Feykir


Feykir - 02.12.2010, Qupperneq 6

Feykir - 02.12.2010, Qupperneq 6
6 Feykir 45/2010 Áhugamaður um allt sem ég geri Gunnar Sigurðsson á Stóru-Ökrum í Feykisviðtali Það er stundum sagt að nægur tími sé til í heiminum, það þurfi bara að forgangsraða rétt. Það á við um Gunnar Sigurðsson bónda á Stóru-Ökrum í Blönduhlíð í Skagafirði sem rekur stórt kúabú með um 80 kýr og 440 kindur á fóðrum og þjálfar skagfirskt frjálsíþróttafólk sem hefur náð eftirtektarverðum árangri og fylgir þeim til keppni vítt og breitt um landið. Feykir tók hús á Gunnari og forvitnaðist um bóndann, ræktandann og þjálfarann sem reynir í hvívetna að gera betur í dag en hann gerði í gær og fyrst er hann spurður um upphafið á hans frjálsíþróttaiðkun. -Ég var svo heppinn að byrja mjög gamall að æfa frjálsar, þess vegna entist ég svo vel. Það er mikið talað um brottfall í íþróttum og þá gjarnan talað um aldurinn 13 – 16 ára en ég byrjaði ekki að æfa frjálsar fyrr en ég var 15 ára, þannig að ég slapp alveg við það brottfall, segir sú að þetta byggir allt á sama grunninum. Það eru engar öfgar sem virka, það þarf fjölbreytni og gríðarlega góða undirstöðu undir allt, hvort sem þú ætlar að verða afreksmaður í þessari íþróttagrein sem ég sinni eða einhverri annarri. Þetta er svip-aður sannleikur á öllum stöðum þó verið sé að reyna að finna stóra sannleikann í þessu eins og kemur upp reglulega. Að vera afreksmaður í íþrótt- um byggir á vinnu fyrst og fremst, það er engin styttri leið til. Ekkert sem heitir „shortcut“ í þessu, segir Gunnar og áréttar að íþróttamaðurinn þarf að fara langa leið og byggja sig upp ef hann ætlar að ná árangri og það sé margra ára vinna. –Það eru margir sem stoppa á þessari leið vegna þess að þeim var ekki sagður allur sannleikurinn í byrjun. Þetta er mikil vinna og það þýðir ekkert að fara í feluleik með það. Ekki ætla sér allir að verða afreksmenn sem eru að æfa og segir Gunnar að það sé ekkert skilyrði hjá sér og reynir hann að vinna með hvern og einn eins langt og hann kemst eða hugur hans stendur til. Mikill efniviður í unga fólkinu Gunnar hefur farið með skagfirska krakka á íþróttamót núna í haust og hafa þau náð eftirtektarverðum árangri og bætt ýmis met. -Við búum að misjafnlega miklum hæfi- leikum og þessir unglingar sem þarna um ræðir njóta góðs af hæfileikum „orginal“. Á þessum aldri erum við ekki að tala um nein töfrabrögð hjá mér sem þjálfara sem gera þessa hluti heldur eru það einstaklingarnir sem eru að ná árangri út á eigin hæfileika. Það er ekki fyrr en með eldri krakka sem mín vinna fer að spila inn í, þó að það sé gaman að monta sig af þessum afrekum þeirra yngri. Gunnar segir að hver og einn sem ætlar sér að ná árangri verði að hafa óbilandi trú á því að hann geti gert hlutina, því um leið og kominn er einhver efi er málið dautt. Gunnar telur að á milli 40 og 60 krakkar séu nú að æfa frjálsar sem kunna að ná góðum árangri í framtíðinni sem er mjög hátt hlutfall miðað við hina frægu höfðatölu. –Það sem er eftirtektarverðast við þessa vinnu okkar hér í Skaga- firði er hvað við náum að kort- leggja svo snemma hverjir hafa hæfileikana til þess að vinna með, segir Gunnar en þá á hann við Grunnskólamótin þar sem allir krakkar í Skagafirði reyna með sér á einum stað og þar sér hann hæfileikaríkustu einstaklingana og nær til þeirra. Gunnar vill þó árétta að hann er ekki einn í þessari vinnu því með honum vinna aðrir þjálfarar sem standa sig mjög vel og er það forsenda þess að vinnan öll skilar sér. Einnig er ágæt aðstaða til æfinga og keppni fyrir íþróttamenn. -Ekki má heldur gleyma þeim sem sjá um verkin á heimavelli þegar ég er á æfingum og keppni. Þar er ég svo heppinn að hafa þá Þorkel bónda á Víðivöllum og pabba sem ávallt eru tilbúnir að leysa mig af, segir Gunnar og á þá við bústörfin heima fyrir. Hvað æfingaaðstöðuna varðar m.t.t. væntinga um árangur segir Gunnar: –Við höfum allt til þess að geta orðið best í heiminum í frjálsum. Við höfum frábæran sand í fjörunni til að æfa á og nóg af steinum til að lyfta. Það er misskilningur að það þurfi einhverja rosalegar aðstæður. Það þarf ekki þessa miklu aðstöðu enda koma ekki endilega bestu íþróttamennirnir af flottustu völlunum. Þeir eru langoftast með besta hausinn, segir Gunnar og líklega hefur hann mikið til síns máls. Óhræddur við að taka áhættu Það er sama hvað Gunnar tekur sér fyrir hendur, allt er gert með miklum metnaði enda segir Gunnar en hann var viðloðandi sportið næsta áratuginn og kannski rúmlega það eins og hann segir sjálfur og snéri sér að körfuboltanum meira og spriklaði þar í einhvern tíma. Þá tók hann sér hlé frá allri íþróttaiðkun í nærri áratug en byrjaði svo aftur árið 2003 þegar hann var beðinn að koma að undirbúningi Landsmóts sem haldið var á Sauðárkróki árið eftir. Gunnar segist hafa heillast að starfinu í kringum þetta vafstur en þjálfaravinnan hafi ekki komið að neinum krafti fyrr en árið 2005. Óhætt er að segja að árangurinn hafi verið góður því margir afreksíþróttamenn undir handleiðslu Gunnars hafa náð glæsilegum árangri á landsvísu. Gunnar segir að fræðin sem hann noti séu byggð á föstum grunni og eru gömul og gild og hafi lítið breyst með árunum. –Það kemur allskonar sannleikur upp öðru hvoru, með stóru „essi“. Fólk byrjar að drekka mikið vatn eða borðar hitt eða þetta sem á að gera eitthvað og heldur að það sé málið, en staðreyndin er Kynbótahrútarnir sóma sér vel í gerðinu. Gunnar við útigegningar. Heilkorn. Efst hveiti, svo bygg og loks hafrar.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.