Fréttablaðið - 23.05.2018, Qupperneq 37
Suðurhrauni 1 | 210 Garðabæ | Sími: 59 50 300 | www.isafold.is
Ingibjörg „Bagga“ Jóhannsdóttir,
bókbindari og göngugarpur
Ísafold er ein stærsta prentsmiðja landsins og þjónustar
daglega stóran hóp viðskiptavina. Verkefni okkar eru
jafn fjölbreytt og viðskiptavinir okkar eru margir. Allt frá
einföldum nafnspjöldum til bæklinga sem dreift er í öll
heimili landsins. Bækur, tímarit, bæklingar og umbúðir.
Við komum hugmyndum þínum í framkvæmd.
Hafðu samband og við klárum þetta saman.
Ísafoldarprentsmiðja er umhverfisvottuð prentsmiðja af Svaninum, norræna umhverfismerkinu. Við erum aðilar að Rammasamningi Ríkiskaupa og Rammasamningi Reykjavíkurborgar.
Við framleiðum dagblöð, bækur, tímarit, bæklinga, umbúðir, veggspjöld, bréfsefni, umslög, nafnspjöld, fjölpóst og margt fleira.
Það eru raunar ekki
bankarnir sem
greiða skattinn í reynd,
heldur þeir sem taka lán hjá
bönkunum, bæði fólk og
fyrirtæki.
Ásgeir Jónsson,
dósent í hagfræði
við Háskóla
Íslands
Engin þjóð gerir sér að leik að veikja eigið fjármálakerfi
Óli Björn Kárason, formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar, segir nauðsynlegt að afnema bankaskattinn
til þess að búa til eðlilegt samkeppnisumhverfi á
fjármálamarkaði. Skatturinn hafi alltaf átt að vera
tímabundinn til þess að fjármagna skuldaleið-
réttinguna.
„Skatturinn skerðir sam keppni íslensku
bankanna jafnt í samkeppni við innlenda aðila
sem ekki þurfa að standa undir svipuðum skatt-
greiðslum en einnig gagnvart erlendum bönkum
sem eru umsvifamiklir í útlánum til stærstu
fyrirtækjanna hér á landi. Almenn-
ingur og fyrirtæki þurfa að standa
undir þessum skatti með einum
eða öðrum hætti því bankarnir
geta ekki boðið jafn hagstæð kjör
og þeir annars gætu. Útlánavextir
eru hærri en ella og það dregur úr
samkeppni á íbúðalánamarkaði,“
nefnir Óli Björn.
Hann segir að á undanförnum
árum hafi öllu regluverki fjármálamarkaðarins verið
gjörbreytt. „Það hefur verið keppikefli að öll
íslensk fjármálafyrirtæki starfi eftir sömu
ströngu reglum og fjármálafyrirtæki í
Evrópu og lúti sama eftirliti. Þetta hefur
verið talið mikilvægt. En við getum ekki
um leið dregið úr samkeppnishæfni
íslensku bankanna með sérstakri skatt-
lagningu sem hvergi þekkist.
Það eitt mun til lengri tíma veikja stöðu
bankanna og grafa undan möguleikum
þeirra til að bjóða hér þá þjónustu sem
almenningur og fyrirtæki þurfa á að halda.
Engin þjóð gerir sér að leik að veikja eigið
fjármálakerfi. Þvert á móti er það keppikefli
þeirra þjóða þar sem velmegun er mest að
virkja samkeppni á fjármálamarkaði og
stuðla að fjárhagslegu heilbrigði hans.“
Óli Björn Kárason, formaður efnahags-
og viðskiptanefndar Alþingis
skattsins og hárra eiginfjárkrafna
– boðið öflugustu útflutningsfyrir-
tækjum landsins sambærileg kjör
við það sem þau geta fengið hjá
erlendum bönkum.
Útlán innlendra banka og spari-
sjóða til fyrirtækja námu um 1.150
milljónum króna um síðustu ára-
mót en lán erlendra banka til fyrir-
tækja voru á sama tíma um 550
milljónir. Er hlutur þeirra síðar-
nefndu því um þriðjungur af heild-
arlánum til hérlendra fyrirtækja.
Ólíklegt að kjörin batni
Þrátt fyrir að því hafi verið haldið
fram að bankaskatturinn sé til
þess fallinn að hækka útlánavexti
verður þó að teljast ólíklegt, að mati
sumra viðmælenda Markaðarins, að
vaxtakjör bankanna batni ef banka-
skatturinn verður lækkaður eða
afnuminn. Ástæðan er einkum sögð
sú að bankarnir hafa forðast að velta
kostnaðinum út í verðlagið.
„Þeir sem hafa borgað banka-
skattinn eru því fyrst og fremst hlut-
hafar,“ segir einn viðmælandi.
