Feykir - 04.05.2016, Qupperneq 10
10 17/2016
Skemmtilegast að
útbúa brúðurnar
Handbendi sýndi
brúðuleikverkið Engi á
sunnudag og mánudag í
Félagsheimilinu á
Hvammstanga og markaði það
upphaf sýningarferðar á
leikverkinu, sem er á leiðinni til
Bretlands næstu sex vikurnar.
Blaðamaður Feykis ræddi við
Gretu Clough, konuna á bakvið
Handbendi og skapara
brúðuverksins. Að jafnaði segir
hún taka um tvö ár að þróa og
skapa leikverk. Skemmtilegast
þykir henni að útbúa
brúðurnar en einnig
æfingarnar með hinum
leikurunum.
Áður en Greta flutti á Hvamms-
tanga hafði hún rekið brúðu-
leikhúsið Old Saw frá árinu 2012.
Hún segir Handbendi eins konar
framlengingu af því, en Old Saw
er farandleikhús sem gerir út á
fjölskyldu- og brúðuleikverk.
Greta er fædd og uppalin í
Vermont í Bandaríkjunum þar
sem rík hefð er fyrir brúðu-
leikhúsum, eins og kom fram í
viðtali við hana og Sigurð Líndal
Þórisson eiginmann hennar í
jólablaði Feykis. Hún lagði stund á
leiklistarnám í London þar sem
hún bjó og starfaði innan
leikhúsgeirans í tólf ár. Starfaði
hún m.a. hjá leikhúsinu Little
Angel Theater, en þar segir hún
hugmyndina að Engi hafa
kviknað. „Þegar við fluttum á
Hvammstanga í október síðast-
liðinn flutti ég fyrirtækið með
mér. En nýtt land og nýtt tungu-
mál þýðir annað nafn, og jafn-
framt ný tækifæri til þess að þróa
fyrirtækið í nýjar áttir,“ segir
Greta.
Greta sér alfarið um rekstur
fyrirtækisins, sér um listræna
stjórnun þess, skrifar sögurnar,
hannar leikmyndina og brúð-
urnar. Sömuleiðis eru markaðs-
mál, fjáröflun og bókun sýn-
ingarferða á hennar könnu. Hún
leikstýrir einnig oft á tíðum eða er
þátttakandi í sýningunni. „Þetta er
mikil vinna og ég stefni að því að
ráða starfmann þegar fram líða
stundir, sem getur annast mark-
Brúðuverkið Engi sýnt á Hvammstanga
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
aðs- og sýningarbókunarþátt
fyrirtækisins. Þangað til sinni ég
mörgum störfum,“ segir hún og
brosir.
Skemmtilegasta hluta starfsins
segir Greta vera að útbúa
brúðurnar en hún hefur komið
sér upp vinnustofu á Hvamms-
Frá sýningunni Engi á Hvammstanga í síðustu viku. MYNDIR: ÚR EINKASAFNI
tanga. Einnig að æfa sýningarnar
með öðrum brúðuleikurum. „Í
hverju verki eru vanalega einn til
þrír faglærðir brúðuleikarar og
leikarar. Það er vegna þess að
flestar brúðurnar mína krefjast
þess að fleiri en einn stýri þeim. Ég
hef mest gaman að brúðuleik á
borði og beinni stýringu brúð-
anna, þar sem brúðuleikarinn er í
beinni snertingu við brúðuna en
ekki aðskilinn með strengjum eða
priki. Þannig að brúðuleikararnir
mínir eru nánast alltaf sýnilegir á
sviðinu.“
Sex vikna sýningarferð
í sjö borgum
Þann 26. apríl síðastliðinn bauð
Handbendi til kynningarfundar í
Selasetrinu á Hvammstanga þar
sem markmið og framtíðarsýn
fyrirtækisins voru til umræðu. Þá
fengu gestir einnig stutta kynn-
ingu á brúðunum sem var stýrt af
þremur brúðuleikurum frá
Bretlandi, sem eru hér til þess að
vinna við Engi. Vel var mætt á
fundinn og fullt hús í Selasetrinu.
„Allir fengu tækifæri til þess að
leika með brúðurnar eftir
sýninguna og skemmtu sér allir
konunglega,“ segir Greta glöð í
bragði.
Greta segir sýninguna Engi
standa sérlega nærri hjarta hennar.
Hún byrjaði að þróa sýninguna
fyrir tveimur árum, sem er u.þ.b.
sá tími sem tekur að skapa
frumsamið leikverk. „Þegar ég
vinn að verki er ég alltaf með
a.m.k. tvö aðskilin rannsóknar- og
þróunarstig þar sem ég kanna
sjónrænan söguþráð sýningar-
innar og leik mér með ýmis sögu
útspil. Ég sýni verkið líka alltaf
fyrir framan áhorfendur snemma
í vinnuferlinu, til þess að fylgjast
með viðbrögðum þeirra,“ segir
Greta um hvernig sýningar hennar
verða til.
Engi var sýnt í London í fyrra
og fékk mikið lof gagnrýnenda en
sýninguna sáu um 2000 manns.
„Við erum að fara aftur af stað
með sýninguna og verður hún
sýnd í sjö borgum fyrir allt að 10
þúsund manns, á sex vikum. Við
byrjum sýningarferðina hér á
Hvammstanga en eftir Bretlands
ferðina munum við skoða nánar
hvort við ferðumst meira með
sýninguna hér á Íslandi eða hvort
við förum jafnvel með hana á
alþjóðlegar brúðuleikhátíðir víða
um heim. Við höfum fengið
fyrirspurnir frá Hong Kong og
Macau, þannig að við sjáum til
hvað verður næst.“
Loks segir Greta að sér finnist
einstaklega ánægjulegt, þar sem
fyrirtækið er staðsett á
Hvammstanga, að geta frumflutt
sýningarnar þar í bænum. „Það er
dásamlegt að fá tækifæri til þess að
til þess að leyfa samfélaginu að
njóta vinnu sinnar, auk þess að
skapa fleiri tækifæri fyrir fólk til
þess að koma saman og njóta
fjölbreyttra menningarviðburða.“