Fréttablaðið - 23.05.2018, Síða 24
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Blaðburður er frábær og allra besta vinnan fyrir unglinga. Maður er laus áður en dagur-
inn hefst og það er gott að vakna
snemma og mæta í skólann vel
vakandi og ferskur eftir hressandi
hreyfingu og útivist,“ segir Daníel
Alex, sem hefur borið út Frétta-
blaðið með móður sinni Zdenku í
hálft þriðja ár.
Þau mæðgin bera út í fjórar
götur í Kópavogi og taka daginn
snemma.
„Við vöknum klukkan fjögur,
hálf fimm á morgnana og erum
búin um sexleytið, en tökum líka
aukagötur ef með þarf. Fyrstu
tvær vikurnar fannst mér erfitt að
vakna svona snemma en ég vandist
því fljótt að sofna um áttaleytið
og vakna hálffimm. Svefn er að
sjálfsögðu mikilvægur fyrir blað-
burðarfólk en það á vel við mig að
vakna snemma. Ég er bæði kvöld-
svæfur og morgunhani og finnst
gott að hafa daginn fyrir mér áður
en ég mæti í skólann, auk þess sem
morgunstund gefur gull í mund,“
segir Daníel sem gengur upp
og niður brekkurnar í Álfatúni,
Brekku túni og Daltúni, ásamt því
að bera út Fréttablaðið í Bæjartún.
„Til að byrja með var erfitt að
labba upp brattar brekkurnar
með 200 blöð en núna eru sömu
brekkur orðnar léttar. Maður
kemst fljótt í gott form við að bera
út blöð, finnur þolið og þrekið
aukast og fæturnir styrkjast mikið
við að labba nokkra kílómetra á
dag. Við mamma njótum þess að
vera úti og hreyfa okkur og þegar
maður fer í fjallgöngu með skól-
anum eru það blaðburðarbörnin
sem fara oft hraðast upp á meðan
hinir þurfa að hvíla sig á leiðinni.“
Flugmannsdraumur rætist
Daníel var á fjórtánda ári þegar
hann byrjaði í blaðburðinum og er
farinn að kannast við marga í hverf-
inu eftir að hafa borið út Frétta-
blaðið í hálft þriðja ár.
„Við köstum kveðju á nokkra sem
við mætum á hverjum morgni og
köttur í Daltúni hefur fylgt okkur
eftir í tvö ár. Hann er fyrir löngu
farinn að þekkja hljóðið í bílnum
og bíður okkar þolinmóður þegar
við mætum, sem er mjög vinalegt.
Eldsnemma einn morguninn virtist
hann hafa lokast inni í stigagangi
blokkar sem við berum út dag-
blöð í, heldur ósáttur við að missa
af blaðburðinum svo mamma
þurfti að dingla bjöllu hjá einhverri
manneskju til að hleypa kettinum
út og sá varð glaður!“ segir Daníel
og hlær að minningunni.
Hann er nú í lokaprófum við
Álfhólsskóla og stefnir á flugnám í
Tækniskólanum í haust.
„Mig hefur dreymt um að verða
atvinnuflugmaður síðan ég var lítill
strákur og ætla nú að láta drauminn
rætast. Ég er þegar byrjaður í
einkaflugmannsnámi og nota blað-
burðarlaunin til að borga fyrir flug-
tímana,“ segir Daníel sem vinnur
einnig í Bónus með skólanum
ásamt því að bera út Morgunblaðið
í sömu götur.
„Mér finnst gaman að vinna og
safna skipulega fyrir flugnáminu,
utanlandsferðum, skemmtunum
og ég er auðvitað byrjaður að safna
mér fyrir bíl. Við mamma förum á
hverju sumri í heimsókn til ömmu
og afa í Tékklandi en höfum líka
farið tvö saman til Búlgaríu, Mar-
okkó, Egyptalands og víðar. Okkur
þykir gaman að skoða heiminn
saman en gætum það ekki né keypt
okkur alls kyns hluti ef við bærum
ekki út Fréttablaðið.“
Daníel sér fyrir sér að halda blað-
burðinum áfram eins lengi og hann
getur.
„Það er gaman að vinna sér inn
fyrir launum en maður þarf að gæta
þess að fara ekki daglega í Smára-
lind eða Kringluna til að borða úti
og kaupa sér óþarfa. Ég skammta
mér tíu þúsund krónur á mánuði
til skemmtana og þegar það er búið
þá er það bara búið og ég bíð til
næstu mánaðamóta. Það finnst mér
ekkert mál því það er svo gaman að
geta eytt í það sem mann langar til
yfir sumartímann.“
Besta vinnan
fyrir unglinga
Daníel Alex Davíðsson var á fjórtánda ári þegar hann hóf
að bera út Fréttablaðið. Fyrir launin kostar hann flugnám,
safnar sér fyrir bíl, ferðast um heiminn og skemmtir sér.
Daníel Alex segir blaðburðinn vera frábært starf en hann ber út Fréttablaðið með móður sinni, Zdenku. Fyrir launin geti þau leyft sér að ferðast og njóta lífsins sem væri erfiðara ella. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Ertu í lEit að draumastarfinu?
Finndu þitt starf á atvinna.frettabladid.is
NÝJAR VÖRUR Á ÍSLANDI
Sjá sölustaði á
birkiaska.is
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . M A Í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
2
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
E
-9
B
3
C
1
F
D
E
-9
A
0
0
1
F
D
E
-9
8
C
4
1
F
D
E
-9
7
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K