Feykir - 02.12.2010, Blaðsíða 5
45/2010 Feykir 5
Uppskeruhátíð húnvetnskra bænda og hestamanna
Ólafur knapi ársins
Uppskeruhátíð húnvetnskra
bænda og hestamanna var
haldin á laugardaginn og
tókst í alla staði vel, að því
er fram kemur á heimasíðu
Hestamannafélagsins
Neista.
Eins og fyrri ár voru veitt
verðlaun í ýmsum flokkum.
Ólafur Magnússon var m.a.
valinn knapi ársins 2010 hjá
Hestamannafélaginu Neista og
Steinnes í Húnavatnshreppi var
valið ræktunarbú ársins 2010.
Þá hlaut Kiljan frá Steinnesi
Fengsbikarinn, en hann er
gefinn til minningar um Guð-
mund Sigfússon frá Eiríks-
stöðum og veittur hæst dæmda
kynbótahrossi í eigu heima-
manns.
Ólafur Magnússon gerði það
mjög gott í KS-deildinni, var
þar í úrslitum í flestum greinum
og endaði í 3. sæti í samanlagðri
stigasöfnun knapa. Hann mætti
á Ís-landsmót, í Húnvetnsku
liðakeppnina og á Fákaflug og
var í úrslitum á öllum þessum
mótum.
Ólafur stendur ekki einn í
þessu því konan hans Inga Sóley
á stóran þátt í góðu gengi hans
þar sem hún stendur þétt við
bakið á honum, heima og
heiman. Inga Sóley fékk
afhentan þakklætisvott frá
Hestamannafélaginu Neista
fyrir að fá Ólaf svona oft lánaðan
til að fara á keppnisvöllinn.
Steinnes í Húnavatnshreppi
var valið ræktunarbú ársins
2010. Ábúendur þar eru þau
Magnús Jósefsson og Líney
Árnadóttir. Á árinu 2010 voru
sýnd 12 hross frá Steinnesi.
Íþróttafréttir Feykis ( MITT LIÐ )
Nafn: Þorfinnur Jóhannsson
Heimili: Sauðárkrókur
Starf: Gæruverkamaður
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
Tottenham, sennilega af því að allir
vinir mínir héldu með Manchester,
Arsenal eða Liverpool.
Hefur þú einhvern tímann lent í
deilum vegna aðdáunar þinnar á
umræddu liði? Það hefur svolítið
verið skotið á mig hvað þeir væru
lélegir.
Hver er uppáhaldsleikmaðurinn
fyrr og síðar? David Ginola, Teddy
Sheringham og svo náttúrulega
Guðni Bergs. Gary Lineker var
voða heitur á sínum tíma. Það
hafa verið margir góðir í liðinu,
en verra gengið með þjálfarana,
en það er vonandi komið núna
með Rauðhnapp og vonandi
helst þeim á honum. Í dag er það
Gareth Bale sem er leikmaður á
heimsmælikvarða.
Hefur þú farið á leik með liðinu
þínu? Nei, en vonandi styttist í
það.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu? Já, klukku, trefil, nælu og
húfur.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp
í stuðningi við liðið?
Það gengur ekki
nógu vel. Björgvin
minn var heitur
þangað til hann
hafði vit, þá fór
hann að halda
með Chelsea,
Eiður Smári hafði
meiri áhrif. Þor-
björg hefur lítinn
áhuga en heldur með
Manchester eins og mamma sín.
Hefur þú einhvern tímann skipt
um uppáhalds félag? Nei, maður
herðist frekar.
Uppáhalds málsháttur? Sjaldan
er ein báran stök.
Einhver góð saga úr boltanum?
Mér detta tveir leikir í hug. Teddy
Sheringham var búinn að skipta
yfir í United og þeir komu á
White Hart og fengu víti og Teddy
var látinn taka það en skaut í
stöngina og fékk boltann aftur
en skaut þá framhjá. Annar leikur
sem er svolítið minnisstæður, ég
var ekki að horfa á hann en heyrði
í útvarpinu að staðan í hálfleik á
milli Tottenham og Manchester
væri 3-0 fyrir Tottenham. Ég dreif
mig til svila míns sem er mikill
United-maður til að stæra mig, þar
sem hann var að horfa á leikinn.
En það snérist alveg við og ég fór
heldur sneyptur heim því leikurinn
endaði 3-5 fyrir United.
Einhver góður hrekkur sem þú
hefur framkvæmt eða orðið fyrir?
Er enginn hrekkjari.
Spurning frá Jóni Hirti. – Hvenær
lék Tottenham í Evrópukeppni
síðast?
Svar... Það er nú ekki lengra
síðan en 2008 – 2009!
Hvern viltu sjá svara
þessum spurning-
um? Birgi Rafnsson
Hvaða spurningu
viltu lauma að
v i ð k o m a n d i ?
