Morgunblaðið - 14.10.2017, Side 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2017
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign 7.4.2017 - 31.12.2019
HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR / SHOPLIFTER
Taugafold VII / Nervescape VII 26.5. - 22.10. 2017
PABLO PICASSO - Jacqueline með gulan borða (1962) /
Jacqueline au ruban jaune (1962) Langtímasýning
COMPARATIVE VANDALISM 26.8. - 21.1.2018
- Heimildaljósmyndir úr verkefni Asgers Jorn
Scandinavian Institute of Comparative Vandalism
ORKA 14.9. - 7.1.2018
Sýning á vídeóinnsetningunni Orka eftir Steinu í Vasulka-stofu
Dr. Selma Jónsdóttir – Aldarminning 22.8. - 22.10 2017
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSKEYTINGAR 3.9.2016 - 15.10.2017
Síðasta sýningarhelgi
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 1.12.2017
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sunnudagur 15. október: Tveir fyrir einn af aðgangseyri
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal
Guðmundur Ingólfsson – Á eigin vegum í Myndasal og á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sunnudagur 15. október kl. 14: Fjölskylduleiðsögn með jógaívafi
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Spegill samfélagsins 1770
Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
Á tónleikum í Akureyrarkirkju á
morgun, sunnudag, kl. 17 verða flutt
tónverk eftir Michael Jón Clarke
tónskáld; tvö glæný og að auki verk-
ið Te Deum. Michael Jón hefur verið
búsettur á Akureyri og starfað þar
sem tónlistarmaður í 46 ár.
Fyrst á efnisskrá tónleikanna er
verkið Tíu myndbrot fyrir kammer-
hljómsveit, tvo einsöngvara og
kammerkór. Það er byggt á brotum
úr tónverkum Emils Thoroddsens,
sönglögum, píanólögum og kórverk-
um. Í tilkynningu er verkið sagt
gera miklar kröfur til hljóðfæraleik-
ara og söngvara. Einnig endurspegl-
ast í köflunum andi tíma svarthvítu
bíómyndanna og árdagar íslenskra
söngleikja.
Fimmti orgelkonsertinn
Kammerhljómsveitin sem leikur
er skipuð mörgum kunnum hljóð-
færaleikurum. Hún leikur einnig í
næsta verki tónleikanna, orgel-
konsert sem er tileinkaður Eyþóri
Inga Jónssyni, organista við Akur-
eyrarkirkju, sem mun frumflytja
verkið. Kammerkórinn Hymnodia
tekur þátt í flutningnum. Þetta er
aðeins fimmti íslenski orgelkonsert-
inn og sá fyrsti sem frumfluttur er í
Akureyrarkirkju. Verkið er í kvik-
myndatónlistarstíl og fléttast saman
orgelleikur og hljóðfærasamspil.
Þá verður flutt tónverkið Te
Deum sem Michael samdi fyrir Kór
Akureyrarkirkju og tileinkaði List-
vinafélagi Akureyrarkirkju. Að
flutningnum koma hátt í 100 manns
og er verkið sagt bæði stórbrotið og
tignarlegt.
Michael er nýkominn heim úr tón-
leikaferð til London þar sem tón-
verk hans fyrir börn, Lítil saga úr
orgelhúsi, við sögu Guðnýjar Einars-
dóttur var flutt í hinni sögufrægu
dómkirkju St. Paul’s Cathedral við
góðar undirtektir. Þeir Eyþór Ingi
stjórna báðir flutningnum á tónleik-
unum.
Tvö tónverk eftir Michael
Jón Clarke frumflutt
Stjórnendur Eyþór Ingi frumflytur
á tónleikunum orgelkonsert sem
Michael Jón tileinkar honum.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Það fer eftir ýmsu. Stundum er ég
undir áhrifum frá Bob Dylan, stund-
um Lenny Bruce, stundum er ég
undir áhrifum koffíns og stundum
hugleiðslu,“ segir Tommy Tiernan,
þekktasti uppistandari Írlands,
spurður að því til hvers titillinn á
uppistandsýningu hans, Under the
Influence eða Undir áhrifum, vísi.
Tiernan flytur uppistandið í Silf-
urbergi í Hörpu á föstudaginn, 20.
október.
