Feykir - 29.09.2011, Síða 9
„Skín við sólu Skagafjörður“
er mottó þessa frjálsa og
skemmtilega hóps sem
kemur saman klukkan 10
á laugardagsmorgnum til
spjallfunda og kaffidrykkju.
Upphafsmenn þessara sam-
verustunda eru Hreinn
Sigurðsson, Sigfús Jónsson
af Mælifellsætt og Aggó í
Málmey, Anton Angantýsson.
Hugmyndina flutti Hreinn
suður á Faxaflóasvæðið, hafði
verið í kaffiklúbbi á Króknum
á Hótel Mælifelli um 14 ára
skeið. Þar hafði hugurinn
verið „hreinsaður“ lagðar
línur og tekist á um marga
hluti sem skilaði sér ferskt út í
samfélagið. Frá árinu 2003 hafa
nálægt 300 einstaklingar mætt
á kaffifundina en gestabók
liggur frammi og „ber“ öllum
að skrifa nafn sitt sem er
eina skyldan sem fylgir því
að taka þátt. Sigfús Jónsson
sonur Jórunnar Hannesdóttur
leikkonu á Króknum og Jóns
Siff í Syðri-Búðinni hefur reynst
mikil kjölfesta við að halda
utan um skipulagið. Sigurður
R. Antonsson, Lóli, hefur verið
í innsta kjarnanum ásamt
mörgum góðum mönnum
og konum. Allir hafa hringt í
„alla“ og enginn vill missa af
samverunni. Mætingin er oft
frá 20 – 40 einstaklingar og því
skemmtilegra sem fleiri mæta.
36/2011 Feykir 9
Kaffiklúbbur Skagfirðinga
Skín við sólu í samveru
og kaffidrykkju
Starfsárið 2011 – 2012 hófst
24. september s.l. á Hótel Sögu
og stendur til 5. maí 2012.
Lokafundurinn norðan Heiða
í Ljósheimum. Næsti fundur er
á Kaffitári í Njarðvík 1. október
þar verða Suðurnesjamenn
væntanlega fjölmennir með
Svenna í Árbæ, Bússa í Ketu,
Braga Pöllu og öll hin. Þá
er komið að Café Aroma í
Hafnarfirði 8. október. Þar eru
þungavigtarmenn Maggi og
Kiddi Aadnegard, Jens Everts
bróðir Snorra samlagsstjóra,
María systir Bjarna Har og
fleira gott fólk.
15. október átti að mæta
í Eden í Hveragerði en Eden
brann svo fundinn verður nýr
áningarstaður. Hótel Saga er
síðan staðurinn 22. október og
hringnum er lokað. Þá hefst á
ný hringekja á nefndum stöð-
um og svo koll af kolli fram á
næsta vor. Hægt er að fá skrá
yfir fundina hjá einhverjum
félaganna sem mæta og nefndir
hafa verið. Lyftið bara upp
símanum. Allir Skagfirðingar
vinir vandamenn og gestir,
ungir sem aldnir eru velkomnir
og hvattir til að láta sjá sig bæði
norðan og sunnanmenn.
Sá sem þessar línur skrifar
hefur mætt á allnokkra fundi
og haft af því mikla gleði.
Bjarni Har og Elli Hansen láta
fundi aldrei framhjá sér fara ef
þeir eru syðra. Spyrjið þá bara
hvort þetta sé ekki ómissandi
og gefi lífinu gildi í viðbót við
allt annað.
