Feykir - 17.03.2011, Side 11
11/2011 Feykir 11
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Halla og Addi kokka
Grískur Moussaka
1 tsk. paprikuduft
1 tsk. gram masala
Smá Agave sýróp
(smekksatriði)
½ dós Hunts tómat purre
Vatn
2 tómatar – 6 sveppir –
½ laukur – 2 hvítlauksrif
Sett í matvinnsluvél og steikt
með hakkinu. Hakkið steikt og
allt sett á pönnuna og eldað þar
til að það verður seigfljótandi.
2 Eggaldin
1 lítill kúrbítur
10 sveppir- sneiddir
Eggaldinin og kúrbíturinn
sneidd niður í ½ cm þykkar
plötur, penslað með olíu,
kryddað með salt og pipar og
steikt sér á pönnu eða steikt í
ofni.
Sósan - béchamel afbrigði
Smjör og hveiti
Búin til smjörbolla og mjólk sett
út í kryddað með salt og pipar,
ostur settur í restina en sósan
er höfð í þykkri kantinum.
Sæmilega stórt fat er notað, það
er nuddað með ólífuolíu, síðan
Það eru þau Halla Þóra
Másdóttir og Ágúst Kárason
á Sauðárkróki sem eiga
uppskriftir vikunnar að
þessu sinni og bjóða upp á
spennandi rétti. Forrétt með
ítölsku þríburunum,
Moussaka í aðalrétt og
Ananas-lime fromage í
eftirrétt.
Halla og Addi skora á
Guðnýju Guðmundsdóttur
og Gunnar Gestsson á
Sauðárkróki að koma með
næstu rétti úr Skagafirði.
Forréttur
Sagt er að tómatar, mozzarella-
ostur og basil séu hinir
ítölsku þríburar enda voru
það Ítalir sem fundu upp að
þessi þrenning væri einstök.
Þetta er einfaldur forréttur og
bragðgóður. Uppskrift fyrir 4.
4 stórir tómatar
2 mozzarellaostar (kúlur)
2 msk. góð ólífuolía
1 msk. balsamedik
½ tsk. nýmalaður pipar
Salt
Nokkur fersk basilblöð
Skerið tómata og ost í sneiðar
og leggið á disk, blandið saman
olíu og balsamediki og dreypið
vel yfir tómatana og ostinn.
Kryddið með nýmöluðum
pipar og sjávarsalti, skreytið
með basilblöðum.
Aðalréttur
Moussaka
Þetta er réttur sem kemur frá
miðausturlöndum og er oftast
tengdur Grikklandi, til eru
ýmsar útfærslur á þessum rétti
og er þetta okkar útgáfa.
400 gr. fitulítið nautahakk
Ólífuolía til steikingar
Salt og pipar (meiri pipar
en minni)
er kúrbít og eggaldin raðað í
botninn og þunnt lag af sósu
sett yfir og síðan kjötmaukið.
Þá er annað lag af grænmetinu
ásamt sveppum sett yfir, einnig
sósa og kjöt. Í lokin er sósa sett
yfir og rifnum osti stráð yfir.
Þetta er bakað í ofni við 180°C
í 30 mín. eða þar til sósan og
osturinn er farinn að litast.
Eftirréttur
Ananas-lime
fromage
2 egg
½ dl. sykur
5 blöð matarlím
Safi úr einni lime
1 dl. ananassafi
1 peli þeyttur rjómi
Setja matarlímsblöðin í bleyti í
kalt vatn.
Þeyta saman egg og sykur, bæta
vökvanum út í, síðan ylvolgu
matarlíminu í mjórri bunu og
að lokum þeytta rjómanum.
Verði ykkur að góðu!
Heilir og sælir lesendur góðir.
Gott að byrja að þessu sinni með ágætri
vísu eftir Bjarna frá Gröf.
Ég hef átt mér yndi dátt
ergja fátt mig kunni.
Hjá fljóðum sáttur þáði þrátt
að þjóna náttúrunni.
Önnur hringhenda kemur hér og held
ég að höfundur hennar sé Benedikt
Jónasson.
Græðir tjaldar salinn sinn
svölum faldi hríða.
Hræðir kaldan muna minn
meina aldan stríða.
