Feykir


Feykir - 30.08.2012, Qupperneq 10

Feykir - 30.08.2012, Qupperneq 10
10 Feykir 32/2012 Gæran 2012 - - - Tónlistin á sér engin landamæri Nú er Tónlistarhátíðin Gæran 2012 að baki og gestir hátíðarinnar svifu aftur til síns heima á bleiku „tónlistar“ skýi eftir að hafa fengið góðan skammt af fjölbreyttri tónlist. Samkvæmt Stefáni Friðrik Friðrikssyni, einum skipuleggjanda hátíðarinnar, gekk helgin frábærlega í alla staði. Hann segir það hafa verið gaman að sjá að allir voru á tánum og mættir til að skemmta sér fallega - hvort sem það voru sjálfboðaliðar, hljómsveitir eða áhorfendur. „Sérstaklega fannst okkur gaman að sjá hvað margir foreldrar mættu með börnin sín og ekki ósjaldan sem maður sá börn allt niður í eins árs dilla sér við allskonar tónlist, hvort sem um var að ræða hiphop eða argasta þungarokk. Tónlist á sér engin landamæri,“ segir hann. Stefán segir aðsóknina hafa verið nokkuð góða og mikið af nýjum andlitum, þá sérstaklega af Skag- firðingum yfir 40 ára. „Það er gríðarlega jákvætt að fá alla aldurhópa að skemmta sér saman og njóta þess besta sem íslenskt tónlistarlíf hefur upp á að bjóða,“ segir hann og bætir við: „Í lokin langar okkur að þakka þeim fjölmörgum sjálfboðaliðum sem að-stoðuðu okkur að gera þessa hátíð að veruleika. Án þeirra væri þetta ekki merkilegur pakki!“ /BÞ

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.