/Hörður Ingimarsson
„Kaffiklúbbur Skagfirðinga“ 7. maí 2011 í Ljósheimum. Á myndinni eru frá vinstri: Jóhannes Hansen, Bjarni Haraldsson, Sigfús Jónsson, Hólmfríður Runólfsdóttir, Sævar Einarsson, Þórunn
Friðfinnsdóttir, Stefán Guðmundsson, Knútur Aadnegard, Guðlaug Gunnarsdóttir, Stefán Pedersen, Margrét Jónsdóttir, Úlfar Sveinsson, Pétur Þórarinsson, Magnús Aadnegard, Karl Sveinsson,
Kristín I. Pálsdóttir, Páll Sveinsson, Þórður Þórarinsson, Jens Evertsson, Sigurjón Ingimarsson, Steinn Ástvaldsson, Reynir Hjörleifsson, Bragi Haraldsson, Sigríður K. Skarphéðinsdóttir,
Sigurður R. Antonsson, Guðný Þórðardóttir, Grétar Guðlaugsson, Erlendur Hansen, Eiríkur Sigurðsson. Mynd: hing
( ÁSKORENDAPENNINN ) berglindth@feykir.is
Sú framtíð sem
blasir við ungu fólki
á Íslandi í dag er
ekki björt ef litið er
til framtíðaráforma
ríkisstjórnarinnar –
frekari niðurskurður,
enn meiri hækkun
skatta, innköllun
aflaheimilda
og aðild að
Evrópusambandinu.
Þessar aðgerðir eru
þó allar gerðar undir
því yfirskini að verið
sé að gæta hagsmuna
okkar, einstaklinga,
fjölskyldna og
þjóðarinnar í
heild. En hver ætli
raunveruleikinn
sé? Gæti hugsast
að ríkisstjórnin hafi
einfaldlega ekki getu
til að takast á við
þann mikla vanda
sem blasir við og vilji
koma ábyrgðinni yfir
á Brussel, sama hvað
það kostar! Það er
allavega óhætt að
segja að aðlögunarferli
Íslands að
Evrópusambandinu sé
eina málið sem sinnt er
af krafti, já og auðvitað
skattahækkanir.
Áróðursvélar
ríkisstjórnarinnar hafa
verið settar á fullt og
reyna þær af miklum
krafti að sannfæra
okkur um að vandi
þjóðarinnar muni
hverfa og við getum
hallað okkur aftur og
lifað áhyggjulausu
lífi ef við treystum
Evrópusambandinu
fyrir framtíð okkar. Þar
muni hagsmunir okkar
þjóðar,
að sjálfsögðu, verða
settir ofar öðrum
hagsmunum. En
stöldrum nú aðeins við.
Er þetta ekki það sama
og sagt var við Grikki
þegar þeir gengu til
aðildar fyrir 25 árum?
Þá fengu bændur m.a.
styrki til að draga úr
mjólkurframleiðslu,
sem síðar leiddi til
þess að innflutningur
á mjólkurafurðum varð
nauðsynlegur. Er þetta
veruleiki sem við viljum
standa frammi fyrir
eftir nokkur ár? Erlend
fjárfesting í sjávarútvegi
og náttúrauðlindir á
forræði annarra þjóða?
„Undanþágur“ segja
margir sem er gott
og blessað, en við
verðum að gera okkur
grein fyrir að það er
ekki varanleg lausn.
Við munum aldrei,
ekki frekar en aðrir, fá
varanlegar undanþágur
hvað varðar landbúnað,
sjávarútveg eða aðrar
náttúruauðlindir.
Í mínum huga er það
ekki spennandi kostur
að búa í landi sem
stýrt er af aðilum sem
hafa enga hagsmuni af
því að þjóðin blómstri
og atvinnumál séu
í góðu standi. Auk
þess hefur það aldrei
talist sterk staða að
standa í samningum
við einhvern þegar
maður hefur ekki fullan
styrk. Því hvet ég alla
sem þetta lesa að sína
samstöðu og skrá sig
á heimasíðuna www.
skynsemi.is þar sem
skorað er á ríkisstjórn
Íslands að draga
aðildarumsókn að
Evrópusambandinu til
baka.
- - - -
Að lokum vil ég skora
á Ragnar Stefán
Rögnvaldsson að skrifa
næstu grein.
Guðjón Ebbi Guðjónsson er brottfluttur Skagstrendingur
Sýnum skynsemi – stöndum saman!