Fréttablaðið - 23.05.2018, Side 47

Fréttablaðið - 23.05.2018, Side 47
23. MAÍ 2018 Tónlist Hvað? Íslensk ástarljóð á vorkvöldi Hvenær? 20.00 Hvar? Ásmundarsafni Páll Valsson rithöfundur og Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur flytja dag- skrá með íslenskum ástarljóðum í Ásmundarsafni við Sigtún. Páll Valsson kynnir skáldin og ljóðin, sem eru frá ólíkum tímum, allt frá 14. öld fram til okkar daga. Tón- listin við ljóðin er öll íslensk, þjóð- lög og tónsmíðar. Dagskráin tengist hátíðarhöldum safnsins í tilefni af því að 125 ár eru liðin frá fæðingu Ásmundar Sveinssonar mynd- höggvara. Hvað? Beatmakin Troopa (Dj set) Hvenær? 22.00 Hvar? Bravó Beatmakin Troopa/Pan Thoraren- sen spilar á Bravó. Hvað? Fruiting Bodies (CA) Hvenær? 21.00 Hvar? Kex Hosteli, Skúlagötu Hljómsveitin Fruiting Bodies frá Montreal, Kanada, kemur fram á Kexi í kvöld. Meðlimir hljóm- sveitarinnar eru fjórir, þrjár söngkonur og hörpu- leikari. Hljómsveitin er á Íslandi á hálfgerðum tilraunatúr að undir- búa sig fyrir stærri Evróputúr sem hún ætlar sér að fara á næsta ári. Hugguleg kvöldstund í vændum og eins og alltaf er frítt inn og allir velkomnir! Hvað? Kjallaradjass Hvenær? 21.00 Hvar? Stúdentakjallar- anum Hópurinn sem gerði mánudaga spennandi í fyrsta sinn í sögunni með Mánudjassi á Húrra ætlar að sanna í eitt skipti fyrir öll að mið- vikudagar eru hinir nýju fimmtu- dagar. Þeir munu tvinna litríka samba-ryþma og almenna gleði inn í grámóskulegt háskólasamfélagið. Kvöldin eru með frjálslegu ívafi og allir sem vilja syngja, dansa eða spila á hljóðfæri eru velkomnir og hvattir til að stíga í sviðsljósið og taka þátt. Hvað? Sunna Gunnlaugs Tríó á Múlanum Hvenær? 21.00 Hvar? Hörpu Á síðustu vortónleikum Múlans kemur fram tríó píanóleikarans Sunnu Gunnlaugs. Tríó Sunnu Gunnlaugs hefur verið iðið við tón- leikahald víða um heim og fengið frábærar umfjallanir fyrir diska sína. Von er á nýjum diski á árinu og mun efnisskrá tríósins verða bland af nýju efni og tónsmíðum af eldri diskum þess. Ásamt Sunnu koma fram bassaleikarinn Þor- grímur Jónsson ásamt trommu- leikaranum Scott McLemore. Viðburðir Hvað? Opin rann- sóknarstofa Hvenær? 12.15 Hvar? Nátt- úrufræðistofu Kópavogs Hægt verður að litast um baksviðs á þessum lifandi vinnustað þar sem rannsóknir eru stund- aðar af kappi. Græjur og viðfangsefni rannsóknanna verða til sýnis og fyrirhugaðar rannsóknir sumarsins kynntar. Hvað? Samkvæmisdanskvöld Hvenær? 20.30 Hvar? Dans og jóga hjartastöðinni, Skútuvogi Hjón og pör sem kunna grunn- sporin í samkvæmisdönsum geta nú skellt sér út að dansa og æft og rifjað upp cha cha cha, foxtrot, vals, sömbu, jive, tangó, rúmbu, quick- step og fleiri dansa. Jóhann Örn danskennari stjórnar tónlistinni og veitir aðstoð við að muna réttu sporin. Aðgangseyrir kr. 2.000 og allir velkomnir. Hvað? Vísindamenn NASA halda fyrirlestur Hvenær? 09.00 Hvar? Stofu V101, Háskólanum Í Reykjavík Vísindamenn bandarísku geim- ferðastofnunarinnar NASA, dr. Jennifer Heldmann og dr. Linda T. Kobayashi, eru komnar til Íslands til að kanna aðstæður til rannsókna og prófana á tækni og tækjum fyrir ferðir til Mars og annarra geim- ferða. Þær halda fyrirlestur í stofu V101 í Háskólanum í Reykjavík í dag kl. 09.00. Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur Hvar@frettabladid.is Pan Thorarensen spilar á Bravó í kvöld. SLÖKKTU Á SLENINU OG KVEIKTU Á SPORTINU Mitsubishi ASX er fjórhjóladrinn, rúmgóður sportjeppi sem skilar þér miklu ai á mjúkan og sparneytinn hátt. Þú situr hærra, hefur meira rými og nýtur aksturseiginleikanna. Nú fylgir 350.000 kr. sumarauki með öllum nýjum Mitsubishi bílum keyptum hjá HEKLU. Slökktu á sleninu og kveiktu á sportinu í sumar með nýjum Mitsubishi ASX 4x4. Hlökkum til að sjá þig! Mitsubishi ASX Intense 4x4, sjálfskiptur, dísil: 3.990.000 kr. 5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að nna á www.hekla.is/abyrgd HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum FYRIR HUGSANDI FÓLK Sumarauki að verðmæti350.000 kr. fylgir! gæði... ending… ánægja. skoðaðu úrvalið á Weber.is Flísabúðin Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is Finndu okkur á facebook Gæði og g læsileiki e ndalaust ú rval af há gæða flísu m 30 ára 2018 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19M I Ð V I K U D A G U R 2 3 . M A Í 2 0 1 8 2 3 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F D E -9 1 5 C 1 F D E -9 0 2 0 1 F D E -8 E E 4 1 F D E -8 D A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 2 2 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.