Feykir - 20.09.2012, Page 2
2 Feykir 35/2012
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Lausapenni: Örn Þórarinsson.
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Skagafjarðarhafnir
Mikill fiskur á land
Nóg var um að vera í höfnum
Skagafjarðar í síðustu viku. Á
heimasíðu Skagafjarðarhafna
kemur fram að á sunnudag í
síðustu viku lönduðu
Þinganes SF-25 og Friðrik
Sigurðsson ÁR-17 smá
slöttum af rækju og bolfiski á
Sauðárkrókshöfn en þeir
komu inn vegna brælu, sem
og Röst SK-17.
Þinganes var með 6,6 tonn
af bolfiski og 2,4 tonn af rækju,
Friðrik Sigurðsson var með 7,6
tonn af rækju og 500 kíló af
bolfiski. Röst landaði 2,3 tonn
af rækju á mánudeginum sem
og Klakkur SK-5 sem var með
95,7 tonn af þorski og 6 tonn af
öðrum tegundum, sem og 7
tonn af þorsklifur.
Þá landaði Málmey SK-1
67,7 tonnum af unnum afurð-
um en skipið er í viðgerðar-
stoppi þessa viku. Hafborg SK-
54 hefur landað í tvígang
samtals 3,7 tonnum sem feng-
ust í net.
Á Hofsósi lönduðu tveir
bátar sl. miðvikudag og þrír
bátar á fimmtudag samtals 36
tonnum. „Voru þetta bátar frá
Siglufirði sem leituðu inn á
fjörðinn vegna brælu og þetta
var útkoman,“ segir á heima-
síðunni en þetta var að megn-
inu til ýsa sem fékkst skammt
undan höfninni á Hofsósi.
Á fimmtudag og föstudag
var flutningaskipið Vestlandia
við Sauðárkrókshöfn og var
skipað upp 638 tonnum af salti
fyrir Loðskinn. Hélt skipið
síðan för sinni áfram eftir
hádegið á föstudag.
/BÞ
LEIÐARI
Laun heimsins eru
vanþakklæti
Það er umhugsunarefni þegar forstjóri Landsspítalans fær
launahækkun upp á um 450 þúsund krónur á mánuði til að
tryggja það að hann haldi áfram starfi sínu hjá stofnuninni en
hann hafði fengið starfstilboð í Svíþjóð á hærri launum.
Mér finnst það umhugsunarvert vegna þess að enginn átti
að fá hærri laun en forsætisráðherrann okkar sem fær skitinn
milljónkall á mánuði en spítalaforstjórinn er með gott betur
en það. Hans laun verða um 2,3 milljónir á mánuði.
Mér varð hugsað til þess að ef hann vinnur virku dagana
en tekur sér helgarfrí eins og tíðkast á flestum stöðum þá eru
þetta 20 dagar í september, 23 dagar í október og 22 dagar í
nóvember. Ef við deilum þessum dögum upp í mánaðarkaupið
er hann með um og yfir 100 þúsund krónur á dag eða rúm
4000 krónur á tímann ef hann vinnur allan sólarhringinn.
Það er ágætt og eflaust á hann þetta skilið en það er einhver
skekkja í þessu enda hefur starfsfólk stofnunarinnar og fleiri í
heilbrigðisgeiranum lýst vanþóknun sinni á þessum gjörningi
velferðarráðherra og mótmæla hástöfum.
Guðbjartur Hannesson er sjálfsagt að gera rétt í málunum,
enda skynsamur maður, og Björn vel innvinklaður í nýja
byggingu Hátæknisjúkrahúss sem liggur á teikniborðinu, en
spurningin er hvort ráðherrann lifi þetta af pólitískt, nú þegar
veður eru öll válynd á kosningavetri.
Páll Friðriksson
ritstjóri
Landnámshænsna-
ræktandi
Fær ekki
meðmæli
Á fundi byggðarráðs
Húnaþings vestra í vikunni
var lagt fram erindi Júlíusar
M. Baldurssonar
landnámshænuræktenda
þar sem hann óskaði eftir
því að byggðarráð veitti
honum meðmæli vegna
umsóknar hans um
ábúðarrétt að jörðinni
Tjörn 1 á Vatnsnesi.
Byggðarráð veitir ekki
meðmæli né umsagnir í
þeim tilvikum er ríkið
ráðstafar ábúðarétti á ríkis-
jörðum og samkvæmt því
getur byggðarráð ekki orðið
við erindi Júlíusar. /PF
Byggðasafn Skagafjarðar
Aldrei fleiri
gestir
Gestir safnsvæðisins í
Glaumbæ hafa aldrei verið
fleiri en á þessu sumri
samkvæmt heimasíðu
Byggðarsafns Skagfirðinga
en þann 10. september,
sem var síðasti sumaropn-
unardagur safnsins, höfðu
31.339 gestir gegnið um
gamla bæinn.
Safnsýningagestir eru því
orðnir yfir 33.300 á þessu
sumri af því að á sýningar í
Minjahúsinu komu 2032
gestir.
Framvegis verða sýningar
safnsins opnar eftir sam-
komulagi. Töluvert er um
hópapantanir fram í október
og margir enn á ferðinni á
eigin vegum. /BÞ
Byggðarráð Skagafjarðar
mótmælir harðlega fyrirhug-
aðri skattahækkun á gistingu
og telur ráðið að aðgerðirnar
muni m.a. leiða til samdráttar
í ferðaþjónustu í landinu.
