Morgunblaðið - 14.10.2017, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2017
Trésagarblöð, álsagarblöð, járn-
sagarblöð, demantssagarblöð.
Allar stærðir, allar gerðir.
Þjónusta við tréiðnaðinn í yfir 30 ár
HJÓLSAGARBLÖÐ
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur • Sími 564 1212 • asborg.is
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Erlendum starfsmönnum fer enn
fjölgandi á íslenskum vinnumarkaði
vegna mikillar eftirspurnar eftir
starfsfólki. Vinnumálastofnun gaf í
seinasta mánuði út 200 atvinnuleyfi til
útlendinga til að starfa hér á landi.
Hefur stofnunin gefið út 1.389 at-
vinnuleyfi það sem af er ári. Af út-
gefnum leyfum í september voru 74
til nýrra útlendinga á íslenskum
vinnumarkaði, að því er fram kemur í
nýju yfirliti Vinnumálastofnunar yfir
ástandið á vinnumarkaðinum.
Skráð atvinnuleysi á landinu í sept-
ember var 1,8% og minnkaði það um
0,1 prósentustig frá ágústmánuði.
Alls fóru 606 einstaklingar af skrá í
septembermánuði, þar af fór 341 í
vinnu eða um 56%.
Margir frá Bosníu-Hersegóvínu
„Það sem af er árinu hefur Vinnu-
málastofnun gefið út 187 ný atvinnu-
leyfi á grundvelli skorts á starfsfólki
hér á landi. Til samanburðar gaf
Vinnumálastofnun út 118 ný slík leyfi
allt árið 2016. Hefur slíkum leyfum nú
þegar fjölgað um 69 og því um tæp-
lega 60% aukningu á milli ára að
ræða,“ segir í skýrslu Vinnumála-
stofnunar.
Mest var fjölgunin vegna fjölda
starfsmanna frá Bosníu-Hersegóvínu
sem hingað komu en þeir voru 42 í
september. Ástæða þessa er sögð sú
að fyrirtæki sem sér um lagningu há-
spennulínu í tengslum við uppbygg-
ingu kísilvers á Bakka við Húsavík
kemur þaðan með starfsfólk og tæki.
Mun sá hópur af útlendingum starfa
hér á landi eitthvað fram á árið 2018.
49 erlend fyrirtæki störfuðu hér á
landi í seinasta mánuði og hafði þeim
fjölgað um 13 á milli mánaða. Þessa
aukningu má rekja til framkvæmd-
anna á Bakka samkvæmt upplýsing-
um Vinnumálastofnunar. Alls voru
569 starfsmenn á vegum þessara er-
lendu fyrirtækja, sem er metfjöldi í
einum mánuði á árinu og fjölgaði
þeim um 81 frá því í ágúst. Þá voru
starfsmenn starfsmannaleiga, inn-
lendra sem erlendra, samtals 2.044 í
mánuðinum á vegum 29 starfsmanna-
leiga. Þessum starfsmönnum hefur
því fjölgað á milli mánaða, eða um
116.
Af þeim 29 starfsmannaleigum sem
voru starfandi á Íslandi í september
voru 17 innlendar og 12 erlendar. Inn-
lendu starfsmannaleigurnar voru
með 1.975 starfsmenn en hinar er-
lendu með 69. omfr@mbl.is
Talsverð fjölg-
un vegna Bakka
60% aukning útgefinna atvinnuleyfa
til útlendinga vegna skorts á starfsfólki
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Verksmiðja Fjölgun erlendra
starfsmanna í september má m.a
rekja til framkvæmdanna á Bakka.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Þetta er nýsköpunarnámskeið þar
sem fimm háskólar koma saman til að
ræða hugmyndir sem geta nýst norð-
urslóðum,“ segir Halla Hrund Loga-
dóttir, fv. framkvæmdastjóri Iceland
School of Energy og formaður Arctic
Innovation Lab.
