Fréttablaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 45
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Áróra Tryggvadóttir
Þykkvabæ 7,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
mánudaginn 7. maí. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Viljum við koma á framfæri innilegu þakklæti til
starfsfólksins á öldrunardeild Sjúkrahúss Akraness og
hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík fyrir yndislega
umönnun og hlýju. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á líknarfélög.
Elliði Norðdahl Ólafsson Auður Auðbergsdóttir
Sigrún Guðlaug Ólafsdóttir
Magnús Ólafsson Laufey Stefánsdóttir
Sunna Ólafsdóttir Björn Ingi Rafnsson
Kolbrún Ólafsdóttir Marinó Guðmundsson
Ásgeir Norðdahl Ólafsson Kolbrún Karlsdóttir
Sigurjón Ólafsson Matthildur Ernudóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elskulegur mágur minn
og föðurbróðir okkar,
Sigurður Björgvin
Björgvinsson
Eyravegi 5, Selfossi,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði
laugardaginn 19. maí.
Friðsemd Eiríksdóttir
Þórður Þórkelsson
Sigurvin Þórkelsson
Sveinbjörn Þórkelsson
Eiríkur Þórkelsson
Kristrún Þórkelsdóttir
Helga Þórkelsdóttir
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Grímur Benediktsson
frá Kirkjubóli,
Dalbraut 14, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
föstudaginn 18. maí. Útför hans fer fram frá
Áskirkju föstudaginn 25. maí kl. 13.00. Blóm og kransar eru
vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er
bent á hjúkrunarheimilið Skjól.
Benedikt G. Grímsson
Anna Inga Grímsdóttir Svanur Ingimundarson
Gunnar Rúnar Grímsson Ragna Þóra Karlsdóttir
Smári Gunnarsson Stephanie Thorpe
Grímur Gunnarsson Þorbjörg Ásta Leifsdóttir
Sara Benediktsdóttir Albert Valur Albertsson
Lilja Karen Albertsdóttir
Ástkær sambýliskona, stjúpmóðir,
systir og mágkona,
Helga Guðmundsdóttir
Laugarnesvegi 67, Reykjavík,
lést að heimili sínu 13. maí sl. eftir
skammvinn en erfið veikindi.
Útför hennar fer fram í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði föstudaginn 25. maí kl. 13.00.
Ævar Rafn Kjartansson
Friðrik Már Ævarsson Andrea Ösp Kristinsdóttir
Elísabet Elma Guðrúnardóttir Björg Brjánsdóttir
Lilja Guðmundsdóttir Guðmundur V. Hauksson
Andrea Guðmundsdóttir Eysteinn Sigurðsson
og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Soffía Kristín Þorkelsdóttir
Hömrum, Mosfellsbæ,
lést þann 20. maí að Hömrum í
Mosfellsbæ. Útförin fer fram í
Lágafellskirkju þann 25.05. kl. 13.00.
Ólöf Högnadóttir Jón Þ. Ólafsson
Þórkell G. Högnason Hafdís H. Ásgeirsdóttir
Dorothea M. Högnadóttir Sigurður Sigurjónsson
Björk Högnadóttir Jón R. Sigmundsson
Högni U. Högnason Hrund Ævarr Sigurbjörnsd.
Tryggvi Högnason Elísabet J. Jónsdóttir
Heiðlindur Högnason
Móðir okkar, amma og langamma,
Ragnheiður Katrín
Ólafsdóttir
Skálanesi, Reykhólahreppi,
lést þriðjudaginn 15. maí á hjúkrunar-
og dvalarheimilinu Barmahlíð,
Reykhólum. Útför hennar fer fram frá
Reykhólakirkju sunnudaginn 27. maí klukkan 14.00. Þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Parkinson samtökin.
Ólafur Arnar Hallgrímsson Sigrún Halldóra
Arngrímsdóttir
Sveinn Berg Hallgrímsson Andrea Björnsdóttir
Elías Már Hallgrímsson Arna Vala Róbertsdóttir
Guðrún Þuríður Hallgrímsdóttir Oddur Hannes Magnússon
Ingibjörg Jóna Hallgrímsdóttir Helgi Ingvarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir minn, afi, bróðir og uppeldisbróðir,
Eysteinn Jóhannesson
frá Flóðatanga,
Rudesövej 13, Holte, Kaupmannahöfn,
lést í Kaupmannahöfn 8. maí, sl.
Útför hans hefur farið fram.
Christina Bøgh Blindbæk
Thomas Emil, Ida Louise
Guðrún Jóhannesdóttir
Sveinn Jóhannesson
Auður Fanney Jóhannesdóttir
Marteinn Valdimarsson
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Þormóður Sturluson
bóndi Fljótshólum,
lést á hjúkrunarheimilinu
Fossheimum Selfossi 16. maí.
