Feykir - 04.05.2016, Síða 11
17/2016 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina getur farið og mokað
snjóinn af bílnum sínum.... já, það snjóar ennþá.
Spakmæli vikunnar
Slæmt viðhorf er eins og sprungið dekk; þú kemst
ekkert fyrr en þú skiptir um það. – Zig Ziglar
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Krossgáta
3. Stillið á hnoðunarkerfið og
hnoðið deigið.
4. Takið úr vélinni, hnoðið, setjið á
plötu með smjörpappír, og látið
hefast í 30 mínútur
5. Bakað við 180° næst neðst í
ofninum í 40 mínútur. Eða bara
látið vélina klára þetta.
6. Gott að vefja brauðið inn í rakt
viskustykki eftir að það er komið
úr ofninum.
RÉTTUR 3
Eftirréttur með
hindberjasósu
100 ml hindberjasósa
300 ml hrein jógúrt
2 msk hlynsíróp
4 msk múslí eða granóla
Aðferð:
1. Jógúrt og hlynsíróp hrært saman
2. Setjið hindberjasósuna í botninn
á glasinu
3. Hrærið jógúrt og hlynsíróp
saman, og setjið yfir hindberja-
sósuna.
4. Múslí stráð yfir.
Hindberjasósan:
100 gr frosin hindber
1 msk hreint hlynsíróp
1 dropi stevía eða 1 tsk hlynsíróp
½ tsk vanilludropar
¼ tsk sítrónusafi
Aðferð: Uppskrift upprunalega
fengin úr bókinni Café Sigrún eftir
Sigrúnu Þorsteinsdóttir. Setjið allt
hráefnið í lítinn pott og hitið við
vægan hita í 7 – 8 mínútur. Berin
kramin. Sósan geymist í krukku í
kæli í nokkrar vikur. Æðisleg ofan
á ís.
Verði ykkur að góðu!
Salat, þriggja korna
brauð og eftirréttur
með hindberjasósu
RÉTTUR 1
Rækju, avókadó og
mangó salat
fyrir 3-4 manns.
Uppskrift upprunalega fengin
úr bókinni Café Sigrún eftir
Sigrúnu Þorsteinsdóttir.
250 g rækjur
200 ml hrein jógúrt
2-3 msk sætt sinnep
1 msk límonusafi
2 msk hunang (eða 4 dropar
stevía)
1-2 avókadó
1 mangó
Ristaðar brauðsneiðar
Aðferð:
1. Fyrir sósuna: Blandið saman
jógúrt, sætu sinnepi, límónusafa, og
hunangi.
2. Skerið avókadóið og mangóið í
teninga
3. Setjið rækjur, avókadó, og mangó
í skál og veltið varlega.
4. Berið salatið fram með sósunni
og ristabrauði.
RÉTTUR 2
4 korna brauð
í brauðvél
(eða á hefðbundinn hátt)
3 dl volgt vatn
2 tsk salt
1 msk olía
1 msk hunang
1 dl sólblómafræ
1 dl sesamfræ
1 dl möluð hörfræ
1 dl graskersfræ
1/2 dl kókoshveiti
3 dl Kornax hveiti (í bláu
pokunum)
3 dl gróft spelti
1 msk þurrger
Aðferð: 1. Setjið vatn, salt, olíu, og
hunang í hnoðunarskálina.
2. Bætið korninu og hveitinu út í.
Þurrgerið síðast.
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
Ásta Sveinsdóttir á Fosshóli í
Húnaþingi vestra er
matgæðingur vikunnar. Hún
bíður upp á rækju, avókadó og mangó salat, fjögurra korna
brauð sem má baka hvort sem er í brauðvél eða á hefðbundinn
hátt og eftirrétt með hindberjasósu. Ásta skorar á Marie Ann
Hauksdóttur frá Haugi að koma með nokkrar uppskriftir.
Ásta Sveinsdóttir á Fosshóli
Hahaha...
Tvær mannætur sátu á bekk og sáu riddara. Þá sagði önnur þeirra:
- Neeeei! Ekki dósamatur aftur!
Feykir spyr...
Á að fara
til útlanda/
sólarlanda í
sumar?
Spurt á Facebook
UMSJÓN siggag@nyprent.is
„Já, það er stefnan, stefni líka
á nokkra daga í sumar og sól í
Skagafirði í sumar.“
Ágúst Ingi Ágústsson
„Já, við fjölskyldan förum á
ættarmót til Stokkhólms og kíkjum
aðeins yfir til Finnlands. Sól og
blíða bara , er þaggi?“
Auður Björk Birgisdóttir
„Nei, ég fer ekki til útlanda í sumar.“
Gísli Sigurðsson
„Planið mitt er að fara út í sumar,
kannski í sólina eða heimsækja
bróðir minn sem býr í Kanada. Kem
svo heim og held áfram að tana.“
Gyða Valdís Traustadóttir
„Nei, það verður ekki farið til
sólarlanda í sumar. Við fórum í
fyrra til Mallorca en látum okkur
nægja að ferðast innanlands í ár.
Birna Eiríksdóttir
Vissurðu að...
... Prince var 157 sentimetra hár?
... Prince þótti engu að síður efnilegur körfuboltamaður?
... uppáhaldsmáltíðin hans þegar hann var að gera Purple Rain var
spaghettí og appelsínudjús?
... Prince samdi og gaf út yfir 600 lög á ferlinum?
Ásta Sveinsdóttir.
MYND: ÚR EINKASAFNI