Feykir - 02.12.2010, Side 8
8 Feykir 45/2010
( TÖLVUPÓSTURINN )
Sæl Signý, hvað er nú að frétta
af Skagaströnd? -Allt gott að
frétta héðan. Það er líflegt á
höfninni, unnið á fullu við að
koma húsnæði Spákonuarfs í
gott horf fyrir sumarið, vikulega
eru prjónakvöld í kaffihúsinu,
spurningakeppnin Drekktu betur
er haldin í Kántrýbæ annað hvert
föstudagskvöld og listafólkið í
Nesi listamiðstöð opnar vinnu-
stofurnar sínar á Opnu húsi í lok
hvers mánaðar.
Svo má segja frá því að
sú skemmtilega hefð er hér á
Skagaströnd að leikskólabörn
og foreldrar baka saman og
skreyta piparkökur fyrsta laugar-
daginn í aðventu og foreldrafélag
grunnskólans býður uppá fönd-
urdag í skólanum eftir hádegi. Í
ár var einnig kveikt á jólatrénu á
Hnappsstaðatúni seinnipartinn
sama dag, þannig að það má
segja að þetta sé sannkallaður
fjölskyldudagur.
En af þér sjálfri?
-Bara allt fínt, mér leiðist aldrei,
finn mér alltaf eitthvað gera, vildi
gjarnan að tíminn liði ekki svona
hratt svo ég gæti gert meira.
Þar að auki held að það sé
hræðilegur dauðdagi að drepast
úr leiðindum.
Eru ekki allir komnir á fullt
í jólaundirbúningi á Skaga-
strönd, mikið skreytt og svona?
-Heldur betur, það eru víða komin
upp jólaljós. Bærinn fer óðum
skarta sínu fegursta. Það er svo
gaman þegar maður skreppur
frá yfir helgi á aðventunni að sjá
hversu mikið hefur bæst við af
jólaljósum þegar maður kemur til
baka. Bærinn hefur verið þekktur
fyrir hversu mikið er skreytt hér
og ég held að það verði ekkert
öðruvísi þessi jól.
En þú sjálf, er jólaundirbúning-
urinn kannski langt á veg
kominn? -Ja, ...ég er búin með
þessi hefðbundnu jólaþrif þar
sem maður tekur glugga og
gardínur, skápa og skúffur og
svoleiðis og ég er líka langt
komin með jólagjafirnar. Já, ég
held að ég sé bara passlega
langt á veg komin.
Það er alltaf markmið hjá mér
að eiga skemmtilega aðventu
Galleríið Djásn og dúllerí opnaði á
Skagaströnd í sumar og var opið yfir hinn
hefðbundna ferðamannatíma. Nú hefur
galleríið verið opnað á nýjan leik og verður
opið um helgar yfir aðventuna.
Signý Ósk Richter er ein þriggja kvenna sem
standa að galleríinu en konurnar þrjár eiga
heiður skilinn fyrir hið skemmtilega framtak.
Feykir sendi Signýju línu og forvitnaðist um
galleríið, mannlífið á Skagaströnd og örlítið
um hana sjálfa.
Hræðilegur
dauðdagi að
drepast úr
leiðindum
og njóta hennar til hins ýtrasta.
Ég reyni reyndar alltaf að njóta
hvers dags með gleði í hjarta
og jákvæðu hugarfari. Maður
velur sér viðhorf. Ég hlakka til
að fara að baka smákökur og
skrifa jólakortin – það verður svo
gaman þegar það er búið.
Stórfjölskyldan var með
árlegt jólahlaðborð um síðustu
helgi. Það er fjölskylda mannsins
míns sem er svo dugleg að
hittast alltaf fyrstu helgina í
aðventu. Þá borðum við jólamat
saman og skemmtum okkur
eins og við lifandi getum. Börn
ekki síður en fullorðnir troða upp
með tónlistarflutningi söng og
leikjum. Jólasveinninn kemur
með gjafir fyrir alla, dansar og
syngur jólalög með okkur.
Djásn og dúllerí, hvernig kom
það til?
-Við stöllurnar, Björk og Birna
Sveinsdætur, höfðum lengi
gælt við hugmyndina um
handverkshús á Skagaströnd.
