Feykir - 04.05.2016, Qupperneq 4
4 17/2016
Vikuna 24.-30. apríl var rúmum 25 tonnum landað á Skagaströnd, rúmum 12 tonnum á
Hofsósi, rúmum 374 tonnum á Sauðárkróki og tæpum 1400 kílóum á Hvammstanga. Eins og
sjá má á meðfylgjandi yfirliti er grásleppuvertíðin enn í fullum gangi. /KSE
Aflatölur 24. -30. apríl á Norðurlandi vestra
Rúm 375 tonn á Sauðárkróki
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 1.387
Alls á Hvammstanga 1.387
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Grásleppunet 2.101
Bogga í Vík Grásleppunet 647
Dagrún HU 121 Grásleppunet 2.529
Dísa HU Grásleppunet 759
Fengsæll Grásleppunet 3.687
Geiri HU 69 Handfæri 968
Hafdís HU 85 Grásleppunet 1.998
Hafrún HU 12 Dragnót 2.896
Hjördís HU 16 Grásleppunet 3.573
Húni HU 62 Þorskanet 1.625
Smári HU 7 Handfæri 1.830
Stefanía HU 136 Handfæri 964
Sæunn HU 30 Handfæri 1.242
Alls á Skagaströnd 25.020
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 25.479
Fannar SK 11 Grásleppunet 2.387
Gammur SK 12 Grásleppunet 2.154
Hafborg SK 54 Grásleppunet 2.659
Hafey SK 10 Grásleppunet 4.007
Klakkur SK 5 Botnvarpa 125.439
Kristín SK 77 Handfæri 595
Málmey SK 1 Botnvarpa 191.894
Már SK 30 Grásleppunet 3.216
Nökkvi ÞH 27 Rækjuvarpa 11.922
Óskar SK 13 Grásleppunet 3.206
Vinur SK 22 Grásleppunet 1.433
Alls á Sauðárkróki 374.391
HOFSÓS
Skáley SK 32 Grásleppunet 3.207
Von SK 21 Grásleppunet 1.883
Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 2.149
Þytur SK 18 Grásleppunet 4.970
Alls á Hofsósi 12.209
Frá Yfirkjörstjórn
Norðvesturkjördæmis
Til væntanlegra frambjóðenda í
forsetakosningum 25. júní 2016
Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis kemur
saman til fundar að Hótel Borgarnesi, Egilsgötu
16, Borgarnesi, fimmtudaginn 19. maí nk., kl.
13:00, til þess að gefa vottorð um meðmælendur
forsetaefna samkvæmt 4. gr. laga nr. 36 frá 1945,
um framboð og kjör forseta Íslands.
Þess er óskað að frambjóðendur skili meðmæl-
endalistum með nöfnum meðmælenda úr Norð-
vesturkjördæmi til yfirkjörstjórnar í dómssal
Héraðsdóms Vesturlands, Bjarnarbraut 8,
Borgarnesi, föstudaginn 13. maí nk. milli kl. 10 og
12, til þess að unnt verði að undirbúa vottorðsgjöf
yfirkjörstjórnar.
Vakin er sérstök athygli á að afhenda skal
yfirkjörstjórn frumrit meðmælendalista. Yfirkjör-
stjórn Norðvesturkjördæmis gefur eingöngu út
vottorð um meðmælendur úr eigin kjördæmi.
Til að flýta fyrir yfirferð og vinnslu er mælst
til þess að meðmælendalistar verði skráðir
með rafrænum hætti á þar til gerðu vefsvæði
á www.Ísland.is áður en þeim er skilað til
yfirkjörstjórnar.
2. maí 2016
Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis
Kristján G. Jóhannsson
Guðný Ársælsdóttir
Ríkarður Másson
Guðrún Sighvatsdóttir
Björg Gunnarsdóttir
Stærri og bjartari búð
Framkvæmdir við Vínbúðina á Sauðárkróki
Framkvæmdir standa nú yfir
við Vínbúðina á Sauðárkróki
þar sem verið er að færa
innganginn sunnan við húsið,
nær bílastæðinu sem er
staðsett vestan við búðina.
Búðin verður um leið stækkuð
og gerð bjartari.
„Verið er að taka allt í gegn
bæði lager og búð,“ sagði Jóna
Grétarsdóttir verslunarstjóri
Vínbúðarinnar, í samtali við
Feyki.
