Feykir - 07.03.2013, Blaðsíða 2
2 Feykir 09/2013
Útgefandi: Nýprent ehf. Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Box 4, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson – palli@feykir.is & 455 7176, 861 9842
Blaðamenn:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglindth@feykir.is & 694 9199
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 350 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 390 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Trú eða ekki trú
Fermingarathafnir eru hafnar þetta árið með öllum þeim
sjarma sem þeim fylgja. Fara þær fram á mismunandi tímum
en flestar munu þær verða kringum páska eða hvítasunnu.
Í kristinni trú hefur fermingin mikið gildi þar sem hún er
staðfesting á skírnarathöfninni. Fermingarbarnið fer með
trúarjátninguna, vinnur fermingarheit og þiggur fyrirbæn og
blessun. Oft hefur það verið nefnt að börnin láti ferma sig
eingöngu vegna gjafanna og trúin komi þar ekki nálægt. Ég
held að það sé tæplegur sannleikur. Allt frá árinu 1989 hefur
Siðmennt staðið fyrir borgaralegum fermingum, sem er
valkostur þeirra sem ekki játast kristinni trú. Þau börn sem
hana kjósa geta haldið skínandi veislur og þegið gjafir í tilefni
tímamótanna og þurfa ekki að láta kristna trú trufla sig á
þeim vettvangi. Þau fá góða fræðslu og undirbúning sem
fylgir þeim til fullorðinsáranna.
Almennt tel ég að Íslendingar séu trúaðir á einhvern hátt
og halda kristnum gildum í heiðri þótt þeir beri það ekki
endilega á torg og mættu kannski vera kirkjuræknari milli
stórhátíða að mati sumra, en það er nú önnur saga. Allir sem
hafa gengið í gegnum fermingarathöfn muna daginn þann,
spenninginn, vandræðaganginn eða léttinn við hverja stund
sem eitthvað gekk á. Dagur sem gjarnan er notaður sem
tímaviðmið seinna meir - fyrir og eftir fermingu - rétt eins og
aðrir stórir dagar í lífi hvers og eins.
Feykir óskar öllum fermingarbörnum landsins til ham-
ingju með sína athöfn, hvenær svo sem hún verður haldin og
hvort sem trú eða trúleysi koma þar við sögu.
Páll Friðriksson,
ritstjóri
Bjartsýnismaður í Langadal
Hjólreiðamanni
komið til aðstoðar
Lögreglan á Blönduósi
aðstoðaði hjólreiðamann í
Langadal á mánudagsmorg-
uninn en það var skólabílstjóri
sem hafði komið auga á
manninn á ferð sinni um
dalinn og tilkynnt lögreglu. Að
sögn Kristjáns Þorbjörnssonar
yfirlögregluþjóns á Blönduósi
var hjólreiðamaðurinn hinn
slakasti þegar lögreglunni bar
að garði og ekkert óttasleginn
þrátt fyrir bylinn.
Ferðamaðurinn, sem er frá
Þýskalandi, hafði gist í tjaldi
sínu í Langadal um nóttina og
ætlaði að hjóla til Blönduóss.
Hjólið hans sem var klyfjað af
farangri fauk fljótlega langt út
af veginum og þegar lögreglan
kom honum til aðstoðar þá lá
ferðamaðurinn á farangri
sínum til að varna því að hann
fyki burt.
Eftir barninginn við að
koma hjólinu og farangri hans
í lögreglubifreiðina, í hálku og
slæmu skyggni, var ferða-
langnum ekið á Blönduós. /BÞ
Björgunarsveitin Húnar fimm ára
Fengu óveðurs-
kistur að gjöf
Slysavarnadeildin Káraborg
færði björgunarsveitinni
Húnum í Húnaþingi vestra
afmælisgjöf nú á dögunum en
það voru tvær vel búnar
verkfærakistur með
verkfærum og öðrum búnaði
til að nota í óveðursútköllum.
Á heimasíðu björgunar-
sveitarinnar kemur fram að
fimm ár voru þann 24. febrúar
sl. frá sameiningu björgunar-
sveitanna Káraborgar og
Flugbjörgunarsveitar V-Hún.
„Færum við Slysavarnadeildinni
okkar bestu þakkir fyrir þessu
glæsilegu gjöf,“ segir loks á
heimasíðunni. /BÞ
Umferðin
Banaslys í
Skagafirði
12 ára piltur lést í alvarlegu
umferðarslysi sem varð
þegar jeppa var ekið út af
veginum skammt frá Kotá í
Skagafirði sl. föstudag.
