Feykir - 02.12.2010, Síða 4
4 Feykir 45/2010
Feykir
Hafðu samband - Síminn er 455 7176
Er eitthvað
að frétta?
Er ruslatunnan þín
kyrfilega fest?
Vélsmiðja Alla á Blönduósi smíðar
ruslatunnufestingar sem henta fyrir svörtu
plasttunnurnar.
Festingin er úr ryðfríu stáli.
Myndir af festingunni má sjá
á heimasíðu Vélsmiðju Alla
www.velsmidjaalla.is
Festingin kostar 8.000 kr. m. vsk
Frekari upplýsingar í síma 452-4824
Starfsfólk Vélsmiðju Alla
V.A. ehf – Vandar til verka – Efstubraut 2 – 540 Blönduósi
Sími: 452-4824 – GSM: 892-2439 - www.velsmidjaalla.is
VÉLSMIÐJA ALLA
Hvammstangi
„Ef markmiðið er fiskvernd
verður að loka á öll veiðarfæri“
Ómar Karlsson,
útgerðarmaður á
dragnótabátnum Hörpu HU
4 á Hvammstanga, segir í
viðtali í nýjasta tölublaði
Fishing News International
að sér reynist erfitt að skilja
þær ástæður sem liggja að
baki þeim takmörkunum
sem settar hafi verið á
dragnótaveiðar. „Ef
markmiðið er fiskvernd
verður að loka
veiðisvæðunum fyrir öllum
tegundum veiðarfæra,“ segir
Ómar.
Greint er frá þessu á vef LÍÚ
sem segir að takmarkanir á
dragnótaveiðum í sjö fjörðum,
sem að taka gildi þann 1. janúar
nk., hafa veruleg áhrif á útgerð
Hörpu. Ómar hefur undanfarin
tvö ár sótt um helming afla síns
í Miðfirði, sem er einn þeirra sjö
fjarða sem takmarkanirnar ná
til. Hann segir í samtali við
blaðið að umtalsverð breyting
hafi orðið á fiskgengd á þessum
slóðum á undanförnum
áratugum. Ómar segir að
samhliða því að fiskurinn hafi
fært sig í verulegum mæli inn á
grunnslóð hafi
innfjarðarrækjustofninn látið
undan síga.
„Á árunum frá 1970 og fram til
1998 voru hér 25 rækjubátar að
veiðum með trolli og margir
veiddu einnig skel með þungum
plógum. Þá sagði enginn neitt.
Nú er hér einn dragnótabátur
og verið að loka á hann af því
einhver hefur ákveðið að það
þurfi að vernda fiskinn,“ segir
Ómar og bendir á að þrátt fyrir
dragnótabannið veiðislóðin sé
enn opin fyrir rækju- og
skelveiðibátum. Hann segir að
það yrði því fróðlegt að sjá
hvernig brugðist yrði við ef
rækjan gengi aftur inn á
grunnslóðina.
„Það er verið að loka þessum
miðum án nokkurs rökstuðnings
og án þess að nokkur vísindaleg
gögn liggi þar að baki,“ segir
Ómar m.a. í viðtalinu.
Systkinin á Dýrfinnustöðum á gæðingnum Gusti frá Hóli. Mynd: Eiðfaxi.is
Aðalfundur
Ferðafélags Skagfirðinga
fyrir árið 2009
verður haldinn föstudaginn
3. desember nk. kl. 20
Fundarstaður: Húsnæði Skagfirðingasveitar
að Borgarröst 1.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Allir velkomnir
Stjórnin
Leitað að bókum Sigurgeirs á Orrastöðum
Merkilegt bókasafn
fór á uppboð
Sigurgeir Björnsson er bjó á
Orrastöðum til ársins 1936
er hann lést aðeins 51 árs,
var mikill bókamaður, en
talið er að nokkru eftir
andlátið hafi þorri bókanna
verið seldur á nauðungar-
uppboði. Nú er leitað til
almennings og reynt að
safna saman sem flestum
bókum á einn stað.
Nokkur hluti safnsins hefur
varðveist í höndum erfingja
Sigurgeirs og hafa þær bækur
nú öðlast nýjan samastað heima
í héraði, þ.e. á Héraðsskjala-
safninu á Blönduósi. Þar er nú
sérlegur bókaskápur sem hýsir
þessar gagnmerku bækur
Sigurgeirs heitins. Enn er þó
nægilegt hillupláss fyrir fleiri rit,
og því er verið að grennslast
fyrir um hvort bækur merktar
með stimpli Sigurgeirs leynist á
heimilum þeirra er þetta lesa. Sé
svo þætti mikill akkur í því að
ná sem flestum ritum þessa
merka bónda á einn stað eða
alltént að fá vitneskju um tilvist
þeirra til skráningar.
-Vissulega lagði Sigurgeir
mikið í sölurnar til þess að
öðlast þekkingu á gangi
heimsmálanna, allt frá smæstu
eindum og upp í víddir
stjarnfræðinnar. Einnig er
áhugavert hvað hann tók þátt í
stofnun margra framfarafélaga í
sveit sinni og var auk þess virkur
í stjórnun þeirra og starfsemi,
segir í tilkynningu frá Sigurgeiri
Þorbjörnssyni sem biður þá
sem vilja leggja þessum málum
lið að hafa samband við hann í
síma 869 3642 eða hlin@
mmedia.is
Fljót
Gullna hliðið
verkefni dagsins
Nemendur Sólgarðaskóla í
Fljótum héldu hátíðlega dag
íslenskrar tungu líkt og
undanfarin ár.
Raunar varð að fresta deg-
inum um viku vegna leiðinda
færðar og veðráttu þar sem
nemendur komust ekki í skól-
ann dagana sem æfingar áttu að
standa yfir.
Að þessu sinni fluttu krakk-
arnir brot úr hinu sígilda verki
Davíðs Stefánssonar Gullna
hliðið. Allir nemendur skólans,
níu talsins, tóku þátt í upp-
færslunni að viðstöddum að-
standendum og nokkrum
gestum. ÖÞ. Kerlingin og Jón bóndi heima í koti sínu.