Fréttablaðið - 23.05.2018, Síða 56
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Pimm’s er drykkur sem er notaður í samnefndan vinsælan enskan sumar-
kokkteil sem mér og nokkrum
vinum finnst ómissandi á þessum
árstíma. Áfengisverslanir ríkisins
selja hann ekki og því ákvað ég að
kaupa nokkrar flöskur þar sem ég
var staddur í London síðastliðinn
sunnudag. Hver flaska kostaði
1.739 krónur. Ríkið leyfir mér bara
að taka eina lítersflösku tollfrjálst
til landsins, ef vínandi er meira
en 21% af flöskunni, og því gaf
ég mig fram við tollverði ríkisins
á Keflavíkurflugvelli. Þeir inn-
heimtu skilagjald, áfengisgjald og
virðisaukaskatt, alls 4.104 krónur
á flösku.
Allir sem framleiða, selja og
flytja Pimm’s, og öll efnin sem fara
í framleiðslu þess og flöskunnar
sem það er í, taka því til sín 30%
af verðmæti vörunnar á meðan
íslenska ríkið, sem leggur ekkert af
mörkum, tekur 70%. Í þessu tilfelli,
að minnsta kosti, þjónar gjaldið
heldur engum forvarnartilgangi.
Enginn áfengissjúklingur myndi
standa í því að fara til Englands
til að kaupa Pimm’s, skera niður
jarðarber, gúrkur og appelsínur
og merja mintulauf og blanda svo
öllu saman í límonaði til að svala
fíkn sinni.
Þessi kaup eru gott dæmi um
það hvernig ríkið er alltumlykj-
andi í lífi okkar. Það vill ráða því
hvar, hvenær og hvernig almennar
neysluvörur við kaupum og það
vill taka af þeim 70% skatt. Mér er
fyrirmunað að skilja af hverju það
þarf að hafa meira vit fyrir okkur
en öðrum þjóðum og taka af okkur
hærri skatta. Þetta verður samt vel
fyrirhafnarinnar virði ef sumarið
skyldi koma einhvern tímann.
Gleðilegt sumar
Davíðs
Þorlákssonar
BAKÞANKAR
HJÓLUM
INN Í SUMARIÐ
Nú eru seinustu forvöð að skrá sig í WOW Cyclothon sem haldið
verður í sjöunda skipti dagana 26.–30. júní. Þar hjóla hópar og
einstaklingar hringinn í kringum landið í ægifagurri íslenskri
náttúru. Keppnin er frábært tækifæri til að kanna mörkin,
kynnast Íslandi frá nýju sjónarhorni og fara alla leið, allan
hringinn í einni stærstu ofurhjólreiðakeppni heims.
Skráning fer fram á wowcyclothon.is og lýkur 31. maí.
SKRÁNINGU LÝKUR 31. MAÍ
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUMYND FRÁ FRAMLEIÐENDUM
SHREK
CHARMING
KOMIN Í BÍÓ
2
3
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
D
E
-5
6
1
C
1
F
D
E
-5
4
E
0
1
F
D
E
-5
3
A
4
1
F
D
E
-5
2
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
2
2
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K