Fréttablaðið - 23.05.2018, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H.
Hákonarson olafurh@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI
512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Maður hlakkar aldrei til að sýna í vondu veðri en það er alltaf gaman þegar það er búið,“
segir Anna Bergljót Thorarensen
höfundur og leikstjóri nýjasta verks,
leikhópsins Lottu, sem nefnist Gosi.
Leikhópurinn frumsýnir í dag en
veðurspáin er þokkaleg. Betri en síð-
ustu daga allavega. „Við erum ánægð.
Það stefnir í sól og blíðu. Þetta lítur
allavega ansi vel út. Þjóðin er búin að
vera að býsnast yfir veðrinu undan-
farinn mánuð og við getum því ekki
annað en verið hress með veðrið sem
verður,“ segir hún.
Þetta er tólfta sumarið í röð sem
leikhópurinn leggur land undir fót
og ferðast með glænýja fjölskyldu-
sýningu um landið þvert og endi-
langt. „Það hefur komið haglél á
okkar sýningum. Við erum öllu vön
en þetta er auðveldast fyrir okkur
leikarana því við hlaupum og hopp-
um, syngjum og tröllum til að halda
á okkur hita. Áhorfendur þurfa svo-
lítið að klæða sig eftir veðri.
Það er stundum skemmtilegra að
vera á vondaveðurs-sýningum. Það
eru færri og stemningin breytist.
Áhorfendur þjappa sér meira saman
en það er erfitt að útskýra hvað það er
sem gerir slíkar sýningar betri.“
Sagan um Gosa gerist inni í Ævin-
týraskóginum en eins og Lottu er von
og vísa blandast fleiri þekkt ævintýri
inn í verkið. Heyrst hefur að það
beri okkur inn í háan turn þar sem
við hittum skemmtilega stelpu með
afskaplega langa fléttu og að á öðrum
stað í Ævintýraskóg-
inum verðum við vitni
að því þegar þrjár óskir
valda miklum vand-
ræðagangi.
Þetta er áttunda
verkið sem Anna Berg-
ljót skrifar fyrir hóp-
inn. Hún semur einnig
lagatexta ásamt þeim
Baldri Ragnarssyni og
Stefáni Benedikt Vil-
helmssyni. Í Gosa eru
samtals 10 glæný lög
sem eru samin af fyrr-
nefndum Baldri, Birni
Thorarensen og Rósu
Ásgeirsdóttur.
„Við erum að fjalla um Gosa en
það er ekkert mikið meira úr hans
ævintýri annað en nafnið heldur
gerðum við nýja sögu með blöndu
úr Garðabrúðu og Óskunum þrem-
ur. Garðabrúða heitir reyndar Ósk
í okkar útgáfu. Börn þessa lands
tengja meira held ég við Ósk frekar
en Garðabrúðu. Síðan er þriðja
ævintýrið Óskirnar þrjár sem margir
eru búnir að gleyma.“
Sýningarplanið er einfalt. Það
verða um 100 sýningar á um 50
stöðum víðsvegar um landið en
sýningarplanið er á Facebook síðu
hópsins. benediktboas@frettabladid.is
Skemmtilegt stuð að
sýna í vondu veðri
Skemmtilegustu sýningar leikhópsins Lottu er þegar vindar blása. Þá
myndast einhver stemning sem erfitt er að útskýra, segir höfundur
og leikstjóri nýjustu sýningar Lottu. Gosi verður frumsýndur í dag en
svo taka við 100 sýningar á 50 stöðum víðsvegar um landið.
Leikhópurinn samankominn. Þarna má sjá meðal annars Ósk sem nefnd hefur verið Garðabrúða í íslenskum
ævintýrum af einhverjum ástæðum. Anna Bergljót, leikstjóri og höfundur verksins um Gosa, er þriðja frá vinstri.
Plakatið sem Leik-
hópurinn gerði
fyrir komandi sýningu.
Sólin er fótósjoppuð
enda hefur enginn séð
þá gulu hér sunnan
heiða í marga daga.
VIÐ ERUM ÖLLU VÖN
EN ÞETTA ER AUÐ-
VELDAST FYRIR OKKUR LEIKAR-
ANA ÞVÍ VIÐ HLAUPUM OG
HOPPUM, SYNGJUM OG TRÖLL-
UM TIL AÐ HALDAÁ OKKUR
HITA.
Anna Bergljót
Thorarensen,
höfundur og
leikstjóri
Vinsælir viðburðir
framundan
Miðakaup á www.midi.is
Sycamore Tree
Bæjarbíó - 1. júní
Dúndurfréttir
Bæjarbíó - 24. maí
Ísland - Noregur
Laugardalsvöllur - 2. júní
Ísland - Gana
Laugardalsvöllur - 7. júní
2 3 . M A Í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
E
-6
9
D
C
1
F
D
E
-6
8
A
0
1
F
D
E
-6
7
6
4
1
F
D
E
-6
6
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K