-Hvað er langt
síðan Tottenham
vann Arsenal á
heimavelli Arsenal?
Vonandi komið
núna með
Rauðhnapp
Glæsilegt afmælishóf
Glæsilegt afmælishóf GSS
var haldið á Mælifelli á
dögunum. Skemmtu gestir
sér konunglega undir góðri
veislustjórn Gunnars
Sandholts, sem samnýtti
“gamlar kynningar frá
Kórnum” og golfsögur til
að halda uppi góðri
stemningu.
Forseti GSÍ Jón Ásgeir
Eyjólfsson og gjaldkeri GSÍ,
Eggert Ágúst Sverrisson
mættu til leiks ásamt mökum
sínum og heiðraði Jón Ásgeir
af því tilefni nokkra félaga
fyrir vel unnið starf. Gull-
merki hlutu þeir Magnús
Rögnvaldsson, fyrir frum-
kvöðlastarf við uppbyggingu
klúbbsins, Sigurjón Gestsson,
fyrir störf að gróðursetningu
á vellinum og Hjörtur Geir-
mundsson fyrir ríflega 20 ára
starf innan stjórnar klúbbs-
ins. Silfurmerki GSÍ hlutu
þau Árný Árnadóttir fyrir að
vera leiðandi í kvennagolfi,
kynningarstarfi og kennslu
og Ásgeir Einarsson fyrir
störf varðandi framtíðarupp-
byggingu golfsvæðisins.
Í afmælinu var Steinar
Skarphéðinsson gerður að
heiðursfélaga GSS.
Sjá nánar á Feykir.is
Golfklúbbur Sauðárkróks
Lið Tindastóls fékk Fjölni úr
Grafarvoginum í heimsókn í
Síkið á sunnudaginn var í
Iceland Express deildinni í
körfuknattleik. Fjölnismenn
voru með yfirhöndina mest
allan fyrri hálfleik en Stólarnir
náðu síðan frumkvæðinu í
síðari hálfleik og í fjórða
leikhluta náðu heimamenn
að þétta vörnina og náðu 12
stiga forystu þegar best lét.
Lokatölur 91-81.
Tindastólsmenn virkuðu
frekar þungir framan af leik og
máttu hafa sig alla við til að
halda í við spræka pilta í liði
Fjölnis, sérstaklega voru þeir
Tómas Heiðar og Ægir Þór
magnaðir. Það gladdi stuðn-
ingsmenn Stólanna að endur-
heimta Svabba Birgis í hópinn
og hann hafði litlu gleymt.
Úrslitin réðust síðan í
upphafi fjórða leikhluta en þá
náðu Stólarnir góðum kafla,
hleyptu reyndar gestunum aftur
inn í leikinn en það var engin
miskunn hjá Magnúsi í kvöld
og Stólarnir kröfsuðu sig aftur í
10-12 stiga forskot og tíminn
reyndist of naumur fyrir
Fjölnismenn til að bregðast við
og Tindastólsmenn sigldu
mikilvægum sigri í höfn.
Kitanovic og Helgi Rafn
börðust eins og ljón í leiknum,
Cunningham var traustur og
sem fyrr segir átti Svabbi ágæta
innkomu. Rikki komst vel inn í
leikinn í síðari hálfleik og eitt
sett af troðslum frá Fain gladdi
áhorfendur en kappinn fór
mikinn í síðari hálfleik.
Stólarnir fá Njarðvík í Síkið
16. desember.
Karfa
Baráttu-
sigur Stóla
Nóvembermót UFA í frjálsum
Góður árangur UMSS
Ungmennafélag Akureyrar
hélt Nóvembermót UFA
laugardaginn 27. nóvember
s.l og fjölmenntu
Skagfirðingar austur yfir
Tröllaskaga þar sem 23
keppendur frá UMSS tóku
þátt, en keppendur voru
alls um 100.
Skagfirðingarnir stóðu sig
mjög vel að vanda en eftirtaldir
keppendur UMSS sigruðu í
sínum greinum:
• Fríða Ísabel Friðriksdóttir (11-
12) sigraði í 6 greinum af 7 í
sínum flokki, 60m, 600m, 60m
grindahlaupi, langstökki, hástökki
og kúluvarpi.
• Sigfinnur Andri Marinósson
(11-12) sigraði í 3 greinum, 60m,
60m grindahlaupi og langstökki.
• Þorgerður Bettína Friðriksdóttir
(13-14) sigraði í 600m hlaupi og
hástökki.
• Ragnar Yngvi Marinósson (11-
12) sigraði í 600m hlaupi.
• Rósanna Valdimarsdóttir (13-
14) sigraði í skutlukasti.
• Guðrún Ósk Gestsdóttir
(Konur) sigraði í 60m hlaupi.
• Guðjón Ingimundarson
(Karlar) sigraði í 60m hlaupi.