Feykir - 29.09.2011, Blaðsíða 8
8 Feykir 36/2011
FNV og EXITED-verkefnið
Smíða
róbóta
Málmiðnaðardeild
FNV er þátttakandi í
Evrópuverkefninu EXITED
ásamt fimm öðrum skólum.
Verkefnið gengur út á
samstarf í hönnun og smíði
á færibandi þar sem þrír
róbótar munu mata inn á.
Dagana 14. til 17. september
sl. hittust allir þátttakendur
verkefnisins í FNV og fóru yfir
stöðu verkefnisins og þróuðu
það áfram. Þess má geta að
FNV fékk á fjórðu milljón í
styrk frá Comenius-sjóðnum í
verkefnið.
Þetta byrjaði með því að við
sóttum um í Comenius sem
veitti styrk fyrir þessu sex landa
verkefni, segir Geir Eyjólfsson
sem er í forsvari fyrir íslenska
hluta verkefnisins. Verkefnið
gengur út á það að setja saman
lyklakippu þar sem nemendur
FNV útbúa færibandið sem
notað verður við verkið.
Nemendur eru þegar búnir
að smíða færibandið og nutu
þeir tilsagnar málmiðnaðar-
kennaranna auk Geirs, Sigur-
björns Björnssonar og Björns
Sighvats.
–Þetta fer þannig fram að
nú hittast þessir sex skólar hér
hjá okkur, og við heimsækjum
þá. Það voru tólf karlar sem
komu frá skólum frá Tékklandi,
Belgíu, Þýskalandi, Danmörku
og Noregi. Í janúar förum við
á fund til Tékklands en mars
næstkomandi koma kennarar
og nemendur skólanna saman
í stórum kastala og þar verður
vélin sett saman þ.e.a.s. allir
partarnir sem hver skóli smíð-
aði settir saman, segir Geir
en þá kemur endanlega í ljós
hvernig verkið hefur gengið.
Sumir sjá um tölvuþáttinn aðrir
um rafmagnsþáttinn og svo
eru það smíðarnar. Það sem er
sérstakt við þetta að mati Geirs
eru samskiptin og tengslin sem
skapast við þá skóla sem eru að
gera sömu hluti og FNV, nota
svipaðar vélar o.þ.h. fyrir utan
það að þetta hvetur þá til að
smíða flókin tæki í þeim vélum
sem eru til staðar í skólanum.
–Nemendur eru afskaplega
spenntir fyrir þessu verkefni
og láta ekki sitt eftir liggja þó
kannski sé verið að svindla á
tímanum þeirra, segir Geir
en síðustu þrjú kvöld fyrir
heimsóknina unnu þeir fram
eftir á kvöldin og töldu það
ekki eftir sér.
Færibandið sem smíðað var
í FNV er þannig úr garði gert
að allir hlutar færibandsins
eru smíðaðir og settir á prófíl
og er það gert í svokölluðum
CNC tækjum. Það er byrjað á
því að teikna og hanna hlutinn
í sérstöku teikniforriti og síðan
er það fært yfir á þau tákn
sem vélarnar lesa og ég verð
að segja það að krakkarnir
eru ótrúlega fljótir að nema
þessa tækni. Þetta færiband er
afbrigðilegt að einu leyti fyrir
kollega okkar utan úr heimi
að færibandareimin er úr
steinbítsroði sem útbúin var í
Sjávarleðri. Þeir féllu í stafi er
þeir sáu það og reyndu að rífa
og slíta bandið þar sem þeir
trúðu ekki á styrkleika þess,
segir Geir sem telur það verða
gaman að koma með þessa
færibandareim út í heim þegar
vélin verður sett saman. /PF
Gripurinn skoðaður gaumgæfilega. Hlýraroðið vakti mikla athygli erlendu fulltrúanna.
Laglegur hópur hönnuða og smiða. Á sitthvorum endanum eru annars vegar Geir vinstra megin
og Sigurbjörn hægra megin en á myndina vantar Björn Sighvats.
Stórafmæli
Saknar þess að
geta ekki lesið
Lilja Gunnlaugsdóttir átti
stórafmæli á dögunum, en
hún varð 100 ára gömul þann
27. september. Hún segir að
sér líði vel og vera almennt
við góða heilsu.