„Verkefnið var formlega kynnt á
Artic Circle-ráðstefnunni í Hörpu í
gær. Eitt af markmiðum Artic Initia-
tive er að mennta framtíðarleiðtoga
norðurslóða og Artic Innovation Lab
er hluti af því að fá fólk alls staðar að
úr heiminum til að koma með hug-
myndir og lausnir til að takast á við
nýjar áskoranir og gera lífið á norð-
urslóðum betra,“ segir Halla Hrund.
Verkefnið hófst í haust með vali
hóps nemenda úr Harvard Kennedy
School (HKS) sem „frumkvöðla norð-
urslóða“. Nemendurnir hafa einstakt
tækifæri til að læra af sérfræðingum í
málefnum norðurslóða, af röð fyrir-
lestra og að taka þátt í nýsköpunar-
verkefnum norðurskautssvæðisins á
Artic Circle-ráðstefnunni á Íslandi,
sem er stærsta árlega ráðstefna
heims í málefnum norðurheimskauts-
ins.
Þátttakendur munu hittast fimm
sinnum á haustönn og taka þátt í ferð
til Íslands. Nemendur munu leggja
fram og þróa hugmyndir sem geta
gagnast norðurskautinu.
Viðurkenningu fyrir verkefni sín
hlutu fyrst Tukumminnguaq N. Ol-
sen frá Háskólanum á Grænlandi fyr-
ir hugmynd um að efla menntun
frumbyggja á norðurslóðum á þeirra
forsendum til að virkja þau betur,
annar varð Ryan Uljua frá Fletcher
School með verkefni um norðurslóða-
fjárfestingavísitöluna og þriðja Gabr-
ielle Scrimshaw frá Harvard Kenn-
edy School um hvernig hægt er að
vinna með fjárfestum ásamt sam-
félögum norðurslóða að fjármögnun
sjálfbærra verkefna.
„Allt frá því hvernig við getum nýtt
drónatækni betur til að geta gefið
fólki aðgang t.d. að lyfjum í einangr-
uðum samfélögum til þess að ræða
hvernig við getum stofnað fjárfest-
ingatækifæri í ferðamálum. Þetta
verkefni tengist nemendahliðinni á
hinu nýja Artic Initiative sem var
stofnað við Harvard-háskóla í haust
og beinir sjónum að rannsóknum og
menntun á sviði norðurslóða, þ.e. á að
hjálpa til að leysa hinar margvíslegu
áskoranir og tækifæri sem norður-
slóðir standa frammi fyrir,“ segir
Halla Hrund, en að verkefninu
standa hún og John Holdren, fyrrver-
andi vísinda- og tækniráðgjafi Obama
sl. átta ár og prófessor við Harvard-
háskóla, ásamt Henry Lee, stjórn-
anda umhverfis- og auðlindadeildar
Harvard-háskóla.
Ljósmynd/Arnþór Birkisson
Artic Initiative Halla Hrund Logadóttir, formaður Arctic Innovation Lab, og prófessor John Holdren.
Finnum framtíðarleið-
toga norðurslóðanna
Nýsköpunarnámskeiðið Artic Innovation Lab
Ljósmynd/Arnþór Birkisson
Vinningshafar F.v. Ryan Uljua, Tukumminnguaq N. Olsen og Gabrielle
Scrimshaw fengu viðurkenningu fyrir verkefni sín.
Arctic Innovators-verkefnið,
sem Halla Hrund Logadóttir
leiðir, er hluti af Artic Initiative
norðurskautsverkefni Harvard
Kennedy School, umhverfis- og
auðlindaverkefnisins (ENRP) og
vísinda-, tækni- og stefnumót-
unaráætlunarinnar (STPP).
Markmiðið er að koma fleira
ungu fólki í alþjóðlegt samráð
um málefni norðurslóða, bæði
til að fræða þau um þetta svæði
sem breytist nú mjög hratt og
áhrif þess á jarðkringluna og
búa það undir að stuðla að þró-
un og framkvæmd sjálfbærra
lausna.
Vilja fjölga
ungu fólki
ARTIC INNOVATORS