Fréttablaðið - 23.05.2018, Qupperneq 10
Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Um þetta er
myndin og
þetta er það
sem við sem
samfélag
þurfum að
ræða og það
án þess að
þeirri umræðu
sé stýrt af
þeim sem hafa
fjárhagslegra
eða jafnvel
tilfinninga
legra hags
muna að gæta.
Hvort sem það
eru norskir
auðmenn,
fulltrúar
þeirra, veiði
rétthafar eða
breskir
laxveiðimenn.
Í Garðabæ
höfum við
unnið að því
að íbúar hafi
val um
fjölbreytta og
ólíka val
kosti er varða
þjónustu
sveitar
félagsins.
ára
s. 511 1100 | www.rymi.is
Brettatjakkar
Kynningarverð:
43.179 kr. m/vsk
Formaðurinn dragbítur
Það er stundum sagt að vika sé
langur tími í pólitík. Sjö mánuðir
eru þá væntanlega á við heila
eilífð. Þetta ætti Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, að vita öðrum mönnum
betur. Í aðdraganda alþingis-
kosninganna sem fóru fram í
lok október 2017 voru fréttir af
viðskiptum Bjarna fyrir hrun og
fréttir af tengslum föður hans við
dæmdan kynferðisbrotamann
mjög fyrirferðarmiklar. Reyndar
var komin upp umræða á meðal
manna um að formaðurinn
sjálfur væri orðinn dragbítur á
velgengni eigin flokks.
Leikur á als oddi
Nú sjö mánuðum síðar er allt
önnur staða uppi á borðinu.
Nú veitir Bjarni flokksfélögum
sínum liðsinni í kosningabarátt-
unni fyrir komandi sveitarstjórn-
arkosningar. Sem dæmi má nefna
að í síðustu viku kom Bjarni fram
á blaðamannafundi með Eyþóri
Arnalds, oddvita Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, þar sem
áherslumál Sjálfstæðisflokksins
um samgöngur í Reykjavík og
lægri álögur á borgarbúa voru
kynntar. Nú um hvítasunnuhelg-
ina var hann svo viðstaddur fjöl-
skyldugrill Sjálfstæðisflokksins
í Hafnarfirði. Og ekki er annað
að heyra en að minnsta kosti
flokksfélagar Bjarna séu ánægðir
með framgöngu formannsins í
aðdraganda kosninganna.
jonhakon@frettabladid.is
Garðabær er fjölskylduvænt og samheldið samfélag þar sem gott er að búa. Það er engin tilviljun að um 90% bæjarbúa eru ánægð með
þjónustu í leik- og grunnskólum bæjarins. Slíkur
árangur og ánægja íbúa verður til af því að við forgangs-
röðum og leggjum m.a. áherslu á góða skóla og öflugt
íþrótta- og tómstundastarf.
Val og vilji bæjarbúa
Í Garðabæ höfum við unnið að því að íbúar hafi val um
fjölbreytta og ólíka valkosti er varða þjónustu sveitar-
félagsins. Við hlustum á hvað íbúar vilja, tökum þjón-
ustukannanir alvarlega og fylgjum því eftir hvað íbúar
vilja að gert sé. Garðabær er fyrsta sveitarfélagið sem
setur sér stefnu í íbúalýðræði og á þessu kjörtímabili
hafa verið haldnir 39 opnir íbúa-, samráðs- og kynn-
ingarfundir eða fundur á sex vikna fresti að meðaltali.
Uppbygging og sterk fjárhagsstaða
Loforð og samráð eru til lítils ef fjárhagsstaðan er ekki
í lagi. Góð þjónusta og uppbygging byggist á grunni
sterkrar fjárhagsstöðu. Góð afkoma bæjarsjóðs og
lækkandi skuldir gera okkur kleift að lækka álögur enn
frekar. Í Garðabæ er uppbygging mikil, verið er að reisa
búsetukjarna fyrir eldri borgara og fatlaða einstaklinga
ásamt því að búið er að skipuleggja hverfi fyrir ungt
fólk. Garðabær er eftirsóttur, ekki aðeins vegna góðrar
þjónustu heldur einnig vegna einstakrar náttúru og við
höfum nú þegar friðlýst 40 prósent af bæjarlandinu.
Lífsgæði
Sveitarfélögin bera ábyrgð á mörgum af mikilvægustu
hagsmunamálum landsmanna og hafa því veruleg áhrif
á lífsgæði okkar allra. Í Garðabæ höfum við lagt góðan
og sterkan grunn þannig að hér geti áfram vaxið öflugt,
metnaðarfullt og samheldið samfélag. Samfélag þar sem
allir fá að njóta sín. Stjórnmál snúast um forgangsröðun
og traust. Það að vera samkvæmur sjálfum sér og standa
við gefin fyrirheit. Það höfum við gert – og ætlum gera
áfram.
