Feykir - 02.12.2010, Qupperneq 2
Feykir
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
gudny@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Páll Friðriksson
palli@feykir.is & 861 9842
Óli Arnar Brynjarsson
oli@feykir.is
Lausapenni:
Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur:
Karl Jónsson
Áskriftarverð:
284 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
2 Feykir 45/2010
Leiðari
Að nota sinn lýðræðislega rétt
Persónulega var ég ekki ánægð með að kjósa til stjórnlagaþings
á þessum tímapunkti. Ekki það að ég væri á móti
stjórnlagaþinginu sem slíku heldur tel ég að við hefðum átt
að bíða með það þangað til að við höfum efni á viðburði sem
þessum. Engu að síður dröslaðist ég á kjörstað og kaus 10
frambjóðendur sem ég hafði valið eftir þeim aðferðum sem ég
taldi réttar. Það er skemmst frá því að segja að í þessu lottói
var ég ekki með neinn réttan og við íbúar á Norðurlandi vestra
sitjum uppi með þá staðreynd að eiga ekki fulltrúa á þingi sem
mun ráða miklu um hvernig stjórnarskrá lýðveldis okkar mun
líta út í nánustu framtíð. Ekki þýðir fyrir okkur að standa upp
núna og krefjast þess að eiga fulltrúa því það er einfaldlega of
seint. Ekki nema rúm 30% okkar tókum þátt í kosningunni og
mjög fá okkar gáfu kost á sér til setu á þinginu. Við notuðum
ekki okkar lýðræðislega rétt og því fór sem fór. Skildum við
aldrei ætla að læra að til þess að vera með í umræðunni og láta
taka mark á okkur þurfum við að taka þátt? Ætlum við alla tíð
að vera kaffistofutuðarar sem engin áhrif hafa?
Kæru þið, lýðræði er því miður ekki alls staðar í heiminum
sjálfsagður hlutur og lítið þýðir að kvarta yfir skorti á lýðræði,
en nenna síðan ekki að taka þátt í því.
Sitjum aldrei heima á kjördag aftur – Í það minnsta ekki þeir
sem eru óánægðir með okkar hlut á stjórnlagaþingi Íslands.
Guðný Jóhannesdóttir
ritstjóri
Blönduósbúar munu
næstkomandi sunnudag,
eftir að hafa gengið til
kirkju, tendra ljósin á
jólatré bæjarins sem að
venju er gjöf frá
vinabænum Moss í
Noregi.
Ljósin verða tendruð
klukkan 17:00 en við
athöfnina verða sungin
jólalög, auk þess hefur Feykir
heimildir fyrir því að
einhverjir jólasveinar sem
komu snemma niður úr
fjöllum muni láta sjá sig.
Markaður verður haldinn
í Húnaveri laugardaginn
4. desember frá kl.
13-18. Handverk,
hestavörur, brauð, kökur,
snyrtivörur og margt
fleira, bæði notað og
nýtt. Spákona verður á
staðnum.
Einnig verður kaffi og
meðlæti selt á góðu verði.
Athugið að ekki taka allir
söluaðilar greiðslukort.
Kvenfélag Bólstaðarhlíðar-
hrepps stendur fyrir mark-
aðnum.
Austur-Hún
Markaður
og spákona
í Húnaveri
Blönduós
Kveikt á
jólatrénu
um helgina
Hestar
Kvikmyndin Fákar og
fólk komin á DVD
Út er komin á DVD
kvikmyndin Fákar og fólk.
Myndin var frumsýnd í
Félagsheimilinu á Blönduósi
í sumar en hún var tekin
haustið 2008. Sýnir hún
hrossasmölun á Laxárdal og
stóðréttir í Skrapatungurétt
og fjallar um það ævintýri
sem þessi viðburður er.
Í myndinni koma fram
margir húnvetnskir áhugamenn
um hestamennsku og ferðamál
ásamt fjölda ferðamanna sem
voru þátttakendur í ævintýrinu
þetta haustið. Má ætla að á
þriðja hundrað manns hafi
verið á hestbaki þennan dag.
Þarna má sjá stóðhrossin koma
úr sumarhögunum á Laxár-
dalnum frjálsleg í fasi og
náttúran skartar sínu fegursta í
haustlitunum.
DVD diskur myndarinnar
Fákar og fólk er tilvalin jólagjöf
handa hestamönnum og þeim
sem unna íslenskri náttúru.
Myndin kostar 3.900 kr. og
er hún til sölu hjá Valgarði
Hilmarssyni á Húnabraut 32
Sími 893-2059. Kvikmyndun og
tæknivinna Örn Ingi. Önnur
myndataka Jón Ingi Einarsson
og Alfreð Möller. Tónlistin í
myndinni er eftir Húnvetn-
ingana Benedikt Blöndal
Lárusson, Hauk Ásgeirsson og
Skarphéðinn Einarsson.
