Fréttablaðið - 28.05.2018, Page 13
Vandaðir hitarar
fyrir pallinn, svalirnar
og partítjaldið.
Fást í hvítu, svörtu og títanlit. Þrífótur fáanlegur til að hafa þá standandi.
1400, 2000 og 2500 W. Innfelldir eða utanáliggjandi.
Áhrifarík lausn
• Mikil orkunýtni.
• Hraðvirk upphitun.
• Getur hitað upp svæði allt að 17 m2.
• Innrauð hitun.
Umhverfisvæn tækni
• No-glare®-tækni: Engin glýja.
• Engin bein losun koltvísýrings.
• Minna ljós, meiri hiti.
Gæði
• Framleiddir í Þýskalandi.
• TÜV-gæðavottun.
• Fimm ára ábyrgð.
• Mikil ending, allt að 10.000 klst.
2016
- 2017
Lengdu sumarið með góðri samvisku.
Kynntu þér málið nánar hjá sölumönnum okkar.
Rafbúnaðardeild okkar er opin alla virka daga frá kl. 8 til 17.
Kosningar eru alltaf heilmikil æfing fyrir mann. Í hvert skipti sem niðurstöður kosn-
inga blasa við er nauðsynlegt að
taka sig taki, anda djúpt og reyna að
finna fegurðina í því að Íslendingar
eru semsagt ekki allir sammála mér
og mínum skoðunum.
Alls konar öfl fá atkvæði, sem ég
botna ekkert í að fólk skuli kjósa.
Það hlýtur til dæmis að blasa við,
að ég sem heimspekimenntaður
Vesturbæingur á 14 ára gömlum
Toyota Prius, nýbúinn að ferma
ungling í borgaralegri fermingu,
á í mjög djúpstæðum erfiðleikum
með að skilja af hverju fólk kýs
Sjálfstæðisflokkinn eða Miðflokk-
inn. Ég spóla bara í huganum. Um
þessa staðreynd, að þessir flokkar
njóta fylgis, gæti ég talað endalaust
í hringi, með mjög flottum hug-
tökum og alls konar sannfærandi
handahreyfingum yfir latté eða IPA
bjór á Kaffi Vest, en ég yrði samt
engu nær.
Fjölbreytileikinn
En þetta er einmitt fegurðin. Fólk
er ekki eins. Sumir fíla sykrað Kók
og aðrir Pepsi Max. Sumir hata
myndir sem gerast úti í geimnum,
en aðrir elska þær. Konan mín fæst
ekki til að horfa á mynd sem gerist
úti í geimnum nema ég ljúgi því að
henni að um sé að ræða matreiðslu-
þátt, úti í geimnum. Reyndar hefur
þetta aldrei tekist, en hvað um það.
Ég fer einn með börnin á geim-
myndir.
Maður getur auðvitað ekki
fagnað fjölbreytileikanum, talið
hann vera grundvöll heilbrigðis
lýðræðissamfélags, og farið svo
í fýlu yfir því að fólk sé ekki eins
og maður sjálfur. Ég fell auðvitað
ítrekað í þá gryfju að telja fullt af
fólki sem ég horfi á í sjónvarpinu
vera erkifávita. Hver gerir það ekki?
Ég vil þó samt reyna að trúa því að í
fjölbreytaleika mannlífsins, ólíkum
skoðunum fólks, búi beinlínis
kraftur. Góðar hugmyndir verða
betri eftir því sem fleiri koma að
þeim. Maður sjálfur verður betri
eftir því sem maður lærir meira af
öðrum um þær hliðar tilverunnar
sem manni voru áður huldar.
Ég óska því Sjálfstæðisflokknum
til hamingju með góðan árangur í
borginni. Og til hamingju, Vigdís
Hauks, með kjörið. Já, og fyrst ég
er byrjaður, til hamingju, Kolbrún
Baldurs og Sanna Magdalena. Megi
sjónarmið og verk ykkar allra bæta
samfélagið og lifi fjölbreytnin.
