Feykir - 23.08.2012, Page 13
31/2012 Feykir 13
Heilir og sælir lesendur góðir.
Fyrsta vísan að þessu sinni er trúlega mörg-
um kunn af þeim sem eldri eru. Stendur fast
í mér að Lárus Salómonsson Kópavogsbúi
sé höfundur hennar.
Fæst ei breytt um forlög neins
fingur lífs þau teyma.
Stundum rennur elfan eins
og aðföll hennar streyma.
Held að þessi sé einnig eftir Lárus.
Ævi skörin brotnar breið
blóðug gerist slóðin.
Öll við förum eina leið
yfir fjörumóðinn.
Oft gleður það undirritaðan að rifja upp
vísur eftir snillinginn Jón Rafnsson. Þessi
hringhenda held ég að sé eftir hann.
Andans flótti ógnar mér
orðagnóttin flúin.
Njörvadóttir nálgast fer
nærri þróttur búinn.
Sigurgeir Þorvaldsson var kunnur
hagyrðingur úr Keflavík hér á árum áður.
Held að þessi sé eftir hann.
Eitt sinn hitti maður mann
mann, sem enga þekkti.
Þekkti enginn heldur hann
hann því alla blekkti.
Kannski er Sigurgeir að blekkja sjálfan sig
er hann yrkir þessa.
Maður nokkuð yngist upp
eftir hverja stöku.
Makans strýkur mjúkan hupp
milli svefns og vöku.
Síðar kom í ljós að strokurnar voru vel
þegnar og þá kemur þessi.
Allt mitt færi illa geð
æpti mærin Hulda.
Ef ég væri ekki með
einhvern lærakulda.
Það er sá góði vísnavinur og Skagfirðingur
Sveinn Skagfjörð Pálmason sem er
höfundur að næstu vísu. Mun hún ort eftir
aðalfund í Skagfirsku söngsveitinni þar sem
Sveinn féll úr stjórn.
Ljóðadísin líður skort
lífsbaráttan harðnar.
Ég get bara ekkert ort
eftir kosningarnar.
Til Kirkjukórs Sauðárkróks yrkir Sveinn
þessa.
Hér er veisla vegleg stór
vonum glaðir sitjum.
Þessum heiðurs kirkjukór
kærar þakkir flytjum.
Þegar aldur færist yfir yrkir Sveinn.
Vísnaþáttur 576
Ellin þjónar eðli sínu
oft mig hefur grunað að.
Geri ljóð að gamni mínu
get bara ekki munað það.
Elli kvíða gerum grín
gleðin tíður draumur.
Áfram líði ævin þín
eins og blíður straumur.
Það er Þórarinn Þorleifsson áður bóndi á
Skúfi í Norðurárdal sem er höfundur að
næstu vísu.
Hestar frýsa, hrekkur grjót
heim er vísust áttin.
Hugarlýsing, heilsubót
hófa rís við sláttinn.
Önnur vísa kemur hér eftir Þórarinn.
Ekkert reynir anda manns
undir sig að kúga.
Eins og þetta andskotans
amstur við að búa.
Þorsteinn Ásgrímsson bóndi á Varmalandi
í Skagafirði mun einhverju sinni hafa sent
vini sínum vestan fjalla þessa kveðju.
Veitt það gleði gæti hér
gumi braga slyngi,
ef þú sendir aftur mér
eina úr Húnaþingi.
Það mun hafa verið Þorvaldur Þórarinsson
frá Hjaltabakka sem orti þessa kunnu vísu.
Auðs þó njóti ekki hér
allt á móti gangi.
Sú er bótin að ég er
oft með snót í fangi.
Önnur vísa kemur hér eftir Þorvald og
mun hann vera þar að svara sóðakveðskap
frá Elivoga Sveini.
Sveini er ekki sultar hætt.
Sá hefur nóg að tanna.
Meðan bara er bitastætt
í bökum nágrannanna.
Þórarinn Bjarnason frá Syðri – Þverá yrkir
svo magnaðar vísur um pólitíkina.
Rits í skærum rök ei sýnd
rógs þar klær um læðast.
Trú og æra auri klínd
úlfar gærum klæðast.
Æran glatast ýmsum hjá
í því Satans vígi.
Þar sem matað allt er á
öfund, hatri og lygi.
Gott að leita til Bjarna í Gröf með lokavísuna.