Það mun hafa verið Einar á Reykjarhóli
sem orti þessa kunnu vísu um bújörð
sína.
Þessi jörð mér löngum lét
þótt lítill væri auður.
Þaðan ekki fer ég fet
fyrr en ég er dauður.
Minnir endilega að næsta vísa sé einnig
eftir Einar, og mun hann þar vera að
ráðslaga með flutning á sér, er hann væri
allur, til kirkjustaðar.
Dröfnóttur með sorgarsvip
sjálfur þó ei taumum stýri.
Þessum ríð ég gráa grip
til grafarinnar á Víðimýri.
Það mun hafa verið Finnbogi í
Galtarholti sem orti svo í orðastað
kunningjakonu.
Mjög ég varði meydóminn
margur vildi haf´ann.
Varð loks alveg uppgefinn
Ásbirni því gaf hann.
Ekki þarf að efast um hjá okkur
vísnavinunum að mikið og gott
framtak var það hjá Margeiri Jónssyni
á Ögmundarstöðum þegar hann gaf út
vísnasafn, sem hann kallaði Stuðlamál.
Sagt er að Sveini Hannessyni hafi verið
boðið eins og öðrum hagyrðingum að fá
pláss í ritinu. Heimfærði hann þá að fá að
birta að minsta kosti 100 vísur. Engin leið
varð að verða við því í svo litlu kveri, og
reiddist Sveinn þeirri neitun, og orti svo
illa til kversins þegar það kom út.
Margeirs sálin mærðar grút
mæðist ekki að safna.
Stuðlamálin unga út
eggjum flestra hrafna.
Annar mikill grínisti úr Skagafirði,
Móskóga-Stebbi tók undir með Sveini og
orti þessa.
Stuðlamálin eru oss
ekki mikils virði.
Minna helst á mögur hross
manna í Skagafirði.
Vísnaþáttur 542
Man ekki nú vísur sem ortar voru til
heiðurs þessu kveri og bið Skagfirðinga
og aðra þá sem kunna þar frá að segja að
hafa samband við þáttinn.
Hallbjörn Bergmann sem mun
hafa búið á Flatey á Breiðafirði orti svo
um nágrannakonu sína sem oft var
fréttafróð.
Henni er ei mein að máttleysi
menn það greina snjallir.
Krussar um eyna kjaftandi
svo kveða við steinar allir.
Alltaf er gaman að heyra frá gamla Páli
Ólafssyni. Veit ekki tilefni þessarar vísu,
en trúlega hafa einhverjar deilur verið
þar í gangi.
Baldvin rór sem betur fór
brúkaði stóra vitið.
Gerir minnst, ef málið vinnst
þó mannorðið sé skitið.
Önnur vísa kemur hér eftir Pál, sem
mun hafa fylgt hrút sem hann sendi vini
sínum.
Hrútinn átt að þiggja þú
þú sem hefur sent mér kú.
Kú sem heill í búið ber
best af öllum kúnum hér.
Er þessi þáttur er í smíðum, er bölvaður
snjógangur víða um land. Ingólfur Ómar
yrkir vetrarvísu.
Nú er úti norðan hríð
napur gnauðar Kári.
Vond og róstug vetrartíð
veldur urg og fári.
Hressum okkur næst með nokkrum
gleðivísum eftir Ágúst Sigfússon (Villu-
Gústa) sem ortar eru á fjörugum
samkomum. Vek athygli lesenda á þessari
snilld Ágústar að tala í hringhendum.
Kemur næði kvelds um stund
kærleiks glæðist vaka.
Í litklæðum eru sprund
ástar fæðist staka.
Ég í hljóði óska má
unun góða finni.
Hold og blóðið hita á
hringatróðu minni.
Háum undir himnasal
hryggð úr skundi geði.
Nettu sprundin nota skal
nú er stundargleði.
Gott mál að leita til Gústa með lokavísu
þáttarins. Skoðið síðustu hendinguna,
kannski kunnum við því miður í dag á
svo snjallt orðalag.
Amabundinn er ei neinn
eykur lundar gaman.
Víf um stund og valinn sveinn
vefja mundum saman.
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Verið þar með
sæl að sinni.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Sími 452 7154