Feykir - 07.03.2013, Qupperneq 6
6 Feykir 09/2013
Aðalfundur Skotfélagsins
Markviss var haldinn þann 9.
febrúar sl. en skráðir félagar
eru nú 70 talsins. Á fundinum
var til umræðu aðstöðuleysi
þeirra sem stunda kúlugreinar
en töluverður þrýstingur
hefur verið á stjórn félagsins á
undanförnum árum varðandi
úrbætur.
„Áhugi á riffilskotfimi er
gríðarlegur hérlendis auk
þess sem nýtilkomin skotpróf
hreindýraveiðimanna hafa
aukið ásókn skotmanna og
kvenna á riffilsvæði landsins,“
sagði Guðmann Jónasson
stjórn-armaður félagsins í
samtali við Feyki. Á fundinum
var ákveðið að sækja um leyfi
fyrir 300m riffilbraut á svæði
félagins og að auki var sótt um
leyfi fyrir 60m bogfimibraut
en mikil vakning hefur orðið
meðal bogfimi iðkenda að
undanförnu. Til vara var sótt
um leyfi fyrir 150m riffilbraut
og 30m bogfimibraut. Málið var
tekið fyrir á fundi skipulags-,
byggingar og veitunefndar
Blönduósbæjar þann 19. febrúar
sl. og var synjað, þar sem
nefndin taldi þessi áform ekki
vera í samræmi við núgildandi
aðalskipulag. „Nefndin treystir
sér ekki til að samþykkja þessa
framkvæmd fyrr en búið er að
Félagsmenn vilja bætta aðstöðu
Aðalfundur Skotfélagsins Markviss á Blönduósi
Keppendur Skotfélagsins Markviss á Norðurlandsmótinu 2012. Frá vinstri: Brynjar Þór Guðmundsson,
Snjólaug María Jónsdóttir og Guðmann Jónasson.
taka stefnumótandi ákvörðun
um notkun svæðisins,“ segir
í fundargerð. Guðmann sagði
stjórn félagsins muni halda
áfram að vinna að málinu og
vonast til þess að viðunandi
lausn finnist á því fljótlega.
Ný stjórn var kosin á fund-
inum en formaður félagsins
undanfarin ár Bergþór Pálsson
gaf ekki kost á sér til áfram-
haldandi setu í formanns-
stólnum og tók Snjólaug M.
Jónsdóttir við starfi formanns.
Aðrir stjórnarmenn eru auk
Snjólaugar, Guðmann Jónasson,
Brynjar Þór Guðmundsson,
Kristófer Kristjánsson og Berg-
þór Pálsson.
Skotíþróttamaður ársins
2012 var kjörinn Brynjar
Þór Guðmundsson, en hann
náði sínum besta árangri á
Norðurlandsmóti á Húsavík
þar sem hann hafnaði í 3. sæti á
skorinu 106/125 og komst upp
um flokk.
Mótaskrá Skotíþróttasam-
bandsins í haglagreinum segir
Guðmann liggja fyrir og hefst
keppnistímabilið í lok apríl.
Landsmót verður haldið að
venju á Blönduósi og verður það
dagana 22.-23. júní. Alls eru tíu
svokölluð „stímót“ á komandi
tímabili, en auk þeirra er UMFÍ
mót á Selfossi og Norður-
landsmótið en það verður haldið
af Markviss þetta árið og verður
dagana 17.-18. ágúst. Keppnis-
tímabilinu lýkur svo með
Bikarmóti 7.-8. september. /BÞ
Framfarir í mælingum
á mið-Norðurlandi
Stoð ehf. verkfræðistofa og Ísmar ehf. undirrituðu
samstarfssamning um uppsetningu og rekstur
GPS leiðréttingastöðvar í Skagafirði
Á myndinni sjást allar stöðvar VRS kerfisins.
Nýlega undirrituðu Stoð ehf.
verkfræðistofa og Ísmar ehf.
samstarfssamning um
uppsetningu og rekstur GPS
leiðréttingastöðvar í
Skagafirði. Leiðréttingar-
stöðin verður á landsvísu,
hluti af VRS kerfi Ísmar, sem
nú þegar hefur VRS-stöðvar
í rekstri á Akureyri, Húsavík,
Egilsstöðum, Höfn í
Hornafirði, Ísafirði,
Borgarnesi, Selfossi, Keflavík
og Reykjavík.
Ísmar hefur um árabil verið
leiðandi í sölu og þjónustu á
búnaði til landmælinga og
vélstýringa hérlendis.
