Feykir - 07.03.2013, Side 14
14 Feykir 09/2013
Fjölmiðlahópur var starfandi hjá Feyki í einn dag á Opnum dögum FNV í síðustu viku.
Sjö ungmenni, þar af fjórar stelpur og þrír strákar, skráðu sig til leiks og fengu „alvöru“
fjölmiðlaverkefni til úrlausnar, s.s. viðtöl, umfjallanir og spurningu vikunnar.
Hér er afrakstur vinnu ungmennanna, einnig á bls. 27.
Opnir dagar í Fjölbraut
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
UMSJÓN
Berglind Þorsteinsdóttir
Elísa Björk segir Opna daga
vera til þess að brjóta upp
hið hversdagslega skólalíf og
nemendur fái að hafa gaman
án þess að vera að læra.
Hvað er gert á opnum
dögum? -Hvað er ekki gert?
Brýtur upp hvers-
dagslegt skólalíf
Viðtal við Elísu Björk Einarsdóttur forseta NFNV um Opna daga
UMSJÓN
Sara María
Ásgeirsdóttir
Það er mjög margt í boði, alveg frá júdó-
námskeiði og í matreiðslunámskeið. Úrvalið
hefur sjaldan verið jafn mikið og nú.
Var góð þátttaka hjá nemendum? -Þátttakan
var mjög góð, ég er mjög ánægð með nemendur.
Hvernig gekk að fá fólk til að halda námskeiðin
sem í boði voru? -Ótrúlega vel, allir voru mikið
til í að halda námskeið og rétta fram hjálparhönd
við undirbúning.
Nú er árshátíðin haldin á lokadegi Opnu
daganna, hvernig hefur undirbúningur fyrir
hana gengið? -Það hefur gengið mjög vel og þétt
dagskrá.
Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? -Takk
fyrir þátttökuna og vonandi skemmtirðu þér vel
á Opnum dögum.
Dreifnám frá
nemendum
Ragnar og Helga Rún segja frá reynslu sinni
Þegar dreifnámið byrjaði á Hvammstanga sl.
haust þá voru 17 nemendur skráðir. Uppruna-
lega þurfti minnst tíu manns til að námið yrði að
veruleika, en þegar þetta byrjaði, þá fór það fram
úr björtustu vonum. Það hefur áður komið fram
hvernig dreifnámið er formlega, en nú verður
talað um hvernig er að vera nemandi í því.
Það vakna kannski spurningar um félagslíf og
UMSJÓN
Ragnar Bragi
Ægisson og
Helga Rún
Jóhannsdóttir
skemmtanir, en allir aðal viðburðir eins og árshátíð, söngvarakeppni
og menningarkvöld, eru stílaðir inn á svokallaðar staðarlotur þar
sem nemendurnir koma á Krókinn, gista á vistinni og fara í tíma
þar samkvæmt stundaskrá. Eftir þessa aðalviðburði eru böll svo við
missum ekki af þeim. Lykilatriði í því að vera í dreifnámi er það að
skapa sitt eigið félagslíf, það er kannski erfitt í fyrstu en það kemur
svo allt. En við erum samt alltaf velkomin á Krókinn hvenær sem er.
Að vera í dreifnámi getur verið mjög hentugt og huggulegt. Maður
getur tekið bílprófið og æfingaraksturinn heima og með foreldrum
og búið ennþá heima og sleppt því að borga leigu. Borðað það sem
maður vill og fær heimilismat eins og maður er vanur, meiri
stuðning frá foreldrum og maður ræður mikið yfir sér sjálfur. Það
þarf samt að beita sjálfan sig aga til að læra því það er ekki fylgst eins
með því í tímum.
Í húsnæðinu þarf að hafa að okkar mati setustofu, kaffi eða
eldunaraðstöðu og auka rými til að læra í. Það þarf stórt rými til að
hafa sem kennslustofu og mikið af innstungum, þar sem mest allt
nám fer fram í gegnum tölvu og til að tengja allan útbúnað fyrir
fjarfundarbúnaðinn sem er kennt í gegnum. Það þarf líka nóg af
stólum og borðum, t.d. þegar það er verið að taka próf. Á hinum
endanum eru aðrir nemendur í tíma ásamt kennara. Í eldhúsinu
okkar erum við með mikið af þarfabúnaði, það sem við höfum mest
not af er örbylgjuofn, samlokugrill, brauðrist, ísskápur og poppvél. Í
setustofunni er mikilvægt að hafa slatta af leguplássi og mjúka sófa
og stóla. Það þarf líka að hafa aðstöðu fyrir umsjónarmann.
Í dreifnáminu eru nokkrar reglur, en þær eru mjög einfaldar og
eru í raun heilbrigð skynsemi. Við erum búin að taka það upp en
það er inná Youtube, ef maður skrifar „dreifnáms reglur“ þá kemur
það upp. Linkur> http://www.youtube.com/watch?v=BMvDjY1H8dY
Minn fermingardagur var
haldinn 25. apríl 2010. Við
byrjuðum að undirbúa
fermingardaginn mjög
snemma, mamma var sú
sem tók mestan þátt í að
undirbúa daginn.
Við fjölskyldan vöknuðum
Gleymdi ritningarversinu
Heiðrún Marý Björnsdóttir : Fermingardagurinn minn
eldsnemma og byrjuðum strax að gera mig
tilbúna fyrir daginn, greiða hárið og gera mann
sætan. Við mættum í kirkjuna og þar fermdist ég,
eina stelpan með fimm strákum. Ég get sagt að ég
var það stressuð að ég gleymdi ritningarversinu
mínu.
Veislan var haldin eftir kirkjuna, þar tók ég á
móti gestunum og margt fleira. Þótt mér hafi
fundist kakan mín vond, þurfti að vera á hælum í
sjö tíma, heilsa öllu þessu fólki sem ég þekkti
aðeins helminginn af og hafi gleymt ritningar-
versinu mínu fyrir framan alla í kirkjunni, fannst
mér þetta vera æðislegur dagur.
UMSJÓN
Jón Freyr
Gíslason og
Heiðrún Marý
Björnsdóttir