Ekki er reiknað með að loka
þurfi versluninni í lengri tíma
meðan á framkvæmdum
stendur en stöku daga gæti
þurft að loka. Þegar Jóna er
spurð hvort breyting verði á
úrvali verslunarinnar svarar
hún að það eigi eftir að koma í
ljós en hún reikni ekki með því.
„Það kemur ekki kælir, því
miður, það eru svo margir sem
spyrja að því,“ segir hún og
brosir. „Við erum ekki nógu stór
fyrir það.“
Áætlað er að framkvæmdir
taki um mánuð og er stefnan á
að opna um 9. júní. /BÞ
Jóna María og Guðrún Brynja í Vínbúðinni. MYND: BÞ
Blómleg starfsemi
á fyrsta starfsárinu
Kvæðamannafélagið Gná í Skagafirði eins árs
Kvæðamannafélagið Gná í
Skagafirði fagnar eins árs
afmæli sínu um þessar
mundir. Félagið telur átján
félaga og fundað er einu
sinni í mánuði. Nýlega fóru
nokkrir félagsmenn á
landsmót Stemmu, sem eru
landssamtök kvæðamanna á
Íslandi, og var mótið haldið á
Egilsstöðum að þessu sinni.
Starfsemi félagsins hefur
verið blómleg þetta fyrsta
starfsár, að sögn Hilmu Eiðs-
dóttur Bakken. „Við höfum náð
að halda fundi mánaðarlega yfir
veturinn eins og flest önnur
kvæðamannafélög gera. Við
fengum Gefjunni, kvæða-
mannafélagið í Eyjafirði í
heimsókn í febrúar. Þau komu
með dagskrá sem þau kölluðu
Að kveða konur og var sett
saman í tilefni af 100 ára kosn-
ingaafmæli kvenna. Aldurs-
forsetinn, Ingibjörg á Gnúpu-
felli, endaði prógrammið á því
að kveða eftir sjálfa sig.“ Þá hélt
móðir Hilmu, dr. Ragnheiður
Ólafsdóttir, sem ritaði doktors-
ritgerð um íslenska kvæða-
lagahefð, námskeið fyrir félagið.
„Við erum nýkomin af lands-
móti Stemmu sem var haldið á
Egilsstöðum, í gamla góða
gistihúsinu sem var byggt sem
slíkt árið 1903. Við mættum
þrjú frá Gná og það er alveg
messufært,“ segir Hilma. Á
dagskrá landsmótsins voru
kvæðatónleikar, námskeið í
bragfræði rímna, rímnalögum
og tvísöng. Mótið endaði svo
með langri kvöldvöku og
aðalfundi Stemmu. Sóttu hátt í
70 gestir á mótið og voru
yngstu kvæðamennirnir 7 og 9
ára.
Nú eru starfandi átta
kvæðamannafélög víðs vegar
um landið. Elst þeirra er
Kvæðamannafélagið Iðunn í
Reykjavík. Hilma segir að
biblía kvæðamanna séu
Silfurplötur Iðunnar sem hafa
að geyma 200 stemmur. Til
stendur að gefa út segul-
bandasafn Iðunnar sem hefur
að geyma 160 stemmur til
viðbótar. Þá segir Hilma að
vefsíðurnar rimur.is og ismus.
is geymi heilmikinn fróðleik
fyrir kvæðafólk.
Félagsmenn Gnáar hittast
reglulega í Verinu á Sauðár-
króki. Fundarstörfin felast
einkum í að hlusta, kveða og
læra nýjar rímur. „Stundum
hefur verið fámennt en
góðmennt og stundum fá-
mennara en annars, við Úlfar
vorum til dæmis tvö ein á
jólafundinum í desember,“
segir Hilma og hlær. Aðal-
fundur félagsins verður hald-
inn næstkomandi þriðjudag,
10. maí klukkan 20 í Áskaffi, og
vonast stjórnin eftir að nýir
meðlimir bætist í hópinn. „Það
eru allir hjartanlega velkomn-
ir,“ segir Hilma að lokum. /KSE
Þrír meðlimir Kvæðamannafélagsins Gnáar. Frá vinstri: Björg Baldursdóttir ritari,
Hilma Eiðsdóttir Bakken formaður og Úlfar Sveinsson. MYND: KSE