið
1923 dauður? Hann fékk hjartaáfall í miðri keppni en Hayes hélst í
hnakknum þangað til hann var kominn í mark.
... Buzz Aldrin var fyrsti maðurinn til að pissa á tunglinu?
Hahaha...
– Fer maðurinn minn ekki að losna úr steininum bráðum? spurði konan
yfirfangavörðinn.
– Hvað gerði hann af sér?
– Hann braust inn í kjörbúð og stal fimmtíu pylsupökkum.
– Það er nú ekki stórglæpur. Ertu farinn að sakna hans?
– Nei, nei, en pylsurnar eru að verða búnar.