Feykir


Feykir - 30.08.2012, Side 8

Feykir - 30.08.2012, Side 8
8 Feykir 32/2012 ÞA K K I R Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar og mágs Jóns Hjörleifssonar Kimbastöðum Skagafirði sem lést 17. júlí og var jarðsettur 28. júlí. Sigurþór Hjörleifsson Unnur Hjörleifsdóttir Svavar Hjörleifsson, Guðrún Antonsdóttir Hróðmar Hjörleifsson Reynir Hjörleifsson, Sigríður K. Skarphéðinsdóttir börn, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir vinir og vandamenn. Hann var fallegur sumar- dagurinn þegar við vinir og ættingjar Jóns á Kimba- stöðum kvöddum hann hinstu kveðjunni. Sólin skein í heiði og lýsti upp hvern kima þessa fagra héraðs sem hann hafði bundið við tryggðir og geymdi stærstan hluta ævistarfsins. Jón fæddist á Auðnum á Vatnsleysuströnd elstur 6 barna foreldra sinna. Fyrstu tíu ár ævinnar dvaldist hann hjá föðurforeldrum á bænum Snartartungu í Bitru í Strandasýslu en fluttist haustið 1936 til foreldranna suður í Reykjavík og gekk þar í barnaskóla þann vetur. Veturinn 1937 festu foreldrar hans kaup á Kimbastöðum og fluttust þangað búferlum um vorið með syni sína en dóttirin fóstraðist upp hjá móður- foreldrum. Fimmtán ára varð Jón fyrir þeirri lífsreynslu að veikjast af berklum og lá rúmfastur á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki í fögur ár og dvaldist síðan á Reykjalundi einn vetur við endurhæfingu. Baráttan við þessi veikindi settu mark sitt á Jón og munu án vafa hafa dregið úr þrótti hans þótt hann léti það ekki uppi sakir meðfæddrar kappsemi og karlmennsku. Hann tók til við bústörf þegar eftir heimkomuna og réðst einnig tvo sumarparta til vinnu utan héraðs. Tuttugu og tveggja ára gamall lagði hann leið sína í Héraðsskólann á Laugum í Reykjadal og dvaldist þar tvo vetur við nám. Seinni veturinn tók hann með sér tvo reiðhesta, keypti handa þeim fóður og þjálfaði þá um veturinn í frístundum frá náminu. Ekki varð af frekari skólagöngu enda mun ekki annað hafa vakað fyrir honum en að bæta sér upp þá skólagöngu sem örlögin höfðu svipt hann með sjúkdómslegunni. Vinna við bústörf átti vel við Jón á Kimbastöðum og þegar eftir skólagönguna hóf hann störf við búið og kom sér jafnframt upp nokkrum bústofni. Hann var náttúrubarn að upplagi og dýravinur. Hestar höfðu frá fyrstu búskaparárum fjöl- skyldunnar á Kimbastöðum skipað ríkan sess jafnt til bústarfa sem ferðalaga og yndisauka. Jón hafði mikið yndi af hestum og var laginn hestamaður enda nær alltaf vel ríðandi. Kimbastaðir höfðu verið í eyði um nokkurra ára skeið þegar fjölskylda Jóns fluttist þangað. Túnið hafði verið nytjað en öll hús í niðurníðslu og bærinn ekki hæfur til íbúðar. Á þessu varð fljótt breyting og Kimbastaðir urðu í fremstu röð góðbýla jafnt og tækni fleytti fram í héraðinu. Þar tókust í hendur í sátt gamli tíminn og sá nýi og gengu í merkilegt bandalag. Byggingar risu af myndarbrag, túnasléttur margfölduðust að stærð og vélar og tækni ruddu á brott úreltum vinnuaðferðum en jafnframt var íhaldssemi viðhöfð í hverju því sem ábúendur töldu sér betur að skapi. Yfir öllu þessu var sú reisn sem engum duldist og byggðist ekki síst á óvenju- legri snyrtimennsku og vand- aðri umgengni ásamt hóflegri sparsemi og virðingu fyrir verðmætum. Yfir heimilis- brag á Kimbastöðum var jafnan menningarsvipur. Þar ríkti hin þekkta íslenska gestrisni þar sem allir voru jafnir, en þangað lögðu líka gjarnan leið sína skáld og listamenn héraðsins og undu við söng og ljóðalestur í félagsskap