Feykir - 29.09.2011, Page 2
2 Feykir 36/2011
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur: Karl Jónsson
Áskriftarverð: 317 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 350 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Feykir
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Grjótið í götunni
Sauðfjárslátrun hjá SAH
Afurðum er í fullum gangi
um þessar mundir og
hefur allt gengið mjög vel
fyrir sig, samkvæmt
heimasíðu fyrirtækisins.
Þar segir að met hafi verið
slegið í meðalfallþunga dilka
sem var 18,86 kg, en það er sú
langhæsta tala sem elstu
menn muna og ekki eru til
skýrslur um meiri fallþunga.
Flestir dilkanna voru frá
Hörgárdal og af Ströndum.
Hjá SAH Afurðum er
mikil áhersla lögð á nýtingu
aukaafurða og er svo fyrir
komið að nánast allt er notað.
Þar má nefna tilraunarvinnslu
á löppum og hausum fyrir
Afríkumarkað. /BÞ
SAH Afurðir
Met slegið
Norðurland vestra
Rætt um framtíð
flugs á Krókinn
Í gær var haldinn fundur á
Kaffi Krók þar sem framtíð
áætlunarflugs til Sauðár-
króks var rædd. Þar voru
mættir fulltrúar Svf.
Skagafjarðar, Flugfélagsins
Ernis auk annarra hags-
munaaðila á svæðinu.
Fram kom hjá flugrekstrar-
aðilum að ekki væri rekstrar-
grundvöllur fyrir því að halda
uppi flugáætlunum til Sauð-
árkróks án aðkomu ríkisins í
formi styrkja en aðeins um eina
og hálfa milljón króna vantar
til að dæmið gangi upp. Minni
sætanýting auk meiri skatttekju
ríkisvaldsins gerir það einnig
að verkum að erfitt er um vik
fyrir flugfélagið að halda áfram
á sömu braut. Óskir heima-
manna voru þær helstar á
fundinum að flugið héldi áfram
með aukinni þjónustu við þá
sem þyrftu að skreppa daglangt
í höfuðborgina með því að fyrr
verði flogið á morgnana og
hægt verði að komast heim að
dagsverki loknu. Einnig kom
fram að betur má markaðssetja
flugið hvað varðar ferðaþjón-
ustuaðila svæðisins og eru þar
drjúg sóknartækifæri.
Bjarni Jónsson sveitar-
stjórnarfulltrúi segir að því
verði fylgt eftir sem kom fram
á fundinum við innanríkis-
ráðherra en fundur verður
haldinn með honum í næstu
viku. Bjarni segist bjartsýnn á
að það takist að tryggja áfram-
haldandi flug til Sauðárkróks
með samningum við stjórnvöld
og aukinni nýtingu á fluginu
m.a. með því að finna hentugar
tímasetningar. Einnig telur
hann það samræmast sam-
gönguáætlun á Norðurlandi
vestra sem verið er að vinna að
hjá SSNV að halda úti flugi til
Sauðárkróks og þar með til
Norðvestur landshlutans. /PF
Víðidalstungurétt í Vestur Húnavatnssýslu
Stóðsmölun
og stóðréttir
Nú um helgina verður mikið
um að vera í Víðidalnum í
Vestur-Húnavatnssýslu en
þá verður stóðinu smalað til
byggða á föstudag og
stóðréttir í Víðidalstungu-
rétt daginn eftir.
Gestum, sem ætla að taka
þátt í stóðréttargleðinni, er bent
á að fara af stað frá Hrappstöð-
um á föstudaginn, um kl. 10.
Þeir sem ætla að vestan geta
mætt í Valdarásrétt um hádegi.
„Svo er líka mögnuð sjón að
mæta bara síðdegis til að sjá
stóðið renna heim í sveitina,“
eins og segir í fréttatilkynningu
frá skipuleggjendum Víðidals-
tunguréttar.
Á föstudaginn er öllum
boðið í kaffi í skemmuna á
Kolugili og um kvöldið í kjöt-
súpu í Víðigerði eða hjá Siggu
og Jóa á Gauksmýri.
Laugardaginn 1. október
verður stóðið rekið til Víðidals-
tunguréttar stundvíslega kl. 10
og hefjast þá réttarstörf. Þar má
jafnan sjá fjölda efnilegra
unghrossa, uppboð verður á
gæðingsefnum og sölusýning
um hádegið. Í réttinni stendur
Kvenfélagið Freyja fyrir happ-
drætti og fæst miði með því að
versla veitingar af félaginu, þar
sem aðalvinningurinn verður
folald!
