Feykir - 30.08.2012, Blaðsíða 3
32/2012 Feykir 3
SAMVINNUBÓKIN og KS-BÓKIN
Þrír góðir kostir
til að ávaxta spariféð sitt
Ártorgi 1 550 Sauðárkróki & 455 4515
KS-bókin er með 2,25% vexti,bundin í 3 ár og verðtryggð.
Önnur KS-bók með innistæðu yfir 20 milljónir, 3,75% vextir.
Samvinnubókin er með lausri bindingu, óverðtryggð
og óbundin 3,50% vextir.
Hafið þið séð betri vexti?
KS INNLÁNSDEILD
Í Skagafirði búa um 4.300 manns. Samfélagið er fjölskylduvænt og þjónusta við íbúa öflug.
Atvinnulíf er sterkt og fjölbreytt þar sem matvælavinnsla hvers konar skipar stóran sess í
tengslum við fjölbreyttan landbúnað og öfluga fiskvinnslu, auk þess sem ferðaþjónsta er vaxandi
atvinnugrein. Menningarlíf er blómlegt í héraðinu og sagan við hvert fótmál. Á Sauðárkróki,
stærsta þéttbýliskjarnanum í Skagafirði, búa um 2600 manns.
www.skagafjordur.is
Helstu verkefni:
• Forysta í mótun og uppbyggingu nýs sviðs
• Yfirumsjón með veitu- og
framkvæmdamálum sveitarfélagsins
• Ábyrgð á fjármálum, fjárhags-og
starfsáætlunum
• Umsjón með útboðum og verksamningum
• Verkefnastjórn sérverkefna
• Stefnumótun í samstarfi við yfirstjórn
sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Verk- eða tæknifræðimenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af stjórnun og rekstri
• Forystu- og skipulagshæfileikar
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Tungumálakunnátta
• Góð tölvukunnátta
Sviðsstjóri veitu- og
framkvæmdasviðs
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir að ráða
lausnamiðaðan og metnaðarfullan einstakling
í starf sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs
Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Um er að
ræða nýtt svið hjá sveitarfélaginu.
Laun og starfskjör fara eftir samningum Launanefndar sveitarfélaga
við viðkomandi stéttafélag.
Umsóknarfrestur er til 20. september nk. Umsóknum er hægt að skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins, Ráðhúsinu,
Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki, á netfangið sveitarstjori@skagafjordur.is
eða fylla út almenna atvinnuumsókn sem er á heimasíðu sveitarfélagsins
www.skagafjordur.is Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá. Nánari upplýsingar veitir Ásta Pálmadóttir,
sveitarstjóri, sími 455 6000, netfang sveitarstjori@skagafjordur.is
N
Ý
P
R
EN
T
e
h
f.
Nú hefur haustið minnt rækilega á sig á Norðurlandi vestra
með næturfrostum og hvítum fjallatoppum. Naprir vindar hafa
kælt sólbarin andlit fólks síðustu daga og munu gera það
áfram með vætu ef spá Veðurstofunnar gengur eftir.
Heldur er þó gert ráð fyrir hlýnandi veðri um helgina þótt
hitinn verði aldrei mikill og rigningin aldrei langt undan. /PF
Norðurland vestra
Hvítir fjallatoppar
Gilsbungan í Staðarfjöllum var skjannahvít í gærmorgun.
Gæran 2012
Alnöfnur á sviði
Sú skemmtilega uppákoma
átti sér stað á tónlistar-
hátíðinni Gærunni um sl.
helgi að Eyvör nokkur
Pálsdóttir, 10 ára Sauðár-
króksmær, steig á svið og
kynnti nöfnu sína Eivøru
Pálsdóttur, Færeying og tón-
listarkonu með meiru, á svið.
Eyvör var á meðal áhorf-
enda þegar annar kynnir
Gærunnar, Tryggvi Rafnsson,
kallaði hana upp og bað hana um að segja nafn sitt í hljóðnemann
og þar með að kalla tónlistarkonuna víðfrægu fram á svið. Eins og
sjá á meðfylgjandi mynd þótti Eyvöru Pálsdóttur hinni yngri
uppátækið ekki leiðinlegt. /BÞ
Á Laugarbakka í Miðfirði í
Húnaþingi vestra heyrast
óánægjuraddir með hraða-
hindranir sem verið er að
koma fyrir í þorpinu. Íbúi
staðarins, sem hafði sam-
band við Feyki, segir að um sé
að ræða svokallaðar þreng-
ingar sem samkvæmt honum
þrengja ekki veginn í raun og
þjóni því ekki tilgangi sínum
við að hægja á þeim hrað-
akstri sem þarna fer í gegn.
Hinn sami íbúi lýsir einnig
forundrun sinni á skilti er sett
var niður í mitt þorpið sem
gefur til kynna að þéttbýli sé á
enda og við taki 70 km
hámarkshraði.
„Þetta er hneyksli og það
getur hvaða heilvita maður séð
að þorpið er ekki á enda þarna,
og reyndar eru bara börn akk-
úrat í þessum hluta þorpsins,
og svo kemur allur skólinn
þarna líka!“ segir íbúinn.
Þá segir hann umferðina í
gegnum þorpið vera lygilega
mikla og íbúar að Laugarbakka
séu uggandi yfir þessu.
„Fáir trúa því fyrr en þeir
sjá það að það er ekið á 100 km
hraða og meira þarna í gegn
alla daga ársins! Svo spyr
maður sig, er líf barna á
Laugarbakka minna virði en líf
barna á öðrum stöðum í þessu
landi?“ segir íbúinn í lokin. /BÞ
Vestur Húnavatnssýsla
Ósætti um hraðahindrun