Feykir - 20.09.2012, Side 3
35/2012 Feykir 3
Hafðu samband
í síma 455 7176 eða sendu póst á feykir@feykir.is
...allir með!
Atriði í kvikmyndinni Hross
var tekið upp í Sauðárkróks-
höfn í vikunni en þar sund-
ríður maður út í rússneskan
togara til að ná sér í
brennivín.
Sundið út í togarann gekk
vel hjá hesti og manni og
enduðu þeir uppá sérsmíð-
uðum palli sem hékk utan á
skipinu Klakki, sem búið var að
merkja upp á rússnesku. Þegar
snúa átti við fór ekki alveg eins
og ritað var í handritið.
Hesturinn féll af pallinum og
datt í sjóinn en knapinn
skutlaði sér á eftir honum en
saman fóru þeir í land heilir og
höldnu en hrakblautir og
kaldir. /PF
Atriði í kvikmyndinni Hross tekið upp á Sauðárkróki
Sundriðið í
Sauðárkrókshöfn
Dettur þú í
pottinn?
Það er farinn í gang splunkunýr og spennandi áskrifendaleikur
hjá Feyki. Þú gerist áskrifandi og getur unnið flottan vinning.
lukku
Nú er einmitt
rétti tíminn
til að gerast áskrifandi að Feyki
1. vinningur
2. vinningur
3. vinningur
Feykir kemur út á hverjum fimmtudegi, stútfullur af
öllu því sem skiptir íbúa á Norðurlandi vestra máli,
og er áskriftin einungis kr. 1400 á mánuði.
Fyrsti vinningur er gisting fyrir
tvo á Hótel KEA og miðar á
leiksýningu að eigin vali á
yfirstandandi leikhúsári hjá
Leikfélagi Akureyrar.
LEIKHÚSPAKKAR
Á HÓTEL KEA AKUREYRI
Hótel Kea // Akureyri // Símar 460 2000 og 460 2029 // Fax: +354 460 2060 // www.keahotels.is
Í tveggja manna herbergi.
Ein nótt með morgunverði
og leikhúsmiði,
kr. 10.300 á mann.
Í tveggja manna herbergi.
Tvær nætur með morgunverði
og leikhúsmiði,
kr. 17.200 á mann.
Fundir, árshátíðir, hvataferðir, ráðstefnur, skemmtiferðir og fl.
Gerum tilboð í hópa, stóra sem smáa.
Herbergja- og borðapantanir í síma 460 2000
Leikhúspakki 1 Leikhúspakki 2
Aðeins nýir áskrifendur Feykis
eiga möguleika á 2. vinningi
Aðeins nýir áskrifendur Feykis
eiga möguleika á 3. vinningi
Síminn er 455 7171
Ert þú áskrifandi?
Þú getur einnig sent okkur póst á netfangið feykir@feykir.is
Annar vinningur er frábær snjallsími úr Galaxy
seríu Samsung. Síminn hefur allt sem flottur
sími þarf í dag. Wi-Fi hotspot, DLNA, HD-
upptöku og öflugan tveggja kjarna örgjörva.
Þriðji vinningur er bráðsmart NexTime veggklukka
frá Blóma- og gjafabúðinni á Sauðárkróki.
Tíminn líður ljúft með NexTime.
Allir áskrifendur Feykis
eiga möguleika á 1. vinningi
Dregið verður í
áskrifendaleiknum
þann 16. október en
þá er einmitt alþjóðlegi
matardagurinn.
Úrslit verða kynnt í
39. tbl. Feykis sem
kemur út þann
18. október.
Tryggðu þér
áskrift
í tíma.
Hólabiskup sr. Solveig Lára
Guðmundssóttir vígði Sunnu
Dóru Möller guðfræðing til
prests í Akureyrarkirkju í
Eyjafjarðar- og Þingeyjar-
prófastsdæmi í gær. Þetta var
fyrsta prestvígsla sr. Solveigar
Láru sem nývígður vígslu-
biskup og jafnframt hennar
fyrsta embættisverk við
Hóladómkirkju.
Notalegt andrúmsloft var í
kirkjunni og bjart yfir kirkju-
gestum þrátt fyrir næðinginn
utandyra. Félagar úr Kór
Akureyrarkirkju sungu, Hjalti
Jónsson, tenór, söng einsöng og
organisti var Sigrún Magna
Þórsteinsdóttir.
Vígsluvottar voru Sr. Bolli
Pétur Bollason, sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir, sr. Hildur Eir
Bolladóttir, sr. Bjarni Karlsson
og sr. Svavar Jónsson, sem jafn-
framt lýsti vígslu. Sr. Gunnar
Jóhannesson, sóknar-prestur á
Hólum, þjónaði fyrir altari. /BÞ
Hóladómkirkja
Fyrsta embættis-
verk vígslubiskups
Hólabiskup sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir vígir Sunnu Dóru Möller
guðfræðing til prests í Akureyrarkirkju.