Bókun byggðaráðsins er
eftirfarandi: „Byggðarráð
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
mótmælir harðlega áformum
ríkisstjórnar Íslands um að
hækka virðisaukaskatt sem
lagður er á gistingu úr 7% í
25,5%
Fjöldi fólks um land allt
byggir með beinum og
óbeinum hætti afkomu sína á
sölu gistingar og ferðaþjónustu.
Stjórnvöld hafa fram til þessa
sýnt vilja til þess að reyna að
auka veg greinarinnar og því
skýtur þessi algjöri viðsnún-
ingur mjög skökku við.
Hækkun virðisaukaskattsins
mun leiða til samdráttar í grein-
inni, fækkunar ferðamanna sem
leggja leið sína hingað til lands,
lækkunar tekjuskattsgreiðslna
og fækkunar starfsfólks. Ávinn-
ingur ríkisvaldsins verður því
minni en enginn.
Er með öllu óásættanlegt að
ríkisstjórn Íslands hlaupi upp
til handa og fóta í viðleitni til
að fegra fjárlög á kosningavetri
og vegi með því að atvinnugrein
sem er í sókn um land allt og
hefur ekki síst skipt máli á
landsbyggðinni. Þá hafa
stjórnvöld haldið uppi mjög
villandi umræðu um mikinn
vöxt í greininni á landsvísu og
þá flaggað tölum af suðvestur-
horninu til réttlætingar á
ofursköttum á greinina. Hið
rétta er að mikill munur er á
milli landshluta. Á Norðurlandi
hefur verið hægur en mikil-
vægur vöxtur í gistinýtingu og
framboði á gistirými. Ef þessi
skattlagning verður að veru-
leika er hætta á að slegin verði
út af borðinu mikilvæg verk-
efni sem hafa verið í burðar-
liðnum í landshlutanum.
Byggðarráð Sveitarfélagsins
Skagafjarðar skorar á fjármála-
ráðherra og ríkisstjórn Íslands
að falla með öllu frá fyrir-
huguðum hækkunum virðis-
aukaskatts á hótel- og gisti-
þjónustu.“ /PF
Byggðarráð Skagafjarðar
Mótmæla hækkun
virðisaukaskatts
Blönduós
Farið yfir helstu verkefnin
Á fundi bæjarstjórnar
Blönduósbæjar þann 11.
september sl. fór bæjarstjóri
yfir framkvæmdir sumarsins
og verkefni haustsins.
Samkvæmt fundargerð
voru endurnýjaðar og lag-
færðar 10 heimtaugar í Vatns-
veitunni. Ljósastaurar og fyll-
ing í götu við Smárabraut. Lóð
Kvennaskólans var jarðvegs-
skipt og malbikuð.
Þá endurnýjaði Blönduós-
bær vatnslagnir þar, Síminn
endurnýjaði sínar lagnir og
Rarik skipti um hitaveitulagnir
á svæðinu. Verkið er á vegum
Byggðasamlags um atvinnu-
og menningarmál. Rarik er að
ljúka við framkvæmdir við
dæluhús og Rarik stefnir að því
að ljúka lagningu hitaveitu til
Blönduós í haust. Framkvæmd-
um í Stekkjavík til að taka við
sláturúrgangi stóðu yfir í
sumar og er lokið.
Í haust stendur til að gera
breytingar á samþykktum
Blönduósbæjar, uppfæra þarf
jafnréttisáætlun Blönduós-
bæjar, setja reglur um innkaup
og samkvæmt 29. gr. sveitar-
stjórnarlaga þurfa sveitarfélög
að setja sér siðareglur. /BÞ
Húnavatnshreppur
Skóladagur-
inn lengist
Í haust hóf 61 nemandi
nám við Húnavallaskóla og
í leikskólanum Vallarbóli
eru skráðir 10 nemendur
en báðir skólarnir eru
reknir af Húnavatns-
hreppi.
Nokkrar hagræðingar
hafa átt sér stað, til að mynda
hefur stundartöflum verið
breytt, frímínútum fækkað
og kennslutími aukinn, jafn-
framt því að tómstundir og
íþróttastarf rúmast nú innan
skólatíma. Vegna breyting-
anna lengist skóladagurinn
lítillega. /PF
Afleiðingar haustshretsins
Almannavarnir munu funda
Ljóst er að fjárdauði er mikill
á Norðurlandi vestra eftir
hretið sem gekk yfir landið
fyrir skömmu og tjón bænda
því í samræmi við það.
Bændur á svæðinu hafa
staðið í ströngu við að bjarga
því fé sem fennt hafði og er
ekki einungis bundið við
afrétti á fjöllum.
Slæmt færi hefur aftrað
markvissum björgunarað-
gerðum og sem dæmi var
öðrum göngum frestað í
Staðarfjöllum í Skagafirði
vegna ófærðar. Ekki var lýst
yfir neyðarástandi líkt og gerð-
ist í Þingeyjarsýslu en þá koma
yfirvöld að björgunarmálum
með samhæfð viðbrögð og
úrræði en að sögn Ríkarðs
Másonar sýslumanns í Skaga-
firði mun Almannavarnanefnd
funda um málið.
Ekki liggur enn fyrir hvert
tjónið er. /PF