Þrír aðrir voru í bílnum og
voru þeir allir fluttir með
þyrlu Landhelgisgæslunnar á
Landspítalann. Drengurinn
sem lést hét Blængur Mikael
Bogason og var frá Akureyri.
Þá varð umferðarslys á
Þverárfjalli kvöldið áður.
Samkvæmt heimildum Mbl.is
var bifreið ekið á kerru sem
önnur bifreið var með í
eftirdragi. Bæði bifreiðin og
kerran voru mikið skemmd
og bifreiðin í óökufæru
ástandi. Engin slys urðu á
fólki. /BÞ
Fullkomnar klippi-
græjur á Hofsósi
Lilja og Baltasar á Hofi færa Grunnskólanum góða gjöf
Nemendur Grunnskólans austan Vatna fengu góða
heimsókn í síðustu viku þegar þau Lilja Pálmadóttir og
Baltasar Kormákur á Hofi færðu skólanum að gjöf Apple
tölvu með „Final cut pro“ forriti sem gerir notendum
kleift að vinna kvikmyndir með fullkominni myndvinnslu.
Tölvan sú arna hefur m.a. verið notuð til að klippa og vinna
kvikmyndir Baltasars og vildu þau hjón með gjöfinni leggja sitt
af mörkum til að auka fjölbreytni í skólastarfinu ekki síst á
sköpunarsviðinu. Með þeim í för var Elísabet Ronaldsdóttir
klippari og kenndi hún nemendum á tækin en hún hefur klippt
fjölda kvikmynda. /PF
Ánægður hópur við tölvuna góðu. Mynd: Eiríkur Frímann Arnarson
Síminn
Kæri Sauð-
kræklingur
Sauðkrækingar hafa aldrei
verið ánægðir með að vera
kallaðir Sauðkræklingar
með „elli“ og munu líklega
ekki verða það í náinni
framtíð og því hafa efalaust
margir sopið hveljur sl.
mánudagsmorgun þegar inn
um bréfalúgu Króksara kom
dreifibréf frá Símanum
stílað: Kæri Sauðkræklingur.
En spurningin er hvort
þetta klaufalega ávarp hafi
glatt mannskapinn, því mikið
hefur gengið á hjá Facebook
notendum sem vildu fá afsök-
unarbeiðni frá Símanum.
Hún kom svo daginn eftir á
Feykir.is í bundnu máli.
Afturkalla ávarpið,
af iðrun rétt að springa.
Afsökunar ykkur bið
alla Sauðkrækinga. /PF
Vel búin verkfærakista með verkfærum og
öðrum búnaði til að nota í óveðursútköllum.
Mynd: hunar.123.is
Enn láta þjóðvegir landsins á sjá
Miklar skemmdir á
Þverárfjallsvegi
Vegagerðin hefur varað við
skemmdum á klæðningu
(slitlagi) á Þverárfjallsvegi
undanfarna daga en hluti
vegarins er stórskemmdur og
burðarlagið í honum að
brotna niður.
Samkvæmt heimildum Rúv.
is var rangt efni notað í veginn
þegar hann var lagður fyrir
áratug, auk þess sem ekki hafa
fengist fjármunir í eðlilegt
viðhald.
Um er að ræða 15 kílómetra
kafla sem er mjög illa farinn en
sá kafli var tekinn í notkun fyrir
aðeins tíu árum. Efsta burðar-
lagið í veginum er gefa sig og
molnar smám saman niður
undan umferð og tíðarfari.
Áætlaður kostnaður á viðgerð er
á bilinu 20 til 25 milljónir króna
á kílómeter og þýðir það að
viðgerð á 15 kílómetrum gæti
kostað allt að 375 milljónum
króna.
Að sögn Rúnars Péturssonar,
yfirverkstjóra Vegagerðarinnar á
Sauðárkróki, væri vegurinn ekki
orðinn svona illa farinn ef fengist
hefðu fjármunir í eðlilegt við-
hald þó svo að rangt efni hafi
verið notað í efsta burðarlag
vegarins á sínum tíma. Hann
tekur sem dæmi að nær aldrei
hafi verið lögð ný klæðning yfir
slitlagið frá því að vegurinn var
lagður.
„Og ekki bara á þessum vegi,
það er með flesta vegi sem við
erum að fá í andlitið núna sem
klæðningarnar eru að gefa sig,
það er eingöngu út af fjárskorti í
viðhald,“ sagði Pétur í samtali
við Ríkisútvarpið. /BÞ