Feykir - 29.09.2011, Page 7
36/2011 Feykir 7
skólameistara af, skólaárið
2008-2009, þá kviknaði áhugi
hennar á stjórnun innan skóla-
kerfisins. Meðfram starfinu fór
hún í meistaranám í annað sinn,
nú í opinberri stjórnsýslu við
Háskóla Íslands. „Mér finnst
alveg nauðsynlegt að mennta
mig meðfram nýju starfi, þá fæ
ég mun meira útúr bæði starfinu
og náminu, það styður hvort
annað. Þá fæ ég endalausar
hugmyndir og get prófað þær
jafnóðum, það er mjög
praktískt!“ úrskýrði Ingileif. Það
hefur alltaf heillað Ingileif að
vinna með ungu fólki. „Á
þessum tímapunkti standa þau
á krossgötum. Þau eru svo
hugrökk og þeim finnst þeim
allar leiðir færar. Það er svo
ótrúlega gefandi að geta tekið
þátt í að hjálpa þeim að finna
sinn farveg í lífinu.“
Ingileif var komin á þann
stað að hana langaði að taka
næsta skref í starfsferli sínum.
Þá losnuðu skólameistarastöður,
bæði við FNV og við gamla
skólann hennar FVA. Hún sótti
um báðar stöðurnar. „Í mínum
huga komu einungis þessir tveir
skólar til greina, vegna þess að
ég á rætur í þeim báðum og þeir
eru mjög svipaðir í uppbyggingu.
En mig langaði meira að starfa
hér áfram, enda líður mér mjög
vel hér í Skagafirði,“ sagði
Ingileif. Ráðið var í stöðu
skólameistara FVA í sumar en
eins og margir vita urðu
talsverðar tafir á skólameist-
araráðningunni við FNV.
Ingileif og aðrir umsækjendur
fengu bréf frá menntamála-
ráðuneytinu í júlí þar sem sagði
að starfsmenn ráðuneytisins
væru á leið í sumarfrí og vegna
anna yrði ekki unnið í um-
sóknunum fyrr en eftir versl-
unarmannahelgi. Þann 15.
ágúst fór hún í starfsviðtal og
Tekið á móti bæjar- og sveitarstjórum landsins um miðjan mánuðinn.
þegar tveir dagar voru liðnir frá
skólasetningu, og skólastarfið
var komið á fullt skrið, kom
símtalið frá menntamála-
ráðherra sem tilkynnti henni að
hún yrði skipuð skólameistari
við skólann. „Það hefur allt
gengið mjög vel. Ég hef fengið
mjög góðar viðtökur bæði í
skólanum og nærumhverfi
hans,“ sagði Ingileif.
Forvera Ingileifar í starfi
skólameistara, Jón F. Hjartar-
son, bar á góma en hann starf-
aði við skólann í 32 ár. „Hann
vann hér mikið brautryðjenda-
starf og á heiður skilinn. Margir
gera sér ekki grein fyrir því hve
mikið þrekvirki hann vann,
skólinn var ekki einu sinni með
eigið húsnæði þegar Jón hóf
störf. Hann gerði skólann að því
sem hann er í dag.“
Ótrúlega mikið
námsframboð
Flestir nemendur fjölbrauta-
skólans eru af svæði Norðurlands
vestra, þar sem um 60% grunn-
skólanemenda af svæðinu hefja
nám við FNV. „Við stefnum að
því auka þá tölu upp í 75% og tel
ég það var alveg raunhæft
markmið miðað við það fjöl-
breytta námsframboð sem hér
er,“ sagði Ingileif. „Við erum
með ótrúlega mikið námsfram-
boð miðað við stærð skólans og
erum sífellt að bæta við. Nýjasta
framboðið er nám í hús-
gagnasmíði og bifvélavirkjun,
auk tveggja áfanga í kvik-
myndagerð. Þá komum við að
öðru markmiði okkar en það er
að auka sérstöðu skólans,“ sagði
Ingileif og útskýrði nánar:
„Við þurfum að geta boðið
upp á nám sem ekki er í boði
annars staðar. Gott dæmi um
slíkt námsframboð er kvik-
myndagerð. Kvikmyndagerð
