Feykir - 29.09.2011, Page 11
Akureyri. Rekstur frystihússins
hefur gengið vel. Byrjað verður á
nýju frystihúsi á næsta ári, en nýr
frystiklefi hefur nú þegar verið
tekinn í notkun. Rækjuvinnslan
hefur starfa í nokkur ár og
hefur gengið vel. Þar hefur auk
rækju verið unnin skelfiskur.
Skipasmíðastöð Guðmundar
Lárussonar er rekin af krafti.
Þar voru plastbátar smíðaðir, en
að undanförnu hafa þar verið
búnar til litlar sundlaugar og
„heitir pottar“. (Það má skjóta
því hér inn að Sauðárkróksbúar
þrá nú mjög að eignast heita
potta, sérstaklega eftir að þeir sáu
myndina um Snorra Sturluson.)
Af byggingaframkvæmdum
er það að segja að verið er að
hefjast handa um byggingu14
verkamannabústaða og eiga þeir
að verða tilbúnir fyrir árslok ́ 82.
Haustið 1980 var tekið í notkun
ný álma í skólahúsinu og er enn
ólokið við neðri hæðina. Næsta
verkefni verður svo íþrótta- og
sundlaugarhús, en sundlaug
sú sem nú er notuð er léleg og
aðeins opin einn mánuð á ári.
Grunnur hefur verið lagður að
kirkju og hafa margir unnið
að honum í sjálfboðavinnu.
Skagaströnd hefur það fram
yfir ýmsa staði að þar er
leikskóli nógu stór til að taka
við öllum börnum á staðnum.
–Hvað um unglingana? „Þeir
eru heimakærir. Þeir þurfa að
sækja 9. bekkinn annað og
sömuleiðis allt framhaldsnám.
En þó að þeir fari burt um
stundarsakir vilja þeir koma
aftur. Þeir eru samhentir og
tengdir átthögunum traustum
böndum.“
36/2011 Feykir 11
Úr 4. tbl. Feykis 7. september 1981. Feykismenn fóru til Akureyrar og hittu Guðbrand Magnús-
son, síðar ritstjóra Feykis, til skrafs og ráðagerða.
Gamall Feykir
„Algjör hryllingur“
Byggðamál báru talsvert á
góma á þingi SSNV fyrir 10
árum síðan. Meðal annars kom
til umræðu kynning sem ný-
lega var gerð á borgarskipulagi
Reykjavíkur til
2024, en þar er gert
ráð fyrir að fjölgi
um 60.000 manns
á þessu tímabili.
Þar af komi 30.000 manns utan
af landsbyggðinni og jafnmargir
íbúar Reykjavíkur verði til við
„náttúruleg skilyrði“ eins og það
var kallað á þinginu. Nokkrir
fulltrúar landshlutasamtakanna
voru gestir á umræddum fundi
um kynningu borgarskipu-
lagsins, og fannst þeim þessi
spádómur “algjör hryllingur“
svo vitnað sé til orða Smára
Geirssonar Austfirðings.
Seinlegt að tína fjallagrös á
húnvetnsku heiðunum
„Þetta var ákaflega seinlegt og
okkur tókst ekki að ná nema 250
kílóum. Það eru ekki sömu gras-
flákarnir hérna og fyrir austan“,
sagði Vigdís Ágústsdóttir á Hofi
í Vatnsdal um fjallagrasatínslu
á húnvetnsku heið-unum
sumarið 1991,
aðallega Gríms-
t u n g u h e i ð i .
Með Vigdísi
voru í tínslunni
nafna hennar Bergsdóttir
frá Bjarnastöðum og Kristín
Marteinsdóttir frá Giljá. Það
var Vilkó á Blönduósi sem
hafði milligöngu um útflutning
fjallagrasa annað árið í röð
til þýskrar lyfjagerðar. Það
sem upp á vantaði fengu þeir
Vilkómenn hjá grasafólki fyrir
austan. Vigdís sagði að það sem
greitt væri fyrir hreinsuð og
þurr grös til útflutnings alltof
lítið, enda borguðu verslanir í
Reykjavík meira fyrir vöruna.
„Við náðum ekki tímakaupi út
úr þessu, en fengum að vísu
útiveruna í kaupbæti,“ sagði
Vigdís fyrir 20 árum.
Dó vegna vinnu
Í Feyki sem kom út föstudaginn
25. september árið 1981
segir að Elín Njálsdóttir hafi
gengist undir að vera ásamt
öðrum, fréttamaður Feykis
á Skagaströnd.
Af atvinnu sagði
Elín það helst
að nóg væri að
gera, svo mikið
að Lionsklúbburinn dó
vegna vinnu og tímaleysis
félagsmanna. Skákfélagið og
bridgefélagið kvað hún einnig
eiga í vök að verjast. Mest fer
fyrir sjávarútveginum. Skag-
strendingar eiga einn togara,
Arnar, og von er á öðrum um
áramótin frá Slippstöðinni á
Feykir spyr...
Fórstu í
berjamó
í haust?
Kristín Ögmundardóttir:
Já, ég fór upp í Skógarhlíð.
Þar var mikið af
óþroskuðum berjum.
- - - -
Ólafur Sævarsson:
Nei.
- - - -
Sigrún Angantýsdóttir
(Silló):
Nei, ég hef alltaf farið en
fór ekki í ár. Maðurinn
minn fór þó.
- - - -
Inga Rut Hjartardóttir::
Nei.
- - - -
Lumar þú á góðri
spurningu fyrir Feyki?
Sendu okkur línu á
feykir@feykir.is
Oddvitinn
Eigi verður jakki frakki
nema síður sé.
Feykir fyrir
10
árum
Feykir fyrir
20
árum
Feykir fyrir
30
árum
Fe
yk
ile
g
a
f
lo
tt
a
af
þr
e
yi
ng
ar
ho
rn
ið
Já
, r
ey
nd
u
þi
g
vi
ð
þe
tt
a!
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina
sleppur við uppvaskið í kvöld!
Spakmæli vikunnar
70% af öllum árangri í lífinu næst með
því að mæta á staðinn. - Woody Allen
Sudoku