Sveitarstjórnarmál - 01.12.2014, Side 20
20
Í nýrri könnun um ferðir fólks og ferðamáta sem Land-ráð hefur unnið fyrir Vegagerðina kemur fram að heldur hefur dregið úr ferð-
um fólks út fyrir sveitarfélag eða búsvæði á milli áranna 2012 og
2014, notkun einkabíls hefur dregist saman en fleiri notfæra sér
almenningssamgöngur. Þá ferðast færri með innanlandaflugi en áður.
Í könnuninni kemur fram að um 8% svarenda notuðu strætisvagna
í ferðum út fyrir búsetusvæði og var meðalfjöldi ferða 4,5. Um 11%
svarenda töldu að fjöldi erlendra ferðamanna sumarið 2014 hafi haft
áhrif á ferðavenjur sínar. Um 75% þeirra hættu við að heimsækja fjöl-
sótta ferðamannastaði vegna fjölda erlendra ferðamanna sumarið
2014. Flestir vilja sjá fleiri jarðgöng á landsbyggðinni, umbætur á
hringveginum og bætta almenningsþjónustu.
Kostuð af Vegagerðinni
Könnun þessi var unnin fyrir samgönguyfirvöld af Land-ráði sf. í sam-
vinnu við MMR ehf. í þeim tilgangi að fá skýra mynd af ferðavenjum
innanlands og breytingum á þeim frá fyrri könnunum Land-ráðs sf.
Könnunin var kostuð af Vegagerðinni.
Upplýsingarnar í þessum könnunum eru hugsaðar sem grunngögn
fyrir stefnumótun í samgöngumálum. Þetta er 11. könnunin á ferða-
venjum sem Land-ráð sf. vinnur fyrir samgönguyfirvöld. Þessar kann-
anir eru nú unnar á tveggja ára fresti. Um 1.400 manns svörðu sumar-
könnun 2014 en könnunin var gerð í september 2014 og náði yfir
ferðavenjur júní til september. Könnunarstaðir hafa verið þessir í
könnunum Land-ráðs sf.: Landsbyggðakjarnar; Ísafjörður, Akureyri og
Egilsstaðir og nágrenni. Jaðarbyggð höfuðborgarsvæðisins: Akranes,
Árborg og Reykjanesbær. Höfuðborgarsvæðið; skipt í fjóra borg-
arhluta.
Notkun einkabílsins minnkar
Í könnuninni kemur fram að færri nota einkabíl en fyrir efnahags-
hrunið 2007. Notkun einkabílsins á höfuðborgarsvæðinu hefur dregist
saman úr 87% allra ferða 2007 í 75% 2014. Svarendur sem búa í eða
nærri miðborginni ganga meira og nota reiðhjól meira en aðrir svar-
endur á höfuðborgarsvæðinu. Tæp 8% nota yfirleitt strætó. Flestir
svarendur á höfuðborgarsvæðinu vilja sjá aukna áherslu á umbætur á
stofnbrautakerfinu, bætta þjónustu strætó og umbætur á göngu- og
hjólaleiðum. Áhersla á umbætur á stofnbrautakerfinu hefur minnkað
frá 2007 þegar flestir nefndu þann kost.
Mest notkun í jaðarbyggðum
Notkun einkabílsins er mest í jaðarbyggðum höfuðborgarsvæðisins
eða 87%, 85% í landsbyggðarkjörnum og minnst á höfuðborgar-
svæðinu eða 80%. Notkun einkabílsins vex almennt með aldri og
hærri tekjum. Þeir sem ferðast einna mest sem farþegar í einkabíl er
ungt fólk 18 til 24 ára, námsmenn og konur frekar en karlar sem og
fólk sem býr á höfuðborgarsvæðinu.
Ungt fólk notar áætlunarbíla og strætisvagna hlutfallslega mest.
Um 8% allra svarenda 2014 höfðu ferðast með strætó út fyrir búset-
usvæði sitt. Þetta er í fyrsta sinn sem spurt er um notkun strætó í
þessum könnunum. Konur nota þjónustuna heldur meira en karlar og
ungt fólk meira en það eldra, sérstaklega fólk á aldrinum 18 til 24 ára
en notkun fólks á aldrinum 55 til 64 ára er einnig nokkuð mikil.
Notkunin er tvöfalt meiri í jaðarbyggð en á öðrum könnunarsvæðum
eða um 14% að meðaltali.
Mikill munur á ferðavenjum
sumarið 2014 eftir byggðum
Í könnuninni kemur fram að mikill munur er
á ferðavenjum eftir byggðum. Um 21%
hafði notað strætisvagna í Árborg, 15% á
Akranesi en aðeins 6% í Reykjanesbæ. Tæp
7% Akureyringa notuðu strætó sumarið
2014 og rúm 10% íbúa á Egilsstöðum. Þeir
sem búa vestan Reykjanesbrautar í Reykjavík
notuðu strætó mun meira til ferða út fyrir
höfuðborgarsvæðið en aðrir íbúar á svæð-
inu.
Þeir sem notuðu strætó út fyrir búsetu-
svæði sumarið 2014 fóru að meðaltali 4,4
ferðir. Svarendur í jaðarbyggð fóru flestar
ferðir, að meðaltali 6,6, svarendur í lands-
byggðakjörnum 3,4 og svarendur á höfuð-
borgarsvæði fæstar, eða 2,4 að meðaltali.
Samgöngumál
Lengri ferðum fækkar – fleiri
nýta sér almenningssamgöngur
Ungt fólk notar áætlunarbíla og strætisvagna hlutfallslega mest, ef marka má niðurstöður könnunarinnar. Um
8% allra svarenda 2014 höfðu ferðast með strætó út fyrir búsetusvæði sitt en þetta er í fyrsta sinn sem spurt er
um notkun strætisvagna í þessum könnunum. Mynd: BB.