með húsráðendum. Þegar þau Kimbastaðahjón létust með árs millibili í byrjun níunda áratugarins tóku þeir bræður Jón og Hróðmar fljótlega þá ákvörðun að hægja á umsvifum búrekstrarins. Þar kom að hrossaræktin og umsvif henni tengd urðu aðalviðfangsefnið. Þar náðu þeir skjótt góðum árangri og eignuðust tryggan hóp kaupenda víðs vegar um land. Kært var með þeim bræðrum Jóni og Hróðmari og sam- heldni og samvinna jafnan með miklum ágætum og duldist það engum þeim sem þangað lögðu leið sína. Eftir að um hægðist með bústang tóku þeir sig gjarnan upp og ferðuðust um byggðir sem óbyggðir nær og fjær; stundum tveir saman en einnig gjarnan í fylgd vina og kunningja. Kimbastaðafeðgar voru félags- menn lengi í Hestamanna- félaginu Léttfeta og Létt- fetafélagar áttu mikil og góð samskipti við Kimbastaða- heimilið enda lágu þangað ófáir reiðtúrarnir. Þess má geta að við Jón unnum með Haraldi ráðunaut á Sjávarborg að stofnun – og sátum lengi í stjórn – fyrstu hrossaræktar- deildar í Skagafirði, en þær deildir urðu síðar kjarninn í Hrossaræktarsambandi Skag- firðinga. Jón á Kimbastöðum var vinsæll og virtur af öllum þeim sem honum kynntust. Hann var greindur vel yfir meðallag, lundin var traust og fram- gangan djarfmannleg og glaðvær. Honum hefði verið opin leið til léttrar vinnu á skrifstofum en hugur hans stóð til sveitastarfanna og þar kaus hann að eyða kröftum sínum. Hann lét þó til leiðast að setjast í hreppsnefnd Skarðshrepps um nokkurn tíma og starfaði þar af fullum heilindum svo sem honum var eiginlegt í hverju efni. Þess mátti sjá glögg merki í minningargreinum sem birtust á útfarardaginn að honum var einkar lagið að umgangast ungmenni sem löðuðust að honum og minntust hans með hlýju og söknuði. Síðustu árin voru Jóni nokkuð örðug. Þrótturinn þvarr jafnframt því að sjónin dapraðist mjög og varð ekki að gert. Við því var að nokkru brugðist með hljóðbókum auk þess sem Hróðmar lagði sig fram við að bæta honum upp sjónmissinn með lestri héraðsfrétta og dagblaða. Flesta daga hafði hann fótavist og rölti þá gjarnan til hesthúss að heilsa upp á vini sína þar ef veður voru hæg. Brá sér jafnvel á bak á góðum degi enda nægur kostur traustra gæðinga jafnan nærtækur. Góðvinir og ættingjar úr nágrenninu gerðu honum heimsóknir sem jafnan juku honum gleði. Með okkur Jóni var góð vinátta um langa tíð og eftir að vík opnaðist milli vina ræddum við saman í síma nokkuð reglulega. Að Kimbastöðum kom ég ævinlega er ég átti leið norður og gaf mér jafnan góðan tíma með þeim bræðrum. Það er óvenjulegt nú á tímum að setjast í hlýtt og notalegt eldhús þar sem nútímaþægindum hefur verið tekið með hófsemi og eldur logar glatt undir katli á kolaeldavél. Ég á auðvelt með að kalla fram myndina af vini mínum þar sem hann stendur við eldhúsbekkinn við uppá- hellinguna. Gjarnan að drepa tittlinga – sem var eftirminni- legur kækur hans – vegna einhvers sem í tal hafði borist því maðurinn var launglettinn og bjó að góðri frásagnargáfu. Það var hlutverk Jóns við heimilishaldið eftir að þeir bræður urðu húsráðendur að hella á könnuna og betra kaffi drakk ég hvergi en þar. Jón á Kimbastöðum var vaskur ferðamaður og góður ferðafélagi í öllum skilningi þess hugtaks. Honum eru sendar þakkir fyrir vináttuna og hlýjar kveður inn á löndin handan Miklavatnsins. Árni Gunnarsson frá Reykjum M INN I NG Jón Hjörleifsson bóndi Kimbastöðum Fæddur 1. apríl 1926 Dáinn 17. júlí 2012

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.