Feykir - 29.09.2011, Qupperneq 3
36/2011 Feykir 3
Feykir
Hafðu samband - Síminn er 455 7176
Er eitthvað
að frétta?
Rafmagn fór af stórum
hluta Skagafjarðar um
klukkan korter yfir tíu á
þriðjudagsmorguninn er
lína Landsnets milli
Varmahlíðar og Sauðár-
króks sló út.
Um klukkustund síðar var
rafmagn aftur komið á á
Sauðárkróki en vegna af-
leiddrar bilunar í stýribúnaði
varð straumlaust áfram í
Hjaltadal, Viðvíkursveit, Hofs-
ós og Sléttuhlíð í skamma
stund í viðbót.
Svo illa vildi til að fáliðað
var hjá Rarik þegar rafmagn-
ið fór af þar sem margir
starfsmenn eru í sumarfríi á
sólarströnd og ekki við því
komið að senda eftir þeim.
Ljóst er að raskið var mikið
hjá rafmagnsnotendum á
svæðinu en ekki eru neinar
fregnir um stórvægilegar
bilanir. /PF
Rafmagnslaust
í Skagafirði
SkagafjörðurStyrktarsöfnun skokkhóps Árna Stefánssonar
Fjölmargir skokkuðu
eða hjóluðu til góðs
meðferðum í Indlandi. „Það
var æðislegt að sjá Þuríði og
Ingvar á brautinni,“ sagði Árni
en þau létu ekki sitt eftir liggja
og lögðu góðum málstað lið.
Þuríður Harpa lagði af stað
hjólandi frá Glaumbæ uppúr
kl. 9:30 og kom með þeim
fyrstu að Sundlaug Sauðárkróks
um kl. 12:30. Þar var tekið á
móti fólkinu með léttum
veitingum. Alls hétu 19
fyrirtæki á þátttakendur og þau
voru:
• Arion banki
• Kaupfélag Skagfirðinga
• Steinull hf.
• Landsbankinn
• Fisk seafood hf.
• G og • Byggðastofnun
• Vörumiðlun
• Sparisjóður Skagafjarðar
• Tengill ehf.
• Dögun ehf.
• Sjóvá
• Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki
• KPMG
• Sauðárkróksbakarí
• Sveitarfélagið Skagafjörður
• Loðskinn hf.
• Hlíðarkaup
• Króksverk ehf.
„Við viljum þakka þeim
fyrirtækjum sem styrktu okkur
og Suðurleiðum sem lagði til
tvennar rútuferðir og keyrði
þátttakendum á upphafsreit.
Sömuleiðis viljum við þakka
lögreglunni fyrir að hægja á
umferðinni um brautina og
gera hana þar með öruggari.
Svo að sjálfsögðu öllum
þátttakendunum. Einnig viljum
við benda á að söfnunin er
alltaf í gangi og enn hægt að
leggja inn á styrktarreikning
Magnúsar,“ sagði Árni.
Styrktarreikningur Magn-
úsar er: 0161-15-550279 – kt:
110468-3429. /BÞ
Útsendarar Feykis tóku púlsinn á rafmagnsleysinu. Í Skagfirðingabúð var ljóstíra við einn
kassann en í Skaffó var hægt að afgreiða því vélarnar geta gengið fyrir rafhlöðum, að sögn
Árna Kristins verslunarstjóra. Þrátt fyrir rafmagnsleysið var fólk að koma í búðina og einn
aðili verslaði vasaljós meðan Feykismenn stöldruðu við.
Víða mátti sjá starfsfólk spóka sig utan dyra í blíðunni á meðan rafmagnið var úti, enda
lítið hægt að gera innan dyra.
Árlegt lokahlaup skokkhóps
Árna Stefánssonar fór fram
sl. laugardag og að þessu
sinni var skokkað til styrktar
Magnúsi Jóhannessyni.
Þátttakendur létu ekki
mótvindinn aftra sér en að
sögn þeirra sem tóku þátt setti
norðangjólan svolítið strik í
reikninginn. Að sögn Árna
tóku 86 manns þátt og fóru
samanlagt 1650 km. Þeir sem
skokkuðu eða gengu voru 53
talsins og fóru 780 km en þeir
sem hjóluðu fóru 870 km og
voru 33 talsins. Þátttakendur
hófu ferð sína á mismunandi
stöðum, eftir því sem þeir
treystu sér til. Sú sem hljóp
lengst var María Hjaltadóttir
en hún lagði af stað frá Vöglum
í Blönduhlíð og skokkaði 34
km. Einn þátttakandinn,
Guðrún Stefánsdóttir, þreytti
hlaupið í Svíþjóð að þessu sinni
og hlaup þar 11 km.
Skokkhópurinn styrkti Ingva
Guðmundsson, sem þurfti að
fara til Svíþjóðar í mergskipti í
fyrra. Þar áður styrkti hann
Þuríði Hörpu Sigurðardóttur,
sem hefur verið í stofnfrumu-
Húnaflói
Landsæfing á sjó í „rjómablíðu“
Sameiginleg björgunarsveitaræfing,
sem fór fram á Húnaflóa fyrir skömmu,
gekk mjög vel fyrir sig í „rjómablíðu,“
eins og segir á heimasíðu Björgunar-
sveitarinnar Húna.
Björgunarsveitirnar á Norðurlandi
vestra skipulögðu umrædda landsæfingu
á sjó, undir forystu Bj.sv. Strandar á
Skagaströnd. Björgunarsveitarmenn
komu víða að til að taka þátt í æfingunni,
m.a. frá Fáskrúðsfirði og Eyrarbakka.
Æfingin stóð yfir allan daginn, frá kl.
8-17 og að henni lokinni var öllum
þátttak-endum boðið til grillveislu í
Félags-heimilinu Fellsborg.
Samkvæmt heimasíðu Bj.sv. Strandar
var allskyns tækjakostur notaður til
æfinganna, má þar helst nefna björgunarskip, harðbotnabáta og slöngubáta en á annað hundrað
fjölbreytt verkefni voru til úrlausnar, t.d. fluglínutækjaverkefni og köfunarverkefni. /BÞ
Björgunarsveitaræfing á Húnaflóa. Mynd: http://hunar.123.is
Þátttakendur glaðir að vera komnir í mark og fá sér léttar veitingar.
Þuríður Harpa hjólaði frá Glaumbæ, 17 km rúnt út á Krók.
Hús frítímans á Sauðárkróki
Ljóðelskandi gestir
Góðir gestir komu í
heimsókn í Hús frítímans, til
Félags eldri borgara, sl.
laugardag 24. september.
Þar voru á ferðinni ljóðskáld
úr Ljóðahópi Gjábakka, og
fluttu þau frumsamin ljóð
við góðar undirtektir
heimamanna.
Í hópnum eru tvær skag-
firskar konur, ættaðar úr
Fljótum, Sigurbjörg Björgvins-
dóttir, sem fór fyrir hópnum í
forföllum Þórðar Helgasonar
cand.mag , sem æfir hópinn,
svo er Ragna Guðvarðardóttir
frá Minni-Reykjum, sem því
miður komst ekki vegna
veikinda.
Heimamennirnir Jón Eiríks-
son, Drangeyjarjarl og Hreinn
Guðvarðarson, fóru með
frumsamin ljóð. Fundarmenn
skemmtu sér mjög vel og er
ánægjulegt að fá slíkar heim-
sóknir. Í lokin var öllum boðið
uppá kaffi og meðlæti.
/IVT