Útförin verður gerð frá
Gaulverjabæjarkirkju laugardaginn 2. júní kl. 14.
Guðrún Jóhannesdóttir
Sigríður Þormóðsdóttir
Jóhannes Þormóðsson
Pálmi Þormóðsson
Sturla Þormóðsson
og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín,
móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Oddný Magnúsdóttir
Efstaleiti 67, Keflavík,
sem lést fimmtudaginn 17. maí, verður
jarðsungin frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 25. maí kl. 13.
Þórhallur Steinar Steinarsson
Hildur Þóra Stefánsdóttir Sigurður Björgvinsson
Hulda Rósa Stefánsdóttir Guðni Lárusson
Gunnar Hafsteinn Stefánsson Guðrún Freyja Agnarsdóttir
Magnús Margeir Stefánsson Karitas Heimisdóttir
Halldóra Stefánsdóttir Magnús Ingi Oddsson
barnabörn, barnabarnabarn og systkini.
E ldgosið í Eyjafjallajökli lendir ekki í flokki stórgosa en það sem var óvenjulegt var að öskugosið stóð yfir í lengri tíma eða næstum sex vikur. Áhrifin af gosinu voru
víðtæk og það var erfitt fyrir fólk sem
bjó nærri jöklinum, bændur og aðra.
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor
í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, segir
þetta frægasta eldgos síðustu áratuga.
„Eldgosið í Eyjafjallajökli olli fólki sem
bjó í grennd við jökulinn, einkum undir
Eyjafjöllum, í Mýrdalnum og víðar,
miklum óþægindum og erfiðleikum.
Þetta var ekki þægilegur tími og óvissa
var um framhaldið á meðan á gosinu
stóð og hversu miklar skemmdir yrðu í
kjölfarið,“ segir Magnús.
Eyjafjallajökull er sjötti stærsti jökull
landsins. Undir jöklinum er eldkeila þar
sem hefur gosið fjórum sinnum síðan
land byggðist, eða árin 920, 1612, 1821
og svo 2010, og flokkast öll fremur lítil
nema gosið 2010 sem var þeirra mest og
telst í meðallagi.
„Hvað varðar eldfjallafræði og áhrif
á flugumferð og því um líkt, þá er þetta
frægasta eldgos síðustu áratuga. Það
var hægt að gera svo mikið og rannsaka
mikið þar sem gosið stóð yfir svo lengi.
Svo hafði það áhrif á ótrúlega marga
og það muna flestir eftir þessum tíma.
Þetta er eina eldgosið sem hefur haft
bein áhrif sem um munar í Evrópu síðan
í Skaftáreldunum.“ Farþegaflug lagðist
niður að mestu í fimm heila sólarhringa
og meira en 100.000 áætlunarferðum
var aflýst. Erlendir fjölmiðlar fjölluðu
mikið um eldgosið og var það heldur
skoplegt að fylgjast með þeim reyna að
bera fram nafn jökulsins, en það tók á sig
ansi skrautlegar myndir.
Viðmælendur í fjölmiðlum urðu ýmist
öskuillir yfir því hversu mikið eldgosið
raskaði ferðum þeirra á meðan öðrum
fannst eldgosið og Ísland forvitnilegt.
Óttast var að ferðamenn myndu ekki
hætta sér til landsins vegna gossins sem
hefði ekki komið sér vel. „Reyndin varð
hins vegar þveröfug og það var upp úr
því sem að ferðamannastraumurinn fór
virkilega af stað. Áhrif af gosinu á Ísland
eru mikil sem endaði með að vera stærri
auglýsing fyrir landið en hægt væri að
búa til og ferðamenn hófu að flykkjast
til Íslands,“ segir Magnús. „Það er ekkert
víst að þetta hefði orðið svona ef gosið
hefði ekki orðið.“
gj@frettabladid.is
Eldgosið í Eyfjallajökli hið
frægasta síðustu áratuga
Í dag eru átta ár liðin frá því að eldgosinu í Eyjafjallajökli lauk. Talið er að um sex prósent
heimsbúa hafi orðið fyrir áhrifum eða óþægindum af einhverju tagi vegna gossins. Eld-
gosið var sennilega meiri landkynning en nokkur auglýsingaherferð hefði skilað landinu.
Gosið í Eyjafjallajökli hafði áhrif á um sex prósent heimsbyggðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ðT T T T 17m i ð V i K U D a G U R 2 3 . m a í 2 0 1 8
2
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
E
-7
D
9
C
1
F
D
E
-7
C
6
0
1
F
D
E
-7
B
2
4
1
F
D
E
-7
9
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K