Feykir


Feykir - 30.08.2012, Blaðsíða 5

Feykir - 30.08.2012, Blaðsíða 5
32/2012 Feykir 5 ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS > www.feykir.is/ithrottir Knattspyrna 1. deild : Sigur og tap hjá Tindastóli Tindastólsmenn voru ekki lengi að hrista af sér ógleðina eftir stórt tap gegn Víkingum í síðustu viku því þeir hirtu öll stigin sem í boði voru á Sauðárkróksvelli sl. laugar- dag þegar lið Fjölnis úr Grafarvoginum kom í heim- sókn. Gestirnir hafa verið í toppbaráttu 1. deildar í sumar en frábær barátta og dugnaður heimamanna skóp mikilvægan sigur og örlítið andrými í baráttunni fyrir áframhaldandi sæti í 1. deild. Á 29. mínútu voru gestirnir, sem voru sterkari aðilinn framan af leik, kærulausir í spilinu og Stólarnir unnu boltann á góðum stað, Steven Beattie gerði vel og kom boltanum á Colin Helmrich sem náði að stinga sér inn fyrir vörn Fjölnis og gerði laglegt mark. Eftir þetta dofnaði heldur yfir gestunum og Tindastóls- menn hefðu getað bætt við mörkum. 1-0 í hálfleik. Fjölnismenn pressuðu talsvert undan vindi í síðari hálfleik en Stólarnir voru farnir að vinna sig inn í leikinn þegar jöfnunarmark Fjölnis kom en þá tók Viðar Ari Jónsson boltann á brjóstið og lét síðan vaða á markið af um 30 metra færi. Það var svo á 85. mínútu sem Beattie komst inn fyrir vörn Fjölnis og skilað boltanum laglega í markið og stuðningsmenn Stólanna heldur betur kátir. Fjölnismenn reyndu hvað þeir gátu til að jafna en virkuðu frekar þreyttir á lokakaflanum og það gekk lítið hjá þeim að senda boltann inn á teig Tindastóls því leikmenn Tindastóls létu ekkert framhjá sér fara. Lokatölur því 2-1 og sigurinn sanngjarn því heima- menn sköpuðu sér betri færi. Tap gegn Þórsurum Tindastóll sótti síðan Þór Akur- eyri heim sl. þriðjudagkvöld og unnu heimamenn þar þægilegan 4-0 sigur en Þórsarar réðu ferðinni allann leikinn. Orri Freyr Hjaltalín skoraði eina mark fyrri hálfleiks, en í þeim síðari gerðu þeir Ármann Pétur Ævarsson, Krstinn Þór Björns- son og Jóhann Helgi Hannes- son sitt markið hver. /ÓAB Fjölnismenn stigalausir heim Myndarlegur hópur unglingadeildar GSS. Meistaraflokkur Tindastóls kvenna fékk HK/Víking í heimsókn sl. föstudag og lék sinn síðasta leik í 1. deildinni þetta tímabil. Leikurinn einkenndist af baráttu heimastúlkna í vörninni í fyrri hálfleik sem sjaldan komust yfir miðju á móti sterkum andstæðingum sem og sterkum mótvindi. Gestirnir voru nánast í sókn allan fyrri hálfleik og voru klaufar að skora ekki úr þeim dauðafærum sem þeir fengu. Skot í stöng og rétt framhjá og yfir markið við markteig. Vörn heimastúlkna lék stórt hlutverk í leiknum sem og Kristín Halla sem stóð á milli stanganna og varði vel en hún hefur átt gott tímabil í sumar. Í seinni hálfleik léku heimastúlkur undan vindinum og náðu að rétta úr kútnum með nokkrum góðum sóknum en voru óheppnar að skora ekki úr þeim færum sem þær fengu. Hæglega hefðu þær getað stolið sigrinum undir lokin en þá fengu þær tvö góð færi, skot af löngu færi sem markmaður gestanna náði að verja naumlega svo eftir aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig en litlu mátti muna að sóknarleikmenn Tindastóls náðu að pota boltanum inn. Pétur Björnsson þjálfari, eini maður leiksins sem fékk áminningu eftir að hann setti út á dómarann, var ánægður með stigið og má vel við una eftir ágætt gengi liðsins í sumar. Vann liðið 4 leiki og gerði 1 jafntefli og enduðu í 7. sæti með 13 stig. /PF 1. deild kvenna : Tindastóll - HK/Víkingur 0-0 Jafntefli hjá stelpunum Borgunarbikarinn Þrjár skag- firskar unnu bikarinn með Stjörnunni Stjarnan úr Garðabæ varð bikarmeistari kvenna í knattspyrnu í fyrsta skiptið er liðið lagði Val í hörkuspennandi úrslitaleik á laugardag 1 – 0. Í liðinu leika þær systur, Inga Birna og Elva Friðjónsdætur Bjarnasonar læknis og Auðar Aðalsteinsdóttur