Fréttablaðið - 23.05.2018, Side 25

Fréttablaðið - 23.05.2018, Side 25
Framhald á síðu 2 ➛ M I ÐV I KU DAG U R 2 3 . M A Í 2 0 1 8 Kynningar: Smáralind – Smáratívolí óp v gur Hekla Kollmar og Dagur Bjarnason hafa búið í Kópavogi frá blautu barnsbeini. Á myndina vantar Elvar Bjarnason. MYND/SIGTRYGGUR ARI Frá Kópavogi til Kína Hekla Martinsdóttir Kollmar, Elvar Bjarnason og Dagur Bjarnason eru Kópavogsbúar á sautjánda ári sem eru á leið til Kína með þjóðlagasveitinni Þulu sem varð til í Tónlistarskóla Kópavogs. Dagur og Elvar eru tvíburar og fæddir og uppaldir í Hvann-hólmanum. Þeir eru mjög sammála um að það hafi verið gaman að alast upp í Kópavogi. „Í Hólmunum er stutt bæði í Elliðaár- dalinn og svo niður í Fossvogsdal þar sem var æðislegt að leika sér,“ segir Elvar og Dagur samsinnir því. Hekla býr á Kársnesinu og man eftir því þegar hún flutti þangað þriggja ára gömul. „Ég man eftir því að mér leist mjög vel á allt,“ segir hún. „Kársnesið er mjög skemmtilegur staður fyrir krakka, stutt í náttúru og rétt við fjöruna og sjóinn.“ Hekla býr í einu grónasta hverfi Kópavogs ásamt foreldrum sínum og þremur systkinum þar sem er stór garður sem fjölskyldan nýtir vel. „Við erum með þrjár hænur í garðinum,“ segir hún en bætir við að hún skipti sér ekkert mikið af þeim heldur séu þær alfarið á ábyrgð pabba hennar. „Það er enginn hani, það voru hanar í upphaflega unga- hópnum sem við fengum en þegar þeir byrjuðu að gala sendum við þá aftur í sveitina og fengum hænur í staðinn.“ Fjölbreytt tómstundastarf í boði Öll hafa þau reynt sig við fjölbreytt tómstundastarf í bænum. „Ég prófaði mjög margt á sínum tíma,“ segir Hekla sem æfði um tíma bæði sund og frjálsar með Breiðabliki. „Ég prófaði líka sundið og var í skát- unum en er hættur í hvoru tveggja,“ segir Elvar. Dagur segist hafa æft körfubolta. „Og svo er ég í skátafé- laginu Kópum,“ segir hann. „Skáta- starfið er mjög virkt í Kópavogi og mjög gaman að taka þátt í því.“ Dagur og Elvar eru eineggja tvíburar og þaulvanir að vera ruglað saman og að talað sé við þá í fleirtölu. „Hárið á okkur er aðeins öðruvísi núna svo við getum ekki verið að rugla í fólki lengur,“ segir Elvar hlæjandi. „Við ákváðum að fara hvor í sinn framhaldsskólann, meðal annars til að vera ekki lengur alltaf tvíburarnir,“ segir Dagur og bætir við að þeir segi ekki nýjum skólafélögum endilega frá því að þeir eigi nauðalíkan tvíburabróður. KYNNINGARBLAÐ 2 3 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F D E -8 C 6 C 1 F D E -8 B 3 0 1 F D E -8 9 F 4 1 F D E -8 8 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 2 2 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.