Feykir - 29.09.2011, Qupperneq 6
6 Feykir 36/2011
Þegar blaðamaður Feykis hitti
Ingileif í fyrsta sinn var
busavígsla FNV í fullu gangi
með tilheyrandi fjöri og
skvettugang. Þá hrópaði einn
nemandinn að Ingileif: „Hey,
á ekki eftir að busa þig?!“
–„Það er heiður kennaranna
að fá að gera það,“ svaraði
Ingileif og hló. Blaðamaður
Feykis fékk að forvitnast um
bakgrunn nýja skólameist-
arans og hugsjónir hennar
fyrir skólann.
Kenndi börnunum í
hverfinu
Ingileif er fædd árið 1964 og
uppalin á Akranesi. Foreldrar
hennar eru Oddur Gíslason,
skipstjóri og útgerðarmaður, og
Björnfríður Sigríður Björns-
dóttir húsmóðir. Hún er elst af
fjórum systkinum en var eina
stelpan í hópnum. „Það var sko
oft mikið fjör á heimilinu og
ósjaldan slegist,“ sagði Ingileif
en oftar en ekki þurfti hún að
siða yngri bræður sína til.
Það má segja að Ingileif hafi
verið kennari frá blautu
barnsbeini en þegar hún var
smástelpa átti hún það til að fara
í kennaraleik. „Það var gamall
kyndiklefi í húsinu mínu sem
var ekki lengur í notkun og þar
var ég með kennslustofuna
mína. Ég raðaði upp stólum,
smalaði börnum saman úr
hverfinu, stóð svo við
krítartöfluna og var með
kennslustund,“ rifjaði hún upp
með bros á vör.
Ingileif gekk í Brekku-
bæjarskóla á Akranesi og síðar í
Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Þar sótti hún m.a. kennslustundir
í sálfræði hjá Þóri Ólafssyni,
sem síðar varð skólameistari við
skólann. „Þar kviknaði áhugi
minn á sálfræði og í kjölfarið fór
ég í Háskóla Íslands, þar sem ég
lauk BA- próf í sálfræði. Það er
svolítið sérstakt þegar ég horfi
til baka yfir starfsferil minn.
Maður veit nefnilega aldrei
fyrirfram hverjir koma til með
vera áhrifavaldar í lífi manns en
Þórir átti eftir að leika þar
lykilhlutverk.“
Ingileif hafði hug á því fara í
framhaldsnám eftir að hún lauk
BA- prófi en ákvað að taka sér
ársleyfi. Hún hafði alltaf haft
mikinn áhuga á kennslu og
verið hrifin af skólaumhverfinu.
Þegar hún sá auglýst eftir
kennara í Brekkubæjarskóla,
ákvað hún að slá til og starfaði
þar við kennslu á unglingastigi í
eitt ár. Þá sá hún auglýsta stöðu
kennara í sálfræði við FVA. „Ég
var á leið aftur í nám þegar ég sá
að það hafði losnað kennarastaða
við fjölbrautaskólann, og í
sálfræði þar að auki,“ sagði
Ingileif. Þórir sem þá var orðinn
skólameistari við skólann, réði
hana til starfa þrátt fyrir að hún
væri ekki komin með
kennsluréttindi og hefur hún
ætíð verið afar þakklát fyrir það.
„Mér fannst strax svo gaman,
og ég varð svo hugfangin af
þessu umhverfi, svo það varð
ekki aftur snúið.“
Góðar viðtökur og
nóg fyrir stafni
Þegar Ingileif hafði starfað við
FVA í fjögur ár langaði hana til
að breyta til. Tveir staðir komu
til greina; Suðurnesin eða
Skagafjörður. Henni leist betur
á Skagafjörð og flutti á Hofsós,
ásamt drengjunum sínum
tveimur, Óskari Þorgils og Oddi
og hóf störf við Grunnskólann
austan Vatna, þar sem hún tók
við sérkennslumálum. „Ég hafði
hugsað með sjálfri mér að prófa
að búa í Skagafirði í eitt ár en þá
kynntist ég eiginmanni mínum,
Sævari Steingrímssyni.“ Þar
með festi hún rætur hér í
firðinum. Sumarið 1994 fluttist
hún á Sauðárkrók, þar sem
fjölskyldan kom sér vel fyrir.
„Mér líkaði strax mjög vel að
búa hérna. Umhverfið er gott
og samfélagið er mjög sam-
heldið. Auk þess sem stærðin
var mjög þægilega kunnugleg,
svipuð og á Akranesi þegar ég
ólst upp,“ sagði Ingileif.
Ingileif ákvað að snúa sér
aftur að námi og varð uppeldis-
og kennslufræði fyrir valinu,
þar sem hún vildi afla sér
kennsluréttinda. Hún skráði sig
í fjarnám við Háskólann á
Akureyri og lauk náminu
meðfram vinnu á sambýlinu í
Fellstúni. Á því tímabili hafði
hún augastað á Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra og fékk að
vera þar í æfingakennslu. Árið
1995 losnaði kennarastaða við
skólann og hóf Ingileif þá störf
við skólann. Hún kenndi
sálfræði og uppeldisfræði og
fikraði sig hægt og rólega yfir í
námsráðgjöfina þar sem hún
var við afleysingar þegar hún
hóf meistaranám í náms- og
starfsráðgjöf, við Háskóla
Íslands. Árið 2001 losnaði
námsráðgjafarstaða við Árskóla
og þá ákvað hún að taka sér
ársleyfi frá FNV til að geta
unnið við námsráðgjöf með-
fram náminu. Þar kenndi hún
einnig náttúrufræði og sam-
félagsgreinar á unglingastigi.
Árið 2002 gerðist hún náms-
ráðgjafi við fjölbrautaskólann.
Síðar leysti hún aðstoðar-
Hjálpar ungu
fólki að finna sinn
farveg í lífinu
Ingileif Oddsdóttir er nýráðinn skólameistari
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra en hefur verið
starfandi við skólann frá árinu 1995