Á laugardagskvöldið er
dansleikur í Víðihlíð, þar sem
hljómsveit Geirmundar heldur
uppi sveiflunni eins og honum
einum er lagið. /BÞ
Ég las litla frétt á einum vefmiðlinum fyrir fáum dögum sem
bar yfirskriftina „Stjórnvöld leggja stein í götu“. Þar segir
Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, að
samtökin muni ekki hafa frumkvæði af samvinnu við
ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur héðan í frá þar sem
stjórnvöld, að hans mati, hafa lagt stein í götu atvinnulífsins.
Mér varð hugsað til orða Guðbjarts Hannessonar á borgara-
fundi sem haldinn var á Sauðárkróki að frumkvæði Hollvina
Heilbrigðisstofnunarinnar en þar sagðist hann vilja sjá
sameiningu dómstóla á landinu og benti á að ekki væri
endilega verið að tala um að flytja verkefnin suður eins og
heimamenn voru hræddir um heldur væri hægt að senda
verkefnin út á land. Mér skilst að dómamálum hafi farið
fjölgandi undanfarin misseri og verið væri að velta fyrir sér
að auka fjárframlög til málaflokksins. Nú er lag fyrir
stjórnvöld að vinna að þessari hugmynd Guðbjarts og reyna
á hvort ekki sé hægt að framkvæma hana eins og atvinnu- og
ferðamálanefnd Skagafjarðar ályktaði um fyrir stuttu. Þá er
einnig spurning hvort ekki sé hægt að hreinsa götuna af
þeim steinum sem búið er að leggja í götuna til heilbrigðis-
stofnananna á Sauðárkróki og Blönduósi. Þar virðist reyndar
þurfa stórar þungavinnuvélar og menn með reynslu og
áræðni til að fara í þá vegagerð. En þegar fyrsti steinninn er
farinn er verkið hafið.
Páll Friðriksson
ritstjóri
Frá fundinum í gær. Snorri Björn Sigurðsson er með orðið.
Gengið hefur verið frá
ráðningu í allar sex stöður
héraðsdýralækna sem
verða til með breyttri
umdæmaskipan frá og
með 1. nóvember nk. Egill
Þorri Steingrímsson verður
Héraðsdýralæknir í
Norðvesturumdæmi, en
hann hefur gegnt stöðu
héraðsdýralæknis í
Austur-Húnaþingsumdæmi.
Breytingar eru gerðar með
það að markmiði að koma í
veg fyrir hugsanlega hags-
munaárekstra með því að
aðskilja opinbert eftirlit hér-
aðsdýralækna frá almennri
dýralæknaþjónustu og um
leið mun hið opinbera veita
stuðning til dýralækna sem
starfa munu við dýralækna-
þjónustu í hinum dreifðari
byggðum. /PF
Matvælastofnun
Sex héraðs-
dýralæknar
ráðnir
Hólaskóli
Staða rektors laus
til umsóknar
Mennta- og menningarmála-
ráðuneytið hefur auglýst
stöðu rektors
Háskólans á
Hólum lausa til
umsóknar en það
er í samræmi við
lög um búnaðar-
fræðslu sem
kveða á um að
staða rektors sé
veitt til 5 ára í
senn og skuli
auglýst í hvert
skipti. Næsta
skipanatímabil rektors
hefst 1. janúar 2012.
„Eftir talsverða umhugsun
hef ég ákveðið að sækja ekki
áfram um starfið heldur hverfa
að starfi mínu sem prófessor í
fiskeldis- og fiskalíffræðideild.
Ég tel að fyrir aka-
demískt embætti af
þessum toga sé
regluleg endurnýjun
mikilvæg. Ég hef nú
gegnt stöðu skóla-
meistara og síðan
rektors í samtals 12
ár“, sagði Skúli
Skúlason rektor í
samtali við Feyki.
Samkvæmt lögum
mun háskólaráð Háskólans á
Hólum fara yfir umsóknir um
embættið og veita mennta- og
menningarmálaráðherra um-
sögn um umsækjendur. /PF
Endurbætur standa nú
yfir á pósthúsinu á
Hvammstanga og hefur
því verið lokað
tímabundið.
Samkvæmt vefmiðlinum
Norðanátt.is verður póstaf-
greiðsla í félagsheimilinu að
Klapparstíg 4, á meðan unnið
er að endurbótunum.
Nánari upplýsingar gefur
þjónustuver Íslandspósts í
síma 580 1200. /BÞ
Pósthús Hvammstanga
Endurbætur