sjúkraþjálfara á Sauðárkróki og í liðsstjórninni situr Margrét Guðný Vigfúsdóttir Vigfússonar fyrrum hótelstjóra og Lovísu (Lollu) Björnsdóttur í Blómabúðinni á Króknum. Inga Birna og Elva hófu báðar sína knatt- spyrnuferla með Tindastól en héldu svo á vit ævintýranna, til Akureyrar, þar sem Inga Birna lék eitt tímabil með Þór/KA/KS en fór þá til Breiðabliks en hefur verið í Stjörnunni frá árinu Golfklúbbur Sauðárkróks hélt uppskeruhátíð sína fyrir barna-og unglingastarf klúbbsins mánudaginn 20. ágúst sl. í golfskálanum á Hlíðarendavelli í blíðskapar- veðri, 25° hiti og logn. Þrjátíu voru skráðir í golf- skólann í sumar í lengri eða skemmri tíma. Þá voru einnig 8-12 krakkar í hverri viku sem tóku þátt í námskeiðum á vegum SumarTím sem fóru fram á golfvellinum milli kl. 8 og 9:30 alla mánudaga til fimmtudaga. Flestir þeirra sem tóku þátt í golfskólanum í sumar mættu á uppskeruhátíðina ásamt for- eldrum sínum. Að venju fengu allir viðurkenningar fyrir sumarið. Farið var yfir helstu viðburði sumarsins og Thomas fór yfir starfið og golfkennsluna. Síðan veitti Thomas sérstakar viðurkenningar fyrir sumarið. Fyrir bestu ástundun nýliða hlaut Arnar Freyr Guðmunds- son sérstaka viðurkenningu. Fyrir bestu ástundun sumarsins hlaut Hákon Ingi Rafnsson sérstaka viðurkenn- ingu. Þá voru veittar viðurkenn- ingar fyrir mestu framfarir í sumar en fjölmargir hafa lækkað forgjöf sína mikið í sumar. Atli Freyr Rafnsson og Matthildur Kemp Guðnadóttir hlutu þessar viðurkenningar. Að endingu voru útnefndir bestu kylfingar sumarsins í golfskólanum. Í flokki drengja hlaut Elvar Ingi Hjartarson þessa nafnbót en í flokki stúlkna var það Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir sem var útnefnd. Að lokum var haldin heljarinnar pizzuveisla fyrir allan hópinn. Segja má að sumarið hafi gengið mjög vel á golfvellinum og veðrið lék við okkur ólíkt því sem var í fyrra. Þó klúbburinn hafi verið með erlendan þjálfara þá kom það ekki að sök í samskiptum við krakkana þar sem það voru alltaf unglingar til staðar sem aðstoðuðu og miðluðu þekkingu til krakkana frá þjálfara ef á þurfti að halda. Það er því von klúbbsins að allir hafi haft bæði gagn og gaman af sumrinu og komi tvíefld á næsta ári í golfskólann. /HG Ungir kylfingar í GSS Tímabilið gert upp Drangeyingar fengu lið Afríku í heimsókn á Krókinn á laugardaginn. Ekki reyndist Afríka mikil fyrirstaða, leikmenn Drangeyjar komust í 10-0 á 87. mínútu og Afríka aldrei líkleg til að jafna. Guðni Þór fyrirliði gerði fyrsta markið á 17. mínútu og Bjarki Már bætti einu við áður en Nuno Miguel Jardim Lopes fékk að líta rauða spjaldið. Guðni og Bjarki skoruðu síðan aftur og Ingvi Rafn kom heimamönnum í 5-0 og þannig stóð í hálfleik. Hilmar Kára og Ingvi Rafn gerðu næstu tvö mörk áður en markmannin- um Óla Grétari var hleypt fram til að taka víti sem hann gerði sér lítið fyrir og skoraði úr. Það voru síðan Hólmar Skúla og Ísak Sigurjóns sem gerðu mörk númer 9 og 10 og gulltryggðu öruggan sigur. Um næstu helgi ræðst hvort Drangey spilar í nýrri 3. deild en nk. laugardag mætir Drangey öflugu liði Augna- bliks úr Kópavogi en leikið verður á Skallagrímsvelli í Borgarnesi laugardaginn 1. september kl. 16:00. /ÓAB Knattspyrna 3. deild Drangey í aukakeppni 2006. Elva lék með Þór/KA frá 2008 en gekk til liðs við Stjörnuna fyrir þetta tímabil. Saga Margrétar Guðnýjar er á sömu nótum og systranna þar sem hún lék eitt tímabil á Akureyri eftir að hún kvaddi herbúðir Tindastóls en fór þá til Stjörnunnar árið 2005. Í dag er Margrét aðstoðarliðsstjóri hjá Stjörnunni en leikur með ÍR í fyrstu deildinni á lánssamningi meðan hún kemur sér í gang eftir meiðsli sem hefur verið að hrjá hana í nokkur misseri. /PF Inga Birna, Elva og Margrét Guðný. Mynd: Lilla Lange

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.