Feykir - 30.08.2012, Qupperneq 2
2 Feykir 32/2012
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Sveitarfélagið Skagafjörður
Sigurjón kærir
meirihlutann
Sigurjón Þórðarson fulltrúi
Frjálslyndra í sveitarstjórn
Svf. Skagafjarðar hefur kært
meirihlutann fyrir að halda
gögnum frá kjörnum full-
trúum og brjóta 28. grein
sveitarstjórnarlaga sem segir
að sérhver sveitarstjórnar-
maður eigi rétt á að kynna
sér gögn og upplýsingar sem
fyrir liggja í stjórnsýslu
sveitarfélags og varða málefni
sem komið geta til umfjöll-
unar í sveitarstjórn.
„Það er búið að halda frá
okkur gögnum sem viðkemur
nýbyggingu við Árskóla,“ segir
Sigurjón en að hans mati getur
þetta leynimakk ekki þjónað
hagsmunum íbúa héraðsins.
„Við höfum ekki fengið upp-
lýsingar um málið þótt við
höfum farið fram á það á
fundum og svo eigum við að
taka einhverjar ákvarðanir á
sveitarstjórnarfundi í dag. Þetta
sýnir einhver annarleg viðhorf
hjá hjá þeim sem halda um
stjórnartaumana,“ segir Sigur-
jón ómyrkur í máli. /PF
Nú á laugardaginn fá
Tindastólsmenn lið Leiknis
Reykjavík í heimsókn en
Leiknir er 5 stigum á eftir
Stólunum og nú þegar aðeins
fjórar umferðir eru eftir í
deildinni er þessi leikur afar
mikilvægur báðum liðum.
Með sigri færu Stólarnir
langt með að tryggja sæti sitt í
deildinni en Leiknis-sigur
mundi hleypa öllu í bál og
brand í botnbaráttunni. Segja
má að fimm lið berjist fyrir
sæti sínu í deildinni og standa
Reykjavíkurliðin ÍR og Leiknir
verst að vígi. Höttur, Tindastóll
og BÍ/Bolungarvík eru á
hættuslóðum og hafa ekki
tryggt sæti sitt í deildinni.
Stuðningsmenn Tindastóls
eru hvattir til að fjölmenna á
Sauðárkróksvöll á laugardag-
inn kl. 14 en Kaupfélag Skag-
firðinga býður á völlinn og það
eina sem fólk þarf að gera er að
klippa frímiðann (gildir fyrir
alla í fjölskyldunni) út úr
Sjónhorninu og afhenda við
innganginn að vellinum. Fjöl-
mennum og hvetjum strákana
til sigurs! /ÓAB
LEIÐARI
Sykurskattur
Sykurneysla landans er mikil enda framboðið af sykruðum
matvælum fjölbreytt. Fjölmiðlar hafa eftir heimilislækninum
Vilhjálmi Ara Arasyni að ofþyngd og offita í vestrænum
ríkjum sé mest vegna ofneyslu á sykri sem að lokum leiði oft
til sykursýki. Leggur Vilhjálmur til að lagður verði á sykur-
skattur og lög sem hámarka stærðir á gosflöskum. Þarna tel ég
að Vilhjálmur sé á villigötum. Árið 2007 voru sett vörugjöld
m.a. á sælgæti, ís, sykur, kakó, sætt kex, gos, kolsýrt vatn, safa,
sultur og grauta. Bar það árangur? Ég held ekki. Mun há-
marksstærð á gosflöskum grenna þjóðina? Ég held ekki. Það
sem þarf að gera er að fræða fólk um þær vörur sem innihalda
sykur. Það getur svo valið hvort vörunnar sé neytt eða ekki.
Kókið er oft tekið sem dæmi um óholla sykurvöru enda
inniheldur það meira en 10% af kolvetnum í formi sykurs eða
10,6 gr. En kíkjum aðeins í ísskápinn. Venjulegur Svali inni-
heldur 10,7 gr., Pepsí 10.9 gr., Heimilisjógúrt með skógarberja-
bragði 11.9 gr. og Engjaþykkni 17,9 gr. af kolvetnum svo
eitthvað sé nefnt. Margar aðrar vörur falla í sama sykurflokkinn
en þetta var í mínum skáp án þess að ég gerði mér grein fyrir
sykur-magninu. Þarna gæti verið um önnur kolvetni að ræða
en hreinan sykur, hvað veit ég. Það þarf engan sykurskatt á
þessi matvæli heldur upplýsa fólk um skaðsemi sykurneyslu.
Páll Friðriksson
ritstjóri
Kaupfélag Skagfirðinga býður á völlinn
Allir á völlinn
og áfram Tindastóll
Austur Húnavatnssýsla
Hitaveitu-
dagar á
Skagaströnd
Opið hús og kynning á
væntanlegri hitaveitu
verður í Íþróttahúsinu á
Skagaströnd á morgun
föstudaginn 31. ágúst frá
kl. 14-18 og laugardaginn
1. september frá kl. 10-16.