hefur ekki verið kennd í fram-
haldsskólum landsins, aðeins
við Kvikmyndaskóla Íslands
sem er eins og allir vita
sérhæfður skóli. Skotta ehf.,
kvikmyndafjelag á Sauðárkróki,
hefur annast kennsluna við
kvikmyndanámið sem er í boði
við skólann. Verið er að vinna
að því að koma á námsbraut í
kvikmyndagerð og er það í
farvegi hjá ráðuneytinu. At-
vinnulífið á Norðurlandi vestra
hefur staðið þétt við skólann og
verið tilbúið að vinna að ýmsum
verkefnum með okkur. Nýjasta
dæmið um þetta er bifvéla-
virkjunin sem við kennum í
samstarfi við Bifreiðaverkstæði
KS. Auk þess má nefna að-
komu K-Taks að verkefnum í
húsasmíði. Með því að leiða
saman hesta okkar höfum við á
svo miklu að byggja. Þá hafa
skólastigin unnið að ýmsum
sameiginlegum verkefnum. Til
dæmis höfum við boðið upp á
áfanga í hestamennsku þar sem
hægt er að ljúka knapamerkja-
námi og höfum við verið í góðu
samstarfi við Hólaskóla í
tengslum við það.“
Ingileif hefur verið að skoða
möguleika fleiri viðbótum við
skólann. „Hingað til höfum við
staðið okkur mjög vel gagnvart
strákunum, með fjölbreyttu
úrvali af fremur karllægum
greinum. Nú langar mig að auka
námstækifæri fyrir stelpur en
það hefur sýnt sig að þær hafa
fremur verið að flytja af
landsbyggðinni. Við eigum að
skapa tækifæri fyrir sem flest
áhugasvið svo að sem flestir geti
fundið eitthvað við sitt hæfi,“
sagði Ingileif. Nú er verið að
kanna möguleika á að koma á
laggirnar hönnunarbraut í
samstarfi við atvinnulífið.
Þann 29. september verður
skrifað undir samning skólans
við Menntaáætlun Evrópusam-
bandsins upp á 32 milljónir
króna sem verður varið til að
koma á fót námi í plastiðnum á
Íslandi. Þetta verkefni er unnið í
samstarfi við skóla í Danmörku
og Finnlandi og hefst samstarfið
með fundi á Sauðárkróki dagana
3. til 5. október. Um þessa nýju
stefnu verknámsins sagði
Ingileif: „Skólinn hefur ætíð
kappkostað að bjóða upp á
framsækið nám eins og sjá má á
verkefnum sem framundan eru.
Í takt við nýjar áherslur í
verknámi við skólann þar sem
megin áhersla er lögð á notkun
tölvustýrðra tækja og tóla
stendur til breyta nafni verk-
námshússins í FNV hátækni-
menntasetur. Þetta verður gert
samhliða vígslu vinnustofu í
málmiðnadeild skólans, sem
hýsir tölvustýrða rennibekki og
fræsara frá fyrirtækinu HAAS.
Við hátíðlega athöfn þann 4.
nóvember næstkomandi,
kemur fulltrúi frá HAAS í
Þýskalandi til að votta fyrstu
hátæknivinnustofu við skóla á
Íslandi.“
Í lokin sagði Ingileif: „Ég
hlakka til að takast á við
komandi verkefni og mín
hugsjón er að tengja saman öll
skólastigin og atvinnulífið á
svæðinu enn frekar, ég tel að við
getum vel unnið meira saman.
Samvinnan kemur til með að
styrkja svæðið til muna og ber
ég miklar væntingar til þess. Við
erum með frábæran skóla og
mjög gott bók- og verknám. Ég
leyfi mér að fullyrða að við
erum með best búna verk-
námshús landsins,“ sagði Ingi-
leif um fjölbrautaskólann og
bætti við: „Við stefnum bara
uppávið, það er alltaf hægt að
bæta við og gera enn betur.“
/BÞ
Glæsileg aðstaða verknámshúss sem senn verður Hátæknimenntasetur FNV.
Skólameistari kynnir starfsemi skólans fyrir gestum.