Guðmundur Steingríms-
son, þingmaður Fram-
sóknarflokks, hefur óskað
eftir fundi í samgöngu-
nefnd Alþingis til þess að
ræða um flugmál á
landsbyggðinni vegna
áforma um að hætta að
styrkja áætlunarflug til
Sauðárkróks.
Samningur ríkisins við
flugfélagið Erni er varðar
flug til og frá Sauðárkróki
mun falla niður um áramót
og samkvæmt fjárlögum er
ekki gert ráð fyrir að endur-
nýja hann. Í dag er flogið
fimm sinnum í viku til og frá
Sauðárkróki og hefur sæta-
nýting í fluginu verið góð.
Áætlunarflug á Krók
Guðmundur
vill fund
Ný skólastefna Blönduósbæjar
Athugasemdir óskast
Unnin hafa verið drög að
skólastefnu Blönduósbæjar
og samþykkti bæjarstjórn
Blönduósbæjar að kynna
hana fyrir íbúum og kalla
eftir athugasemdum.
Skólastefna skal höfð að
leiðarljósi við gerð skólanáms-
skrár og vera stjórnendum
bæjarfélagsins leiðarvísir um
uppbyggingu skóla. Skólastefn-
an er jafnframt nauðsynleg
heimilunum til að fylgjast með
markmiðum og framkvæmd
skólastarfs.
Drögin voru unnin af
fræðslustjóra, skólastjóra og
aðstoðarskólastjóra Blöndu-
skóla, leikskólastjóra og aðstoð-
arleikskólastjóra Barnabæjar
ásamt formanni fræðslunefnd-
ar Blönduósbæjar.
Drögin að skólastefnunni
eru á heimasíðu Blönduósbæj-
ar www.blonduos.is og verða til
kynningar næstu 6 vikur.
Ábendingum er hægt að
koma til bæjarstjóra á netfangið
arnar@blonduos.is.
Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki
24,7% niðurskurður
á tveimur árum
Í stað þess að þurfa að
skera niður um tæp 30% á
næsta ári mun Heilbrigðis-
stofnunin á Sauðárkróki
þurfa að skera niður um
24,7% á næstu tveimur
árum sem er að sögn,
Hafsteins Sæmundssonar
forstöðumanns, mikið
kjaftshögg fyrir samfélagið í
Skagafirði.
Heildarágóði, ef svo má að
orði komast, kröftuglegra
mótmæla heimamanna, er því
leiðrétting upp á rétt tæp 6% og
ljóst að stofnunin mun áfram
vera í hópi þeirra sem mest
þurfa að skerða starfsemi sína.
-Hvert prósent í niðurskurði
þýðir í dag eitt stöðugildi því
við erum búin að skera niður
allt annað sem hægt er að skera.
Það var því þungt hljóðið í
starfsfólki á fundi sem haldinn
var með starfsmönnum hér í
gær, segir Hafsteinn.
Samkvæmt heimildum
Feykis má gera ráð fyrir að
draga þurfi verulega úr þjónustu
bæði hvað varðar endurhæfingu
og eins á sjúkrasviði heilbrigð-
isstofnunarinnar eigi reksturinn
að haldast innan ramma
fjárlaga næstu tveggja ára.
Flug til Sauðárkróks
Gæti lagst af um áramót
Hætti ríkið stuðningi við
áætlunarflug á Alexanders-
flugvöll er hætt við að það
leggist af.
Sveitarstjóri Skagafjarðar
hefur sent ráðherra samgöngu-
og sveitarstjórnarmála erindi
þar sem óskað er eftir áfram-
haldandi stuðningi ríkisins við
áætlunarflug til og frá Alexand-
ersflugvelli á Sauðárkróki en að
óbreyttu gæti flugið fallið niður
jafnvel frá og með áramótum.
-Sveitarstjórn er búinn að
vera í sambandi við Flugfélagið
Ernir og samgönguráðaneytið
um leiðir til lausna í þessu máli.
Fulltrúar sveitarfélagsins fóru á
fund í samgönguráðuneytinu
og kynntu afstöðu sveitar-
félagsins og var lögð þung
áhersla á að flugsamgöngur til
og frá Sauðárkróki yrðu
tryggðar.
Málið er nú í meðferð hjá
ráðuneytinu og svara að vænta
á næstu dögum í því. Það er
lykilatriði fyrir Skagfirðinga og
þær opinberu stofnanir sem
hér eru að flugsamgöngur
hingað verði tryggðar, segir
Stefán Vagn Stefánsson.
Frá fundi með starfsmönnum fyrr í haust.