Feykir - 30.08.2012, Qupperneq 4
4 Feykir 32/2012
Foreldrar eru helstu hags-
munagæslumenn nemenda
Nýr árgangur hefur nú
skólagöngu í grunnskólum
landsins og foreldrar fylgja
börnum sínum gjarnan vel
eftir fyrstu dagana. Rúmlega
42 þúsund börn hefja nú
nýjan námsvetur í
grunnskólum landsins. Það
eru mikil tímamót að hefja
nám í grunnskóla og 10 ára
lögbundin skólaskylda tekur
við í lífi þeirra rúmlega 4300
barna sem nú hefja
skólagöngu. Því fylgja ýmsar
skyldur foreldra. Viðmót
starfsfólks skólans getur skipt
sköpum um hug foreldra til
þessa nýja hlutverks sem og
leiðbeiningar og góðar
upplýsingar strax við upphaf
skólagöngunnar.
Margir skólar hafa fastar
hefðir um fræðslu fyrir foreldra
eða svokölluð skólafærninám-
skeið og boða foreldra á sér-
stakan fund þar sem þeim er
kynnt skólastarfið og samstarf
heimila og skóla. Á slíkum
fræðslufundum er mikilvægt
að foreldrafélag skólans kynni
starfsreglur sínar og starfsemi
og fari yfir réttindi og skyldur
foreldra. Sé barnið að hefja
skólagöngu í nýjum skóla geta
foreldrar kynnt sér skóla-
námskrá og starfsemina á
heimasíðu skólans eða leitað
eftir upplýsingum á skrifstofu
skólans. Hefðir og verklags-
reglur geta verið mismunandi
eftir skólum.
Rannsóknir sýna að börn
þeirra foreldra sem eiga hlut-
deild í skólastarfinu eru líklegri
til að sýna góða hegðun og
framkomu. Jafnframt sýna
rannsóknir að áhrif foreldra á
námsárangur barna er mun
meiri en almennt hefur verið
talið. Stuðningur foreldra felst
fyrst og fremst í þeim gildum
og viðhorfum sem ríkja á
heimili barnsins til menntunar
og skólastarfs. Það er umræðan
heima, lífsstíll foreldra og
væntingar, hvatning þeirra og
örvun sem skiptir svo miklu
máli og getur verið undirstaða
námsárangurs og farsæls skóla-
starfs. Af þessum ástæðum þarf
grunnskólinn að leita allra leið
til að gefa foreldrum aukna og
markvissa hlutdeild í skóla-
starfinu og líta á þá sem
mikilvæga samstarfsaðila á
jafnréttisgrundvelli.
Öllum má vera ljós ávinn-
ingur af virkri þátttöku foreldra
í skólastarfinu. Til að geta sinnt
þeim skyldum sínum og verið
virkir þátttakendur í skóla-
göngu barna sinna þurfa for-
eldrar að þekkja hinar formlegu
leiðir til að miðla upplýsingum
og vita hvernig þeir geta komið
hagsmunamálum sínum og
nemenda á framfæri. Foreldrar
þurfa að hittast og þekkjast til
að geta átt farsælt samstarf og
mikilvægt að eiga samskipti
augliti til auglitis við aðra
foreldra, nemendur og
starfsfólk skólans við hin ýmsu
tækifæri.
Virkt lýðræði er þar sem
almenningur tekur virkan þátt í
ákvarðanatökum um sín mál
og til að undirbúa farsælt sam-
starf er mikilvægt að foreldrar
séu virkir í skólastarfinu alla
skólagöngu barnsins. Foreldrar
eru helstu hagsmunagæslu-
menn nemenda. Með samstarfi
og borgaralegri þátttöku hafa
foreldrar tekið þátt í skólaþróun
og komið mörgum framfara-
málum til leiðar. Með því að
taka þátt í félagslífi bekkjarins
með foreldrum sínum og læra
og lifa í lýðræðislegu umhverfi
öðlast börn aukna borgara-
vitund. Þar eru foreldrar og
kennarar fyrirmyndir og börn
læra af þeim hvernig hægt er að
bera sig að, læra meðákvörð-
unarrétt og hvernig þeir geta
gegnt lýðræðisskyldum sínum
þegar fram í sækir.
Foreldrar þurfa að huga vel
að líðan barna sinna nú þegar
takturinn í tilverunni breytist,
bæði líkamlegri og andlegri
líðan. Gæta þess að börnin
komi úthvíld í skólann, séu vel
nærð, sinni heimanámi og taki
þátt í bekkjarstarfinu. Þannig
leggja foreldrar sig fram um að
skapa börnunum jákvætt og
uppbyggilegt námsumhverfi til
að þau verði betur móttækileg
fyrir því sem skólinn hefur
fram að færa.