Pólitík er forgangsröðun!
Áslaug Hulda
Jónsdóttir
formaður bæjar-
ráðs Garðabæjar
og skipar 1. sæti
á lista Sjálf-
stæðisflokksins í
Garðabæ
Heimildarmyndagerð hefur vaxið mjög fiskur um hrygg á síðustu árum. Skýringin kann að felast í auknu aðgengi í gegnum efnisveitur en líka í veikri stöðu fjölmiðla þar sem fjár-magn til rannsóknarblaðamennsku
er af skornum skammti. En hvað sem því líður þá
hefur samfélagslegt mikilvægi heimildarmynda
aukist til muna og því mikilvægt að skilja miðilinn.
Undir yfirborðinu, heimildarmynd um laxeldi í
sjókvíum og möguleg neikvæð áhrif þess iðnaðar,
eftir Þorstein Joð Vilhjálmsson var nýverið sýnd á
RÚV. Í myndinni kemur fram margt sem samfélagið
þarf að ræða undir handleiðslu sérfræðinga sem hafa
engra hagsmuna að gæta. Það reyndar stóð ekki á við-
brögðum hagsmunaaðila en Einar K. Guðfinnsson,
formaður Landssambands fiskeldisstöðva, sagði að
Undir yfirborðinu væri ekki heimildarmynd í þeim
skilningi orðsins. Fleiri hagsmunaaðilar tóku í sama
streng en minna fór fyrir málefnalegri umræðu um
mögulega skaðsemi af starfseminni.
Þessi gagnrýni er annaðhvort sett fram til þess að
afvegaleiða umræðuna eða að viðkomandi eru að
misskilja eðli heimildarmynda. Í Undir yfirborðinu er
ekki dregin dul á að þar er fjallað um mögulega skað-
semi af laxeldi í sjókvíum. Það er mál sem er verið að
krefja samfélagið um að ræða með faglegum hætti.
Sem dæmi um slíkar heimildarmyndir eru Bowling
for Columbine, eftir Michael Moore og Super Size Me,
eftir Morgan Spurlock. Myndir sem fá mann til þess
að hugsa, kynna sér jafnvel málið enn frekar og taka
sjálfstæðar ákvarðanir.
Í Undir yfirborðinu er með sambærilegum hætti
verið að hvetja samfélagið til þess að fara í þá umræðu
hvort laxeldi í opnum sjókvíum sé áhættunnar virði
fyrir byggðarlögin, náttúruna, villta laxastofna og
komandi kynslóðir. Myndin er ekki einhvers konar
fréttaskýringarþáttur um kosti og galla þessarar starf-
semi heldur dregur fram mögulegar afleiðingar fyrir
náttúruna og samfélagið. Mögulega útrýmingu villtra
íslenskra laxastofna, mengun í fjörðum, skaðleg áhrif
á lífríkið, takmarkaðan ávinning dreifðra byggða og
fleira mætti til taka. Um þetta er myndin og þetta er
það sem við sem samfélag þurfum að ræða og það án
þess að þeirri umræðu sé stýrt af þeim sem hafa fjár-
hagslegra eða jafnvel tilfinningalegra hagsmuna að
gæta. Hvort sem það eru norskir auðmenn, fulltrúar
þeirra, veiðirétthafar eða breskir laxveiðimenn.
Þegar horft er á mynd á borð við Undir yfirborðinu
er einmitt allt að því áþreifanlegt að þar er stundum
verið að tala við hagsmunaaðila til beggja átta. Það
er eðlilegt að allir fái að láta rödd sína heyrast og
reynt sé að draga upp skýra heildarmynd af málinu.
En það sem hlýtur að vega þyngst í myndinni eru
þær raddir sem hafa engra hagsmuna að gæta en búa
hins vegar yfir mestri þekkingu. Undir yfirborðinu
er þannig mynd sem krefur okkur um að hugsa og
leggja okkur eftir öllum staðreyndum málsins og er
því svo sannarlega heimildarmynd. En hvort öllum
hagsmunaaðilum líkar það sem þar kemur fram er
annað mál.
Misskilningur
2 3 . M A Í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
E
-9
1
5
C
1
F
D
E
-9
0
2
0
1
F
D
E
-8
E
E
4
1
F
D
E
-8
D
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K