Feykir - 29.09.2011, Page 10
10 Feykir 36/2011
Lífsgleði í
Stærsta stóðrétt landsins, Laufskálarétt,
var haldin sl. laugardag í Hjaltadalnum.
Að venju var margt um manninn og
sömuleiðis hestinn og gengu réttarstörf
hratt og vel fyrir sig í sæmilegasta
haustveðri, 10 stiga hita og smá vindi.
Kvöldið áður var skagfirsk gleði og
skemmtun í Reiðhöllinni Svaðastöðum þar
sem hestar og hestamenn sýndu fimi sína og
ýmislegt fleira var til gamans gert.
Stærstu stóðrétt landsins var að sjálfsögðu
fylgt eftir með stærsta sveitaballi ársins á
Íslandi og voru ballgestir á þriðja þúsund
talsins. Að sögn Lögreglunnar á Sauðárkróki,
var helgin nokkuð góð og stóð undir
væntingum miðað við þann fjölda gesta
sem gerðu sér glaðan dag. Þakkar hún góðri
gæslu og undirbúningi. /ÓAB
Drottning stóðréttanna
Laufskálarétt
MYNDASYRPUR
Sjá fleiri myndir á ljósmyndavef Feykis.is