Feykir


Feykir - 29.09.2011, Blaðsíða 10

Feykir - 29.09.2011, Blaðsíða 10
10 Feykir 36/2011 Lífsgleði í Stærsta stóðrétt landsins, Laufskálarétt, var haldin sl. laugardag í Hjaltadalnum. Að venju var margt um manninn og sömuleiðis hestinn og gengu réttarstörf hratt og vel fyrir sig í sæmilegasta haustveðri, 10 stiga hita og smá vindi. Kvöldið áður var skagfirsk gleði og skemmtun í Reiðhöllinni Svaðastöðum þar sem hestar og hestamenn sýndu fimi sína og ýmislegt fleira var til gamans gert. Stærstu stóðrétt landsins var að sjálfsögðu fylgt eftir með stærsta sveitaballi ársins á Íslandi og voru ballgestir á þriðja þúsund talsins. Að sögn Lögreglunnar á Sauðárkróki, var helgin nokkuð góð og stóð undir væntingum miðað við þann fjölda gesta sem gerðu sér glaðan dag. Þakkar hún góðri gæslu og undirbúningi. /ÓAB Drottning stóðréttanna Laufskálarétt MYNDASYRPUR Sjá fleiri myndir á ljósmyndavef Feykis.is

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.