Fréttablaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 43
BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 E N N E M M / S ÍA / N M 8 5 9 1 8 R e n a u lt K a n g o o 5 x 2 0 j a n RENAULT KANGOO DÍSIL, 1,5 L, 90 HESTÖFL. NÚ Í FYRSTA SINN SJÁLFSKIPTUR Verð: 2.379.000 kr. án vsk. 2.950.000 kr. m. vsk. Eyðsla 4,3 l/100 km* RENAULT KANGOO RAFBÍLL NÝ STÆRRI RAFHLAÐA - 33 KWH UPPGEFIN DRÆGNI 270 KM** Verð: 3.750.000 kr. *M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m lei ða nd a um e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tri / **S am kv æ m t u pp ge fn um tö lu m fr am lei ða nd a um d ræ gn i v ið b es tu m ög ul eg u að st æ ðu r ( NE DC ). RENAULT KANGOO TVÆR NÝJUNGAR Renault atvinnubílar hafa slegið í gegn með hagstæðu verði og ríkulegum búnaði. Nú bjóðum við tvær spennandi nýjungar á þessum vinsæla sendibíl. Kangoo með dísilvél og sjálfskiptingu og Kangoo EV með stærri rafhlöðu. www.renault.is 100% RAFMAGN KÖRFUBOLTI Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður í körfubolta, hefur nýverið lokið viðburðaríku keppn- istímabili með liði sínu, Cholet, en liðið sogaðist ofan í fallbaráttu undir lok leiktíðarinnar eftir fína byrjun. Ýmislegt gekk á hjá franska liðinu á leiktíðinni sem var að ljúka, en Haukur Helgi og félagar hans sluppu sem betur fer við falldraug- inn á endanum. Haukur Helgi var að hvíla lúin bein á Mallorca þegar Fréttablaðið forvitnaðist um stöðu mála hjá honum. „Þetta var ansi kaflaskipt tímabil og margt furðulegt sem gerðist hjá liðinu í vetur. Við vorum góðir fyrir áramót og vorum bara um miðja deild um áramótin. Svo fór að síga á ógæfuhliðina eftir áramót og þegar upp var staðið náðum við bara í fimm sigurleiki í sautján tilraunum á þessu ári og endum í því að vera í baráttu í neðri hluta deildarinnar. Þetta lið var ekki svona slakt og það voru meiðsli og veikindi til að mynda hjá mér sem settu strik í reikninginn,“ segir Haukur Helgi þegar hann rifjar upp keppnistíma- bilið. „Það var einnig nokkuð mikil velta á leikmönnum hjá okkur sem hjálpaði ekki til. Til þess að toppa vesenið á okkur á leikmannamark- aðnum þá gufaði bandarískur leik- maður sem hafði samið við félagið upp skömmu eftir hann kom til okkar. Liðsfélagi minn skutlaði honum bara á flugvöllinn og hann sagðist vera að fara í stutta ferð og kæmi svo aftur. Við sáum hann ekkert aftur og ég veit ekkert hvers vegna hann guggnaði á að koma,“ segir hann um vandræðaganginn hjá félaginu undanfarna mánuði. „Við náðum hins vegar að bjarga okkur fyrir horn og það er fyrir öllu. Ég er líka laus við meiðslin sem voru að plaga mig í upphafi árs og það er kærkomið að komast í smá frí eftir langt og strangt tímabil. Næst á dag- skrá hjá mér eru landsleikir í júní og ég fer að huga að þeim í lok maí. Það eru breytingar í farvatninu hjá Cho- let, þjálfaraskipti, og svo á að hleypa ungum og efnilegum frönskum leikmönnum að hjá liðinu,“ segir Haukur Helgi um framtíðina. „Aðstoðarþjálfarinn er að taka við liðinu og stefnan er að hleypa að leikmönnum sem hafa verið að gera það gott með unglingaliðinu undanfarin ár. Það er alveg spenn- andi að taka þátt í því og þeir hafa boðið mér að vera áfram hjá félag- inu. Ég mun skoða hvernig landið liggur í lok júlí og ákveða mig hvað ég geri. Það eru fleiri lið að kroppa í mig, en mér liggur ekkert á að taka ákvörðun. Mig langar á einhverjum tíma- punkti að fara aftur til Spánar og sanna mig þar. Ég var of ungur þegar ég fór þangað og það er í stefnu- skránni að fara einhvern tímann þangað aftur, hvort það gerist í haust eða seinna kemur svo bara í ljós,“ segir Haukur Helgi enn fremur um framtíð sína. hjorvaro@frettabladid.is Skrautlegt tímabil að baki hjá Hauki Haukur Helgi Pálsson og félagar hans hjá Cholet hafa lent í skakkaföllum í vetur sem urðu til þess að liðið var nálægt falli. Haukur Helgi gæti vel hugsað sér að vera áfram hjá félaginu á næstu leiktíð, en setur stefnuna á að spila einhvern tímann aftur á Spáni. Það var einnig nokkuð mikil velta á leikmönnum hjá okkur sem hjálpaði ekki til. Til þess að toppa vesenið á okkur á leikmannamarkaðinum þá gufaði bandarískur leik- maður sem hafði samið við félagið upp skömmu eftir hann kom til okkar. Haukur Helgi Pálsson Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður í körfubolta, er hérna á fleygiferð með liði sínu Cholet í deildarleik í lok apríl. Hann lék afar vel með liðinu á nýlokinni leiktíð og átti ríkan þátt í að það hélt sæti sínu í efstu deild. NORDICPHOTOS/GETTY S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M I Ð V I K U D A G U R 2 3 . M A Í 2 0 1 8 2 3 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F D E -6 9 D C 1 F D E -6 8 A 0 1 F D E -6 7 6 4 1 F D E -6 6 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 2 2 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.