Verkfræðistofan Stoð, sem
hefur starfað í heimahéraði á
þriðja áratug, hefur lengi verið
leiðandi í GPS mælingum á
Norðurlandi vestra, bæði fyrir
einstaklinga, verktaka, stofn-
anir, veitufyrirtæki og sveitar-
félög. Einnig hefur verkfræði-
stofan unnið mælingar vegna
skipulagsverkefna og afstöðu-
myndagerðar ásamt hnitsetn-
ingu jarða og landamerkja. Á
liðnu misseri hefur Stoð einnig
unnið mælingar og kortagerð
þeim fylgjandi fyrir landeig-
endur, hreppa og sveitarfélög
vegna þjóðlendukröfu ríkis-
sjóðs.
Með tilkomu hins nýja
búnaðar er brotið blað í mæl-
ingaraðferðum á svæðinu.
Mælingarmenn þurfa ekki
lengur að stilla upp fastri stöð
til að vinna út frá, heldur
hringja inn í VRS kerfi í gegn
um GPRS gátt. Við það sparast
mikill tími við uppsetningu
ásamt ferðatíma að og frá föstu
stöðinni til vinnusvæðis. Tíma-
munur við þetta verklag hefur
verið mældur og sýna rann-
sóknir að umtalsverður tíma-
sparnaður náist við að tengjast
VRS í stað þess að nota eigin
stöð. Ávinningurinn er háður
stærð verkefnis og mælingar-
tíma.
Í megin dráttum felst sam-
starfið í því, að verkfræðistofan
fyrir hönd heimaaðila fjárfesti í
búnaðnum og setti hann upp
með aðstoð tæknimanns Ísmar;
en Ísmar sér um rekstur á
búnaðnum, áskriftarsamninga
og aðgangsstýringu að gögn-
um. /Fréttatilkynning
Getur verið að hlutirnir þurfi
fyrst að versna til að geta
byrjað að batna? Ekki er víst
að það eigi við í Melstaðar-
kirkju í Miðfirði, því nýlega
var kirkjunni gefið vandað
rafmagnsorgel. Gefendur
voru söfnuðurinn sjálfur og
nokkrir velunnarar, sem tóku
svona vel við sér þegar
kirkjukórinn efndi til
almennrar söfnunar í vor.
Á skömmum tíma voru komnar
ein og hálf milljón í þessum
fremur fámenna söfnuði, sem
telur nú 135 sóknarbörn. Orgelið
var svo keypt og vígt við messu
hinn 3. febrúar. Það er þýskt
rafmagnsorgel af gerðinni
Ahlborn, tvö hljómborð og
fótspil. Organistinn, Pálína F.
Skúladóttir, lék ýmis orgelverk
hálftíma fyrir messu, og í eftirspil
var flutt tokkata og fúga í d-moll,
Lokað vegna endurbóta
Melstaðarkirkja í Húnavatnsprófastsdæmi
Tillaga arkitektsins að staðsetningu orgelsins nýja
eitt flottasta, en jafnframt
erfiðasta, verk tónbókmenntanna.
Bar þá svo við að í miðju verki
þagnaði orgelið. Af óútskýran-
legum ástæðum hafði rafmagnið
slegið út. Því var auðvelt að kippa
í liðinn og að því búnu gerði
Pálína sér lítið fyrir og lék verkið
að nýju frá upphafi. Var raf-
magnsbilunin túlkuð sem liður í
því að kirkjugestir fengu tvöfalda
ánægju af flutningnum. Eftir
messu var að vanda samvera í
safnaðarheimilinu þar sem
bornar voru fram sérstaklega
veglegar veitingar í tilefni af vel
heppnuðu verki. Í orgelnefnd
voru auk organistans Ólöf
Pálsdóttir og Guðrún Lára
Magnúsdóttir.
Nýja orgelið er staðsett niðri í
kirkjuskipinu og næst þannig
betra samband milli kórs og
kirkjugesta, en einnig prests. Í
framhaldinu var svo kynnt
hugmynd um að auka rými niðri
í kirkjunni með því að taka niður
skilrúm beggja vegna altarisins,
og þar með flytja skrúðhús og
geymslurými í safnaðarheimilið.
Gott pláss verður fyrir kór og
organista, og meira rými fyrir
ýmsar athafnir eins og fermingar
og sérstakan tónlistarflutning.
Eftir almennan safnaðarfund
ákvað sóknarnefnd að hrinda
framkvæmdum af stað og tók
smíðafyrirtækið Tveir smiðir að
sér framkvæmdina. Arkitekt er
Stefán Örn Stefánsson hjá Argos
arkitektastofu. Hann gerði einnig
tillögu um að breyta svalarými,
og er sú breyting áformuð síðar.
Loka verður kirkjunni meðan á
framkvæmdum stendur, en búist
er við að ný og betri kirkja verði
notuð við ferminguna, sem
verður í kirkjunni 28. apríl.
Þangað til fara athafnir fram í
Staðarbakkakirkju. Sú kirkja er
líka hlýleg og í góðu ásigkomulagi.
En á meðan mun ásýnd
Melstaðarkirkju versna til að hún
geti batnað.
Guðni á Melstað