Helga Margrét Guðmundsdóttir,
tómstunda – og
félagsmálafræðingur
AÐSENT HELGA MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR SKRIFAR
Helgina 14.-15. júlí 2012 var
merkur viðburður á Hvoli í
Vesturhópi er afkomendur
þeirra Maríu og Jósefs
heiðruðu minningu þeirra
með sýningu á listaverkum
Maríu og ýmsum hlutum frá
búskap þeirra sem þau
stunduðu í áratugi. Þar bar að
líta skilvindur, strokk,
handsnúna þvottavél, aktygi
og kafarabúning sem Jósef
notaði er hann veiddi undir ís
í Vesturhópsvatni.
Eigendur Hvols höfðu fyrir
nokkrum árum tekið vel til
hendinni við að tæma og
lagfæra skemmu og gamlan
bragga sem var notaður sem
hlaða og voru orðin að fyrirtaks
salarkynnum til sýninga og
samkomuhalds ýmiss konar.
Fjöldi fólks streymdi að
Hvoli þessa daga, en á sunnu-
deginum var farin hópreið
hestamanna þaðan að hinum
fræga kirkjustað, Breiðabólstað,
þar sem ritun hófst á Íslandi
árið 1117 fyrir tilstuðlan
Hafliða höfðinga Mássonar,
lögsögumanns.
Margt manna var við guðs-
þjónustu hjá sr. Magnúsi
Magnússyni, sem einnig er
hestamaður góður og að at-
höfn lokinni var riðið, ekið og
gengið aftur að Hvoli þar sem
fjölskyldan og sóknarnefnd
Breiðabólstaðarkirkju buðu
upp á messukaffi, heimabakað
góðgæti margs konar ásamt
kaffi og kakói.
Slíkt var einnig í boði á
laugardeginum, en í aðalsýn-
ingarsalnum var nóg rými fyrir
dúkuð borð og stóla þannig að
vel fór um alla.
Listaverk Maríu Hjalta-
dóttur voru í öndvegi, falleg
landslagsmálverk og myndir
unnar með „monoprint“
aðferð og margt fleira. Við
innganginn blasti við stórt verk
sem María hafði unnið ásamt
nemendum sínum er hún
kenndi verk- og listgreinar við
Vesturhópsskóla á níunda
áratugnum. Hún hafði málað
bakgrunninn, fjöll, bæi og vatn,
en börnin höfðu unnið
fjöruborðið með ýmiss konar
sjávardýrum og gróðri. Verk
sem vert er að varðveita sem er
og gert í Grunnskóla Húna-
þings vestra á Hvammstanga.
Börn þeirra hjóna eru flest
handverks- og listamenn og
má nefna; Oddnýju sem er
listaútskurðarkona á tré og á
afar falleg verk eins og hillu
með útskorinni brík, fugla og
gestabækur; Kristínu er málar
myndir og sker út úr tré ásamt
ýmsu öðru; Grétu sem á
veggmyndir úr leir, en hún er
þekkt leirlistakona og rekur
verkstæði af miklum dugnaði
og listfengi. Hin eru einnig
hagleiksfólk, en alls komust
átta börn þeirra upp. Barnabörn
þeirra Maríu og Jósefs áttu
þarna falleg verk, s.s. teikningar
(m.a. af Maríu í upphlut) töskur
úr hjólbörðum, nytjahluti með
listrænu yfirbragði úr lopa að
ógleymdri ljóðabók en lengi
mætti telja. Það má því segja að
það hafi ekki einungis verið
María sem var listakona, heldur
virðist sem flestir afkomend-
anna hafi fengið þetta listfengi í
arf.
Þarna var einnig ánægjulegt
að hitta gamla sveitunga og
vini, njóta samvistanna yfir
kaffi-bolla og ljúfmeti, börnin
hlupu frjáls um innan dyra sem
utan þar sem hestar og fleiri
dýr fönguðu athygli þeirra, en
veður var ljómandi gott.
Þetta framtak afkomenda
Maríudagar á Hvoli
FRÁ LESENDUM KRISTÍN ÁRNADÓTTIR SKRIFAR hjónanna frá Hvoli, Maríu
Hjaltadóttur og Jósefs Magnús-
sonar, er góð fyrirmynd og
sýnir óumdeilt kærleiksríkan
hug þeirra allra til elskaðra
foreldra, afa og ömmu og
langafa og langömmu. Með
þessari sýningu hefur alþýðu-
menningu í Húnaþingi vestra
verið lyft upp og fólki boðið að
kynnast þessari hagleiksfjöl-
skyldu, enda komu tæplega
þrjú hundruð gestir að Hvoli í
Vesturhópi þessa sólríku júlí-
daga 2012.
Gjört á Prestbakka 27. júlí 2012
Kristín Árnadóttir
Fólk kom ýmist gangandi, ríðandi eða akandi að Hvoli.
Nokkrir þeirra muna sem prýddu sýninguna.