Syndugur maður segir frá
sínum ævidögum.
Gegn um lífið gekk hann á
guðs og manna lögum.
Verið þar með
sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Hópþrektímar sem
hafa slegið í gegn
Metabolic á Blönduósi
Hrefna Aradóttir, ÍAK
einkaþjálfari og Erla
Jakobsdóttir, íþróttafræð-
ingur bjóða Blönduósing-
um uppá Metabolic
námskeið sem hefur slegið
í gegn um allt land.
Helgi Jónas Guðfinnsson,
kennari við ÍAK einkaþjálf-
aranámið hjá Keili, körfu-
bolta- og styrktarþjálfari
hannaði námskeiðið og hafði
það að leiðarljósi að nám-
skeiðið ætti að vera árangurs-
ríkt, skemmtilegt, markvisst
og öruggt.
Metabolic námskeiðið
hefst 27. ágúst. Í boði verða 5
tímar í viku; mánudaga og
þriðjudaga kl. 19:00, mið-
vikudaga kl. 6:15, fimmtu-
daga kl. 18:00 og föstudaga
kl. 6:15. Kennt verður í
Íþróttamiðstöðinni á Blöndu-
ósi.
Um hvað snýst þetta nýja
líkamsræktaræði?
„Við vonumst til að þetta verði
ekki enn eitt æðið heldur sé
komið til að vera,“ segja þær
Erla og Hrefna. „Þegar okkur
bauðst að kenna Metabolic
hér á Blönduósi urðum við
strax mjög spenntar og fannst
þetta kjörin viðbót við
líkamsræktarflóruna hérna.
Heitið á námskeiðinu, Meta-
bolic, þýðir í raun bara efna-
skipti en eitt aðal markmið
Metabolic tímanna er að auka
hraðann á efnaskiptum = að
auka fitubrennslu. Í tímunum
taka allir vel á því í stuttan
tíma í einu með hléum á milli,
svokölluð skorpuþjálfun
(interval) en slík þjálfun skilar
fitubrennslu í marga klukku-
tíma eftir æfinguna, mun
meiri brennslu heldur en
æfingar með jöfnu álagi.“
Fjölbreytt námskeið
Námskeiðið er mjög fjöl-
breytt og byggir á þjálfun á
mismunandi orkukerfum og
er unnið með fitubrennslu,
kraft, styrk og þol svo dæmi
sé tekið. „Rauði þráðurinn í
gegnum alla tímana er að allar
æfingarnar eru það sem
kallast starfrænar (functional)
sem þýðir að þær líkjast
daglegum hreyfingum okkar
sem mest. Flestir finna fyrir
einhverjum stoðkerfisverkj-
um eins og eymslum í öxlum
eða baki en í starfrænni
þjálfun er mikil áhersla lögð á
að styrkja djúpvöðvakerfið og
því ætti fólk að finna mikinn
mun á sér þegar það fer að
gera æfingarnar sem við
leggjum upp með á nám-
skeiðinu. Öll höfum við þá
eiginleika að geta sprettað,
hoppað og verið sterk en ef
við gleymum að þjálfa þessa
eiginleika tapast þeir,“ segir
Hrefna.
Þarf maður þá ekki að vera í
hörku formi til að geta
stundað Metabolic?
„Nei, alls ekki. Kosturinn við
æfingarnar er að það stjórnar
hver og einn sínu álagi. Þú
einfaldlega notast við léttari
þyngdir eða ferð þér hægar ef
íþróttamaðurinn í þér er í
dvala. Eins má mjög auðveld-
lega breyta æfingunum ef fólk
er með eymsli í t.d. baki eða
hnjám. Áhöldin sem við
notumst við í tímunum eru
m.a. teygjur, ketilbjöllur,
sandbjöllur og kaðlar. Fólk
einfaldlega velur sér þyngdir
sem því hentar. Það á enginn
að vera í of góðu formi fyrir
tímana eða of slæmu.“
Nánar má lesa um
námskeiðið á metabolic.is og
þar fer skráning líka fram.
„Við erum líka á Facebook
undir „Metabolic Blönduósi“
– endilega fylgist með okkur
þar líka,“ segir Hrefna að
lokum.
Boðið var upp á fría prufutíma í vikunni og voru viðtökur mjög góðar. Mynd: Hrefna