„Komið og fræðist þar
sem ýmsir sérfræðingar í
hitaveitumálum sitja fyrir
svörum,“ segir á heimasíðu
Skagastrandar en að fundin-
um standa Svf. Skagaströnd
og RARIK. /BÞ
Norðurland vesta
Nýnema-
dagar í
Hólaskóla
Nú stendur fyrsta vika nýs
skólaárs yfir hjá Hólaskóla
og voru nýnemar í öllum
deildum kvaddir heim að
Hólum til að kynna fyrir
þeim það sem framundan
er, og styðja þá fyrstu
sporin í náminu.
Á heimasíðu segir frá því
þegar slegið var á léttari
strengi í góða veðrinu í
vikunni og tíminn nýttur til
að hrista hópinn saman og
um leið að kynna Hólastað
fyrir nýnemunum. Það voru
staðnemar í 3. árs nám-
skeiðinu Útivist og upplifun,
undir leiðsögn Pálínu Ó.
Hraundal, sem héldu utan
um þessa dagskrá. /BÞ
Byggðasamlag um málefni
fatlaðra á Norðurlandi vestra
auglýsir eftir þátttakendum í
sérstakt þróunar- og tilrauna-
verkefni um notendastýrða
persónulega aðstoð (NPA) á
þjónustusvæði
byggðasamlagsins.
Í tilraunaverkefninu geta
tekið þátt þeir sem eiga
lögheimili í Dalvíkurbyggð,
Fjallabyggð, Sveitarfélaginu
Skagafirði, Akrahreppi, Skaga-
byggð, Sveitarfélaginu Skaga-
strönd, Blönduósbæ, Húna-
vatnshreppi og Húnaþingi
vestra.
Á vef Skagafjarðar segir að
samtök fatlaðs fólks hafi lengi
talað fyrir þessu fyrirkomulagi
sem nauðsynlegum valkosti.
NPA felur í sér að notandinn
fær greiðslur í stað þjónustu,
velur sér og ræður aðstoðarfólk
sjálfur, sér um verkstjórn,
ákveður sjálfur hvernig aðstoð-
arfólk nýtist.
Umsóknarfrestur um
þátttöku í verkefninu er til 7.
september 2012 og skulu
umsóknir berast til viðkomandi
félagsþjónustu en þar er hægt
að fá umsóknareyðublöð og
allar nánari upplýsingar. /PF
Notendastýrð persónuleg aðstoð fyrir fatlað fólk
Sérstakt tilrauna-
verkefni fer í gang
Blönduós
Framarar
æfa
Meistaraflokkur Fram í
handbolta kvenna munu
æfa í Íþróttamiðstöðinni á
Blönduósi frá og með
deginum í dag, fimmtu-
daginn 30. ágúst til
sunnudagsins 2. sept.
Í liðinu eru nokkrar lands-
liðskonur en þeirra á meðal er
Sunna Jónsdóttir barnabarn
Sigríðar Baldursdóttur og
Ingva Þórs Guðjónssonar
málarameistara á Blönduósi.
Samkvæmt Húna.is munu
Fram stelpurnar spila æfinga-
leik kl. 18:00 föstudaginn 31.
ágúst á móti Þór/KA. Eru allir
hvattir til að mæta og horfa á
leikinn. /BÞ
Húnavatnssýslur
Afhending styrkja
úr Húnasjóði
Afhending styrkja úr Húna-
sjóði fór fram sl. mánudag,
20. ágúst, á Kaffihúsinu
Hlöðunni á Hvammstanga.
Samkvæmt heimasíðu
Húnaþings vestra fengu átta
nemar sem úthlutað úr
sjóðnum að þessu sinni og
fékk hver þeirra 100.000 kr.
Þau sem hlutu styrk eru
eftirtalin: Auðunn Ingi Ragnarsson,
nemi í landfræði, Kollsá 2. Benóný Þór
Björnsson, nemi í sálfræði, Hvamms-
tanga. Daníel Trausti Róbertsson, nemi
í uppeldis- og kennslufræðum,
Hvalshöfða. Leifur George Gunnarsson,
nemi í hestafræðum, reiðkennaranámi,
Hvammstanga. Sigurður Hólm Arnar-
son, nemi í leiklistarnámi, Hvamms-
tanga. Sigurður Helgi Oddsson, nemi í
tónsmíðum, píanóleik og hljómsveitar-
stjórnun, Hvammstanga. Unnur Helga
Marteinsdóttir, nemi í leikskólakenn-
arafræðum, Hvammstanga. Þórunn
Helga Þorvaldsdóttir, nemi í leik-
skólakennarafræðum, Akurbrekku. /PF
Styrkir afhendir úr Húnasjóði á Hlöðunni, Hvammstanga 20. ágúst 2012. Mynd: Hunathing.is