Feykir - 20.09.2012, Page 1
fff
BLS. 8-9
BLS. 11
Réttir víðsvegar um
Norðurland vestra
Gleði og gaman
í réttum
BLS. 6
Nes listamiðstöð
Suðupunktur
menningar og
lista á Norður-
landi vestra
Farskólinn - símenntunar-
miðstöð á Norðurlandi
vestra er tvítugur
Athyglisverð
námskeið í boði
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
35
TBL
20. september 2012
32. árgangur : Stofnað 1981
Skagaströnd
Kántrýkonungurinn
heiðraður
Merkisviðburður átti sér stað á
Skagaströnd sl. þriðjudag þegar
kántrýkonungur norðursins, Hallbjörn
Hjartarson, fékk afhenta heiðurs-
viðurkenningu af Luis Arreaga
sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi
fyrir einstakan dugnað hans og elju
við að koma kántrýtónlist á framfæri
á Íslandi og fyrir framlag hans til
kántrýtónlistar.
Það var blíðskapar veður á
Skagaströnd þegar viðburðurinn átti
sér stað og húsfyllir í Kántrýbæ.
Viðstaddir voru bersýnilega djúpt
snortnir þegar Hallbjörn þakkaði fyrir
viðurkenningar sínar, annars vegar frá
sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi og
hins vegar frá Country Music
Association í Bandaríkjunum.
„Ég er glaður í mínu hjarta yfir
þessari viðurkenningu og mun ég
geyma hana í hjarta mér og huga
mínum allar stundir lífsins héðan í frá.
Ég þakka fyrir mig með auðmjúku
hjarta því að kántrýtónlistin á hug
minn allan og hefur átt allt mitt líf,“
sagði Hallbjörn í þakkarræðu sinni og
tók svo lagið við tilefnið, en það hefur
hann ekki gert til fjölda ára. Honum
var fagnað ákaft með lófaklappi og
óhætt að segja að allir hafi notið sín
vel, ekki síst konungurinn sjálfur.
Hallbjörn hefur sem kunnugt er
helgað kántrýtónlistinni lífstarf sitt og
gefið út fjölda hljómplatna með
íslenskri kántrýtónlist en hans fyrsta
kántrýplata kom út árið 1981. Hann
hefur einnig um langt árabil átt og
rekið útvarpsstöðina Útvarp Kántrý-
bæ sem hefur kynnt kántrýtónlist fyrir
fjölmörgum Íslendingum. /BÞ
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Hér er ný, sneggri
MacBook Air
Jíha!
GoPro er leiðandi merki í heiminum
á sviði myndavéla sem nota má
við alls konar íþróttir eða jaðarsport
og í raun allt sem mönnum
dettur í hug að gera.
Hallbjörn Hjartarson ásamt Luis Arreaga sendiherra Bandaríkjanna.