Feykir - 11.10.2012, Page 10
10 Feykir 38/2012
Sigrún Elva Benediktsdóttir
er brottfluttur Skagfirðingur
„Það trúði
okkur engin“
Hugur minn reikar nær daglega
heim á Krók, þar var dásamlegt
að alast upp og búa. Það má
eiginlega segja að það séu
forréttindi að fá að vaxa, þroskast
og dafna í fallegum litlum bæ eins
og Sauðárkrók. Í mínum huga
hefur Krókurinn alltaf verið mikið
körfuboltasamfélag.
Ég var 8 ára þegar suðið í mér
byrjaði fyrir alvöru, en þá var suðað
í mömmu að fá að æfa körfu. Hún
hafði reyndar bara einn valkost
og það var að segja já. Eftir það
var skundað á æfingu, til Gumma
Jens, með Sessu Barðdal og Dagný
Huld. Þar kenndi Guðmundur okkur
æfinguna „að vinka bless“ en
þetta var góð kennsluaðferð sem
sýndi okkur hvernig við áttum að
halda rétt á boltanum og skjóta
síðan í körfuna. Eftir miklar æfingar
við tiltekna hreyfingu þá kunnum
við stöllur að veifa hendinni jafn
faglega og drottningarnar sem veifa
almúganum.
Áfram hélt ferillinn og hef ég svo
sannarlega verið heppin með
liðsfélaga. Hvert lið ætti að hafa
eins og eina Hrafnhildi Sonju,
Sigríði Viggós, Tinnu Mjöll, Herdísi
Ósk, Gyðu, Elsu Rún, Halldóru
Andrésar, Dúfu, Sessu, Dagný Huld,
Birnu Sólveigu, Eygló Þóru, Vöggu,
Hrund Jóhanns, Ingveldi og fleiri
frábæra persónuleika. Þær gerðu
sko lífið í keppnisferðalögunum mun
skrautlegra og skemmtilegra. Oftast
þurftum við stelpurnar í Tindastól að
fara suður um helgar til að keppa,
en í þessum ferðalögum urðu til
margar góðar sögur.
Ein er mér ofarlega í huga og mikið
búið að hlægja af henni.
Við vinkonurnar Sessa, Herdís Ósk,
Dagný Huld og Elsa Rún vorum
búnar að vera í borg óttans í heila
viku í starfskynningu en allar höfðu
við gist heima hjá ömmu hennar
Sessu upp í Breiðholti. Svo kom að
laugardeginum en þá áttum við að
keppa í Smáranum. Þar sem við
vorum með svo mikinn farangur þá
þurftum við að hringja í leigubíl sem
átti að keyra okkur í Kópavoginn.
Mæta átti klst. fyrir leik og var því
hringt í bílinn rétt fyrir brottför. Hins
vegar lét leigubíllinn okkur bíða
eftir sér og vorum við orðnar vel
stressaðar að ná ekki að komast
í leikinn á réttum tíma. Loks kom
hann á staðinn og þá þurfti að hafa
hröð handtök að koma töskunum
í skottið og okkur fimm inn í lítinn
bíl. „Af stað“ kölluðum við og létum
sko leigubílstjórann vita af því að við
værum að verða of seinar í leikinn.
Karlanginn keyrði af stað á þeim
leiftur hraða sem við báðum um,
en svo skyndilega þegar við vorum
enn í Breiðholtinu þá hætti bílinn að
keyra eins og hinn besti rallýbíll og
drollaðist þess í stað rétt áfram.
Þegar þarna er komið við sögu
þá vorum við orðnar verulega
stressaðar og vissum að leikurinn
var að hefjast eftir fimm mínútur og
heilt byrjunarlið ekki mætt á svæðið.
Við báðum hann vinsamlegast að
stíga betur á bensíngjöfina. Hann
lét okkur vita að hann kæmist ekki
hraðar og á sama tíma gossaði
upp þessi svakalega gúmmílykt.
Við litum hvor á aðra, hlógum og
trúðum ekki að þetta væri að gerast,
fjandans dekkið var sprungið. Bíllinn
lullaði áfram og eftir dágóðan tíma
þá vorum við komnar í íþróttahúsið
og leikurinn byrjaður. Þá tók við
heljarinnar ræða frá þjálfaranum
Sverri Sverris, en hann var hundfúll
út í okkur, skiljanlega. Við reyndum
að útskýra hvað hafði gerst en fyrir
honum var þetta mesta lygasaga
sem hann hafði á ævinni heyrt og
nennti hreinlega ekki að hlusta á
okkur. Við fengum að fara inn á rétt
í blálokin.
Eftir leikinn sögðum við liðsfélög-
unum frá því hvað gerðist en það var
sama sagan, það trúði okkur engin.
Enn í dag þegar þessi saga er sögð
þá eiga stelpurnar erfitt með að trúa
henni og þá helst Sigríður Viggós
og þess vegna ætla ég að skora á
hana að koma með næsta pistil.
( ÁSKORENDAPENNINN )
berglindth@feykir.is
Vredestein eru
hágæða vetrardekk
sem til er í flestum stærðum
fólksbíla, jepplinga og sendibíla.
Leitið tilboða hjá sölufólki okkar
Bílaverkstæði
Sími 455-4570
Hönnuð til að vernda þig
HESTEYRI 2, SAUÐÁRKRÓKI
Snowtrac Wintrac ComTrac Ice
Arctrac
www.skagafjordur.is
Auglýsing
vegna kjörskrár
Kjörskrá Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
20. október 2012 liggur frammi í Ráðhúsinu á Sauðárkróki,
Skagfirðingabraut 21, alla virka daga frá kl. 9:00 til 16:00
f.o.m. miðvikudeginum 10. október 2012 til kjördags.
Upplýsingaveita Innanríkisráðuneytis:
http://www.kosning.is/thjodaratkvaedagreidslur2012/
Sveitarstjóri
Hafðu samband
í síma 455 7176
eða sendu póst á feykir@feykir.is