Fréttablaðið - 28.05.2018, Síða 13

Fréttablaðið - 28.05.2018, Síða 13
Vandaðir hitarar fyrir pallinn, svalirnar og partítjaldið. Fást í hvítu, svörtu og títanlit. Þrífótur fáanlegur til að hafa þá standandi. 1400, 2000 og 2500 W. Innfelldir eða utanáliggjandi. Áhrifarík lausn • Mikil orkunýtni. • Hraðvirk upphitun. • Getur hitað upp svæði allt að 17 m2. • Innrauð hitun. Umhverfisvæn tækni • No-glare®-tækni: Engin glýja. • Engin bein losun koltvísýrings. • Minna ljós, meiri hiti. Gæði • Framleiddir í Þýskalandi. • TÜV-gæðavottun. • Fimm ára ábyrgð. • Mikil ending, allt að 10.000 klst. 2016 - 2017 Lengdu sumarið með góðri samvisku. Kynntu þér málið nánar hjá sölumönnum okkar. Rafbúnaðardeild okkar er opin alla virka daga frá kl. 8 til 17. Kosningar eru alltaf heilmikil æfing fyrir mann. Í hvert skipti sem niðurstöður kosn- inga blasa við er nauðsynlegt að taka sig taki, anda djúpt og reyna að finna fegurðina í því að Íslendingar eru semsagt ekki allir sammála mér og mínum skoðunum. Alls konar öfl fá atkvæði, sem ég botna ekkert í að fólk skuli kjósa. Það hlýtur til dæmis að blasa við, að ég sem heimspekimenntaður Vesturbæingur á 14 ára gömlum Toyota Prius, nýbúinn að ferma ungling í borgaralegri fermingu, á í mjög djúpstæðum erfiðleikum með að skilja af hverju fólk kýs Sjálfstæðisflokkinn eða Miðflokk- inn. Ég spóla bara í huganum. Um þessa staðreynd, að þessir flokkar njóta fylgis, gæti ég talað endalaust í hringi, með mjög flottum hug- tökum og alls konar sannfærandi handahreyfingum yfir latté eða IPA bjór á Kaffi Vest, en ég yrði samt engu nær. Fjölbreytileikinn En þetta er einmitt fegurðin. Fólk er ekki eins. Sumir fíla sykrað Kók og aðrir Pepsi Max. Sumir hata myndir sem gerast úti í geimnum, en aðrir elska þær. Konan mín fæst ekki til að horfa á mynd sem gerist úti í geimnum nema ég ljúgi því að henni að um sé að ræða matreiðslu- þátt, úti í geimnum. Reyndar hefur þetta aldrei tekist, en hvað um það. Ég fer einn með börnin á geim- myndir. Maður getur auðvitað ekki fagnað fjölbreytileikanum, talið hann vera grundvöll heilbrigðis lýðræðissamfélags, og farið svo í fýlu yfir því að fólk sé ekki eins og maður sjálfur. Ég fell auðvitað ítrekað í þá gryfju að telja fullt af fólki sem ég horfi á í sjónvarpinu vera erkifávita. Hver gerir það ekki? Ég vil þó samt reyna að trúa því að í fjölbreytaleika mannlífsins, ólíkum skoðunum fólks, búi beinlínis kraftur. Góðar hugmyndir verða betri eftir því sem fleiri koma að þeim. Maður sjálfur verður betri eftir því sem maður lærir meira af öðrum um þær hliðar tilverunnar sem manni voru áður huldar. Ég óska því Sjálfstæðisflokknum til hamingju með góðan árangur í borginni. Og til hamingju, Vigdís Hauks, með kjörið. Já, og fyrst ég er byrjaður, til hamingju, Kolbrún Baldurs og Sanna Magdalena. Megi sjónarmið og verk ykkar allra bæta samfélagið og lifi fjölbreytnin. Nýir flokkar, nýtt umboð Verð ég nú að hafa nokkur orð um restina, áður en ég óska henni til hamingju líka. Eins og vanalegt er orðið, leiða kosningar á Íslandi til lærðrar umræðu um krísu á vinstri væng. Þetta er orðin klisja, sem vinstra fólk tekur yfirleitt lúmskt fagnandi, held ég, enda virðist mér stundum vinstra fólk þykja fátt skemmtilegra en naflaskoðun. En væri kannski ástæða til að sleppa naflaskoðun núna? Ég hallast að því. Staðreyndin er sú, að hvað telst sigur og ósigur flokka, í hinu nýja og síbreytilega umhverfi stjórn- málanna, er svolítið afstætt dæmi. Sjálfstæðisflokkurinn fær eina sína verstu útreið í borginni frá upphafi, en er samt talinn sigurvegari. Gott og vel. Ég skil það. Samfylkingin fékk um 5% í alþingiskosningum fyrir tveimur árum og þurrkaðist næstum því út, en fær nú 25% í borginni. Hún er samt álitin tapari. Þetta er smá skrítið. Meirihlutinn fallinn, segja stjórnmálaskýrendur. Þeir skauta þægilega fram hjá því að einn flokkurinn í þeim meiri- hluta, Björt framtíð, bauð ekki fram. Meirihlutinn var því í sjálfu sér fallinn um leið og kjörtímabilið var búið. Engin tíðindi í því. Nýtt umboð þurfti og nýir flokkar sóttu það. Lengi má gott bæta Hver er þá staðan í borginni? Jú, hún er þannig að ég sé fulla ástæðu til að óska mér sjálfum og mínu frjálslynda hugarþeli til hamingju með niðurstöðuna þrátt fyrir allt. Ég hef vissulega þurft að rýna örlítið í tölurnar á náttbuxunum, eftir langa kosninganótt, til að fatta að þær eru gleðiefni. Nú finnst mér þetta blasa við. Frjálslyndur flokkur á miðjunni, Viðreisn, fær mjög góða kosningu. Til hamingju með það, Þórdís og Pawel. Sú niður- staða ásamt auknu fylgi Pírata – til hamingju, Dóra og Sigurborg – gerir það að verkum að samstarf flokk- anna frá miðju yfir til vinstri, CPSV, er einkar álitlegur kostur. Stefna núverandi meirihluta – eins og hún birtist til dæmis í stórmerkilegu Aðalskipulagi – hlaut hljómgrunn meirihluta kjósenda í öllum grundvallaratriðum. Til ham- ingju með það, Samfó og VG. Hins vegar kom upp úr kjörkössunum líka kærkomið tækifæri til að gera meirihlutasamstarf frá miðju til vinstri enn betra. Áherslur á beint lýðræði, kerfisbreytingar, einfaldari stjórnsýslu, fjölbreytta atvinnu- starfsemi og markaðslausnir fengu aukið fylgi, með góðri kosningu Pírata og Viðreisnar. Þessar áherslur mega mjög gjarnan koma sterkari inn í núverandi meirihluta- samstarf og tvinnast við sameigin- legar áherslur allra þessara flokka á þéttingu byggðar, umhverfisvernd, húsnæðisuppbyggingu og almenn- ingssamgöngur. Þetta er það sem gerðist í kosningunum. Um þá skoðun mína hljóta allir borgarbúar að vera mér sammála. Djók. Sæmó úrslit Guðmundur Steingrímsson Í DAG S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13M Á N U D A G U R 2 8 . M A Í 2 0 1 8 2 8 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :2 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F E C -0 5 4 4 1 F E C -0 4 0 8 1 F E C -0 2 C C 1 F E C -0 1 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 7 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.