Nýir flokkar, nýtt umboð
Verð ég nú að hafa nokkur orð um
restina, áður en ég óska henni til
hamingju líka. Eins og vanalegt er
orðið, leiða kosningar á Íslandi til
lærðrar umræðu um krísu á vinstri
væng. Þetta er orðin klisja, sem
vinstra fólk tekur yfirleitt lúmskt
fagnandi, held ég, enda virðist mér
stundum vinstra fólk þykja fátt
skemmtilegra en naflaskoðun. En
væri kannski ástæða til að sleppa
naflaskoðun núna? Ég hallast að
því.
Staðreyndin er sú, að hvað telst
sigur og ósigur flokka, í hinu nýja
og síbreytilega umhverfi stjórn-
málanna, er svolítið afstætt dæmi.
Sjálfstæðisflokkurinn fær eina sína
verstu útreið í borginni frá upphafi,
en er samt talinn sigurvegari. Gott
og vel. Ég skil það. Samfylkingin
fékk um 5% í alþingiskosningum
fyrir tveimur árum og þurrkaðist
næstum því út, en fær nú 25% í
borginni. Hún er samt álitin tapari.
Þetta er smá skrítið. Meirihlutinn
fallinn, segja stjórnmálaskýrendur.
Þeir skauta þægilega fram hjá því
að einn flokkurinn í þeim meiri-
hluta, Björt framtíð, bauð ekki
fram. Meirihlutinn var því í sjálfu
sér fallinn um leið og kjörtímabilið
var búið. Engin tíðindi í því. Nýtt
umboð þurfti og nýir flokkar sóttu
það.
Lengi má gott bæta
Hver er þá staðan í borginni? Jú,
hún er þannig að ég sé fulla ástæðu
til að óska mér sjálfum og mínu
frjálslynda hugarþeli til hamingju
með niðurstöðuna þrátt fyrir allt.
Ég hef vissulega þurft að rýna örlítið
í tölurnar á náttbuxunum, eftir
langa kosninganótt, til að fatta að
þær eru gleðiefni. Nú finnst mér
þetta blasa við. Frjálslyndur flokkur
á miðjunni, Viðreisn, fær mjög
góða kosningu. Til hamingju með
það, Þórdís og Pawel. Sú niður-
staða ásamt auknu fylgi Pírata – til
hamingju, Dóra og Sigurborg – gerir
það að verkum að samstarf flokk-
anna frá miðju yfir til vinstri, CPSV,
er einkar álitlegur kostur.
Stefna núverandi meirihluta
– eins og hún birtist til dæmis í
stórmerkilegu Aðalskipulagi – hlaut
hljómgrunn meirihluta kjósenda í
öllum grundvallaratriðum. Til ham-
ingju með það, Samfó og VG. Hins
vegar kom upp úr kjörkössunum
líka kærkomið tækifæri til að gera
meirihlutasamstarf frá miðju til
vinstri enn betra. Áherslur á beint
lýðræði, kerfisbreytingar, einfaldari
stjórnsýslu, fjölbreytta atvinnu-
starfsemi og markaðslausnir fengu
aukið fylgi, með góðri kosningu
Pírata og Viðreisnar. Þessar
áherslur mega mjög gjarnan koma
sterkari inn í núverandi meirihluta-
samstarf og tvinnast við sameigin-
legar áherslur allra þessara flokka á
þéttingu byggðar, umhverfisvernd,
húsnæðisuppbyggingu og almenn-
ingssamgöngur. Þetta er það sem
gerðist í kosningunum.
Um þá skoðun mína hljóta allir
borgarbúar að vera mér sammála.
Djók.
Sæmó úrslit
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13M Á N U D A G U R 2 8 . M A Í 2 0 1 8
2
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
E
C
-0
5
4
4
1
F
E
C
-0
4
0
8
1
F
E
C
-0
2
C
C
1
F
E
C
-0
1
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K