Feykir - 04.05.2016, Page 1
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hvað er
að frétta?
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
BLS. 6-8
BLS. 10
Einar Kolbeins í Bólstaðarhlíð
svarar Rabb-a-babbi
Gæti hugsað sér að
kíkja í heimsókn til
Leonardo da Vinci
BLS. 8
Skagfirðingurinn Bylgja
Finnsdóttir glímir við þrjá
sjálfsofnæmissjúkdóma
„Einhver tilgangur
með því að ég fékk
þetta verkefni“
Brúðuverkið Engi sýnt
á Hvammstanga
Skemmtilegast
að útbúa
brúðurnar
17
TBL
4. maí 2016
36. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Áform um hótelbyggingu
á Hólanessvæðinu
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
Skagaströnd
35 ára
Félagið Hólanes ehf. hefur uppi áform
um byggingu Hótels við Fjörubraut 6 á
Skagaströnd. Að sögn Adolfs H.
Berndsen, stjórnarformanns í félaginu,
er málið í farvegi og m.a. verið að
leggja lokahönd á viðskiptaáætlun.
Adolf kynnti áform félagsins í sveitar-
stjórnarfundi á Skagaströnd í byrjun
marsmánaðar. Þar voru kynnt frumdrög
að teikningu hótels sem teiknað er á lóð
Fjörubrautar 6 á Skagaströnd. Um er að
ræða lóð á svokölluðu Hólanessvæði,
þar sem nú stendur m.a. áhaldahús
sveitarfélagsins, við hliðina á Nes lista-
miðstöð.
„Við erum komnir með teikningar og
útlitsmyndir,“ sagði Adolf þegar blaða-
maður hafði samband við hann í síðustu
viku. „Lóðarumsókn er í farvegi og verið
er að leggja lokahönd á viðskiptaætlun.
Við erum einnig að leita að samstarfs-
aðilum,“ sagði hann. Í fyrsta áfanga er
gert ráð fyrir 40 herbergjum, eldhúsi,
matsal og fundaraðstöðu.
Verkefnið fékk 4,6 milljóna króna
styrk úr Vaxtarsamningi Norðurlands
vestra haustið 2014. Styrkurinn var
ætlaður til að koma að því að teikna og
hanna hótelið og gera viðskipta- og
rekstraráætlun. Samið var við Pro Ark
teiknistofu á Selfossi um hönnun og
teikningar.
Á áðurnefndum fundi sveitarstjórnar
urðu umræður um ferðamál og mögu-
leika á byggingu og rekstri hótels.
Samþykkt var að vísa því til atvinnu-
málanefndar að halda almennan fund
um ferðamál og atvinnumál og verður
hann haldinn fljótlega, að sögn Adolfs.
/KSE
Rauða húsið efst á myndinni er fyrirhuguð hótelbygging á svokölluðu Hólanessvæði á Skagaströnd. MYND: PRO ARK TEIKNISTOFA