Það var náttúrulega alveg ferlegt
að útlendingar í listamiðstöðinni
og annað ferðafólk sem hingað
kom og vildi kaupa handverk
úr héraði, eins og lopapeysur
eða þvíumlíkt, þyrfti kannski að
fara til Reykjavíkur til að kaupa
það! Það vita allir að það gerist
ekkert að sjálfu sér þannig að
við ákváðum bara að drífa í
þessu. Við vissum líka að það
væri fullt af hæfileikaríku fólki á
svæðinu. Við vorum svo heppnar
að fá rúmgott húsnæði til afnota
þar sem höfum búið um okkur
á þann hátt sem okkur líkar
best, með svolítið af gömlum
húsgögnum sem fólki finnst
skemmtileg umgjörð fyrir galleríið.
Svo bjóðum við líka uppá smá
sýningaraðstöðu í Djásnum og
dúlleríi, þar er hægt að sækja um
að vera með hverskonar sýningar
eina viku í senn eða lengur yfir
sumartímann. Og við erum
farnar að taka við pöntunum fyrir
næsta sumar.
Nú voruð þið með opið í sumar.
Var hugmyndinni ekki vel
tekið? -Jú, svo sannarlega – Það
eru allir svo jákvæðir og drífandi
á Skagaströnd.
Við auglýstum eftir fólki í lok
júní til að vera með handverk og
hönnun í galleríinu og viðbrögðin
létu ekki á sér standa. Fljótlega
vorum við komnar með 25
manns sem vildu vera með.
Eitt af skilyrðum fyrir þátttöku er
yfirseta sem deilist á alla sem
taka þátt og fólk hefur verið
ákaflega sátt við það og þótt
þetta gaman. Við opnuðum
Djásn og dúllerí um miðjan júlí
og vorum með opið alla daga
vikunnar í sumar. Það komu
u.þ.b. 1500 manns þrátt fyrir að
við gátum lítið auglýst og okkur
þótti ákaflega vænt um hvað við
fengum margar heimsóknir frá
nágrannabæjarfélögunum.
Við stöllur erum mjög ánægðar
og stoltar yfir því hvernig til tókst
í sumar, ekki síst hvað galleríið
var samfélagslega gefandi. Sýn-
ingunum var líka vel tekið, sem
og upplýsingahorninu þar sem
lágu frammi upplýsingabæklingar
um nánasta umhverfi. Undir
lokin gátum við einnig verið með
internetaðgang.
Hvers konar varningur er til sölu
hjá ykkur? -Það væri svo langt
mál ef ég ætti að telja það allt
upp hér en það er skemmtilega
fjölbreytt. Bæjarbúar og nær-
sveitamenn hafa nefnilega komið
okkur meira á óvart með þátttöku
og fjölbreytilegum vörum en við
þeim með því að láta okkur detta
í hug að opna Djásn og dúllerí.
En svo ég gefi nú einhverja
hugmynd um hvað er á boð-
stólum, þó að vöruúrvalið taki
alltaf einhverjum breytingum, þá
eru það prjónavörur, glervörur,
handunnin kort, smíðajárn,
bútasaumur, yfirleitt er líka til
eitthvað sætt undir tönn, myndir,
töskur og ýmiss konar handunnið
jólaskraut. Svo seljum við ein-
band, smávegis af efnum,
notaðar bækur og kiljur og við
þiggjum allar bækur sem fólk vill
gefa okkur, - og líka hljómplötur.
Aðventuopnun, er hún ekki
kærkomin viðbót í mannlífið hjá
ykkur? -Jú, svo sannarlega og við
erum svo heppnar að fá í lið með
okkur frábært tónlistarfólk sem
ætlar að líta við á laugardögum
og flytja lifandi tónlist og einnig á
Þorláksmessu.
Hvernig verður henni háttað?
-Við verðum með opið allar helgar
– laugardaga og sunnudaga frá
14 - 18 og svo á Þorláksmessu frá
14 - 21 . Maður er manns gaman,
við höfum trú á að það muni
verða góð stemning í Djásnum og
dúlleríi á aðventunni.
Eitthvað að lokum?
-Djásn og dúllerí bjóða alla
hjartanlega velkomna í galleríið
og vonast til að sem flestir geti
fundið eitthvað í jólapakkana hjá
okkur – það er svo gott að geta
verslað í heimabyggð.
Við tökum ekki á móti greiðslu-
kortum en við tökum á móti
hópum utan auglýsts opnunar-
tíma ef óskað er. ; )
Megi jólahátíðin færa ykkur
öllum birtu í hjarta og bros á vör.
Sigríður Björk Sveinsdóttir, Birna Sveinsdóttir og Signý Ósk Richter.