Það helsta sem plagar hana
er að hún er orðin fremur
þróttlaus, á erfitt með gang
og sjónin er orðin léleg. „Það
er kannski það sem ég sakna
mest, mér fannst svo gaman
að lesa, ég hef alltaf verið svo
bókhneigð. Mér fannst líka
alltaf svo gaman að vinna í
höndunum; föndra, sauma
og prjóna en ég á ekki eins
gott með það lengur. Ég gríp
þó ennþá til prjónanna öðru
hvoru, það getur þó verið
svolítið erfitt þegar ég missi
niður lykkju,“ sagði Lilja og
hló.
Lilja er alin upp í Ytri-Kotum
í Norðurárdal og minnist hún
uppvaxtarára sinna þar með
hlýju. Fyrsta minning hennar
er frá því hún var um tveggja
ára og á bænum var vinnukona
sem sinnti henni mikið: „Hún
söng mikið fyrir mig og kenndi
mér mörg lög. Hún hét Rósa og
var systir Óla heitins, afa þeirra
Álftagerðisbræðra.“ Á Ytri-
Kotum var hvorki rafmang
né rennandi vatn og þurfti að
sækja vatnið langar leiðir. Lilja
bjó ekki við slíkan munað fyrr
en hún flutti að Áshildarholti
árið 1950.
Lilja á hvorki meira né
minna en 62 afkomendur.
Hún ól átta börn, tvö þeirra
missti hún á unga aldri en sex
þeirra komust á legg og eru öll
við góða heilsu enn þann dag
í dag. Lilja ljómaði í framan
þegar hún talaði um börnin
sín: „Það er það sem hefur
skipt mest máli, að börnin
manns eru öll við góða heilsu
og vegnað vel. Þau eru öll svo
vel gefin og hafa verið dugleg
að koma sér áfram í lífinu.“
/BÞ
Menning
Dansað og klappað
Útgáfutónleikar Multi
Musica voru haldnir í
Salnum í Kópavogi fyrir
skömmu en þangað
mættu um 170 gestir.
Tónleikarnir gengu frá-
bærlega að sögn Ásdísar
Guðmundsdóttur söngkonu
og forsprakka Multi Musica
og var mikil stemning frá
fyrsta lagi. -Gestirnir skemmtu
sér konunglega, og var stemn-
ingin svo mikil að í lokin voru
allir staðnir upp og klöppuðu
og dönsuðu með, segir Ásdís.
Fyrirhugað er að halda
útgáfuteiti á Króknum en
dagsetning er ekki komin á
hreint ennþá en það mun
verða haldið í hinu sögufræga
húsi Gúttó. -Þar verður svona
kósi, „unplugged“ stemning
og allir Skagfirðingar eru hér
með hvattir til að koma og
gleðjast með okkur, segir
Ásdís. -Fleiri tónleikar með
þessari dagskrá eru fyrirhug-
aðir á næstunni en ekkert sem
er komið á hreint enn þá. Þó
má segja frá því að hugur
okkar stefnir á að komast
vestur á Ísafjörð með tónleika.
Verið er að skipuleggja nýja
söngdagskrá sem verður með
alþjóðlegum blæ, en lesendur
fá að vita meira um það seinna
að sögn Ásdísar. /PF
Vestur Húnavatnssýsla
Sviðamessa framundan
Hin árlega Sviðamessa
„Húsfreyjanna“ á
Vatnsnesi verður haldin í
Hamarsbúð föstudaginn 7.
og laugardaginn 8. okt.,
einnig laugardaginn 15.
okt. ef næg þátttaka fæst.
Sem fyrr verða á borðum
ný, söltuð og reykt svið,
sviðalappir, kviðsvið ásamt
gulrófum og kartöflum. Borð-
hald hefst kl. 20:00 og er
miðaverði stillt í hóf en aðeins
kostar kr. 3000 í veisluna.
Eingöngu er tekið á móti
pöntunum í síma 451 2696 frá
og með 4. - 6. okt. og rennur
allur ágóði til góðgerðarmála í
héraði. Allir eru velkomnir.
/PF