Jón Guðni Ómarsson, fjármála-
stjóri Íslandsbanka, segir að þegar
bankaskatturinn hafi verið hækk-
aður á sínum tíma til þess að fjár-
magna skuldaleiðréttinguna hafi
skatturinn verið sagður tímabundin
aðgerð. „Við veltum þess vegna
kostnaðinum ekki yfir í verðlagið
því við töldum að skatturinn væri
á útleið. En ef við förum ekki að sjá
til lands með það þurfum við á ein-
hverjum tímapunkti að reyna að
koma kostnaðinum inn í verðlagn-
inguna.“ Ekki sé þó sjálfgefið að það
sé hægt enda ríki mikil samkeppni á
markaðinum, til dæmis við lífeyris-
sjóði og erlenda banka.
Jón Guðni bendir á að arðsemi
eigin fjár bankans af reglulegri starf-
semi, leiðrétt fyrir bankaskatti, hafi
verið 8,2 prósent á fyrsta ársfjórð-
ungi. Arðsemin væri um þremur
prósentustigum lægri ef tekið væri
tillit til skattsins.
„Við höfum sett okkur markmið
um að arðsemi grunnrekstrar bank-
ans sé á bilinu 8 til 10 prósent sem er
reyndar í lægri kantinum miðað við
norræna banka sem vilja flestir hafa
hlutfallið á bilinu 10 til 12 prósent.
Ef bankaskatturinn verður áfram
við lýði til lengri tíma verður hins
vegar erfitt fyrir okkur að ná fram
viðunandi arðsemi á eigið fé með
sama hætti og bankar í nágranna-
ríkjum okkar,“ segir hann.
Skattar á fjármálafyrirtæki hér á
landi séu umtalsvert hærri en þekk-
ist annars staðar. Í því sambandi
bendir hann á að skattheimtan hér
hafi áhrif til fjögurra prósenta lækk-
unar á arðsemi eigin fjár bankans á
meðan áhrifin séu um eitt prósent
í öllum helstu nágrannaríkjunum.
Skattbyrðin sé því allt að því fjórföld
miðað við þau ríki.
Fram kom í greiningu Yngva
Arnar Kristinssonar, hagfræðings
SFF, frá því á síðasta ári að banka-
skatturinn væri um tíu sinnum
hærri hér á landi en almennt tíðkað-
ist í þeim Evrópuríkjum sem leggja
á slíkan skatt. Í ríkjunum væri hlut-
fall bankaskatts að jafnaði um 0,02
til 0,03 prósent af landsframleiðslu
en hér á landi væri hlutfallið 0,35
prósent.
Ríkið rýrir eigin hlut
Samkvæmt eigendastefnu fyrir fjár-
málafyrirtæki í eigu ríkisins, sem
samþykkt var síðasta sumar, stendur
til, þegar hagfelld og æskileg skilyrði
eru fyrir hendi, að selja allt hlutafé
í Íslandsbanka en halda eftir 34 til
40 prósenta hlut í Landsbankanum.
Fyrirséð er að endurheimtur ríkis-
sjóðs verða umtalsvert minni en ella
við fyrirhugaða sölu á bönkunum
vegna sértæku skattanna sem þeir
greiða enda hafa skattarnir þau
áhrif að minnka verulega arðsemi
af rekstri.
Þó svo að ríkið hafi selt allan 13
prósenta hlut sinn í Arion banka í
febrúar hefur það ríka hagsmuni af
því að vel takist til við boðað hluta-
fjárútboð bankans og að sem hæst
verð fáist fyrir þann hlut sem Kaup-
þing hyggst selja. Mikill meirihluti
þeirrar fjárhæðar mun enda renna í
skaut ríkisins vegna afkomuskipta-
samningsins sem gerður var við
kröfuhafa Kaupþings.
Einn viðmælandi Markaðarins,
sem þekkir vel til mála, segir að „eitt
það vitlausasta“ sem stjórnvöld gætu
gert væri að halda bankaskattinum
óbreyttum fram að skráningu Arion
banka en aflétta honum að skrán-
ingu lokinni. Bréfin í bankanum
myndu þá enda rjúka upp í verði.
Jón Guðni bendir á að jafnan sé
talið að sterkt samband sé á milli
arðsemi eigin fjár og verðmæti
banka. Bankaskatturinn lækki arð-
semi Íslandsbanka um þrjú pró-
sentustig sem þýði að verðmæti
hlutafjár bankans sé um 40 millj-
örðum króna minna en annars.
Skattlagningin hafi því mikil áhrif
á það verð sem ríkið, sem eigandi
bankans, geti fengið fyrir hann.
Stefán segir afar líklegt að banka-
skatturinn, sem og aðrir sértækir
skattar, hafi bein áhrif á virði bank-
ans enda lækki hann arðsemi eigin
fjár bankans og almennt séð ráðist
verðlagning banka að miklu leyti af
væntri arðsemi. „Við höfum sagt að
sértæku skattarnir, það eru banka-
skatturinn, sex prósenta viðbótar-
tekjuskattur og fjársýsluskattur af
launatekjum, lækki arðsemi eigin
fjár bankans um ríflega eitt og hálft
prósentustig.“
markaðurinn 7M I Ð V I K U D A G U R 2 3 . M A í 2 0 1 8
2
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
E
-8
C
6
C
1
F
D
E
-8
B
3
0
1
F
D
E
-8
9
F
4
1
F
D
E
-8
8
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K