Hann segist alltaf fylgja ákveðnu
leiðarljósi í hverri sýningu sem sé að
vísu síbreytilegt og titillinn vísi í þá
staðreynd að ávallt leynist eitthvað
undir yfirborðinu. „Ég myndi segja
að ég kunni vel um 80% sagnanna
sem ég segi á sýningunni. Grínistinn
Billy Connolly fylgdi þeirri ágætu
reglu að vita hvaða sögur ætti að
segja en ekki í hvaða röð ætti að
segja þær. Þannig verður uppistand-
ið afslappaðra. Þú verður nánast að
gleyma sýningunni áður en þú ferð á
svið. Ef þú ferð á svið með of fastmót-
aða áætlun verður sýningin ekki að
eins fallegu stefnumóti áhorfenda og
flytjanda og hún getur orðið. Þú und-
irbýrð þig en verður svo að sleppa
takinu, fara á svið og sjá hvað gerist.“
Slefandi og rennsveittur
–Ég var að horfa á nokkrar upp-
tökur af þér í uppistandi og þú virðist
verða mjög æstur á sviði …
„Já, stundum,“ segir Tiernan og
hlær. Hann fari sér hægt til að byrja
með en auki síðan hraðann eftir því
sem líði á sýninguna. „Á endanum er
ég farinn að slefa og orðinn renn-
sveittur!“ segir hann kíminn. „Ég
myndi ekki vilja byrja sýninguna
þannig.“
–Þetta er heilmikið erfiði?
„Já, eða öllu heldur ástríða,“ svar-
ar Tiernan. Hann fylgi eðlishvötinni í
spauginu en hún eigi það til að leiða
hann á hættulegar brautir. „Það þarf
að ríkja ákveðið traust milli grínist-
ans og áhorfenda og skilningur á því
að við erum bara að grínast,“ segir
Tiernan um þennan línudans.
–Þú ert með ansi svart skopskyn,
er það ekki?
„Það virkar ekki þannig á sviði
heldur meira eins og ákveðin losun.
Ég legg ekki byrðar á mig eða áhorf-
endur og held að sýningin mín snúist
um að létta byrðarnar, gera grín að
því sem íþyngir okkur. Þetta snýst
líka um að vera kjánalegur og hafa
leyfi til þess.“
–Og sannleika, að segja það sem
aðrir hugsa en þora ekki að segja?
„Já, algjörlega og það er ástæða
fyrir því að áhorfendur sitja í myrkri.
Þeir sitja í myrkrinu og gefa grínist-
anum heimild til að segja sannleik-
ann. Og enginn tekur ábyrgðina á
því.“
Vafasamt að lesa
upp sorgleg ljóð
–Mega sýningargestir búast við
vafasömu gríni?
„Það held ég ekki. Þeir mega búast
við gáleysi en þetta er aldrei vafa-
samt. Það er vafasamt fyrir grínista
að fara á svið og lesa upp sorgleg ljóð.
Þá er hann ekki að sinna starfi sínu
sem er að veita ákveðið frelsi. Grín-
isti sem er ekki fyndinn er vafasam-
ur,“ svarar Tiernan og er í framhaldi
spurður að því hvaðan hann fái hug-
myndirnar, efniviðinn í uppistandið.
Hann svarar því til að dagdraumar
séu nauðsynlegir, að fara í langa
göngutúra eða bíltúra með slökkt á
útvarpinu. „Eða stara á glugga í átta
klukkustundir,“ bætir hann við og
hlær. „Þetta myndu fáir kalla heið-
arlega vinnu en þetta er það sem ég
geri. Ég fer í fjögurra klukkustunda
langan göngutúr og kem til baka með
fjórar hugmyndir. Það er ágætis af-
rakstur á einum degi.“
–Fyrir átta árum slóstu heimsmet í
uppistandi, varst með uppistand í 36
klukkustundir og 15 mínútur og
komst í Heimsmetabók Guinness.
„Já, og ég held að náungi frá Nor-
egi hafi slegið það og eigi metið enn.
Mér fannst uppistandið hjá mér farið
að einkennast of mikið af reiði, það
var ekkert sjarmerandi við það leng-
ur og ég velti fyrir mér hvernig ég
gæti komist upp úr þeirri gryfju. Þá
datt mér í hug að fara á svið í ógnar-
langan tíma því það er ómögulegt að
vera reiður í 36 klukkustundir. Þann-
ig að ég vonaðist til þess að geta talað
mig út úr vandanum og fundið mér
um leið nýjan stíl, vonaðist til að geta
nýtt mér það að vera örþreyttur til að
bæta tæknina.“
–Þú þurftir þá í raun að setja þetta
heimsmet, það var ákveðin meðferð
fyrir þig?
„Já, einmitt, og það virkaði,“ svar-
ar Tiernan.
Maður með munnræpu
og þöglar nunnur
Hið ógnarlanga uppistand fór fram
í Galway á Írlandi, þar sem Tiernan
býr. „Það var haldið á páskum við
hlið klausturs sem í búa nunnur sem
tala ekki. Uppistandið hófst klukkan
þrjú á föstudeginum langa og ég
hætti rétt fyrir sólarupprás á páska-
degi. Þetta voru eiginlega hneyksl-
anlegar andstæður, í einu húsi var
karlmaður að tala endalaust og í
næsta húsi konur sem tala aldrei!
Þannig að þarna varð dásamlegur
árekstur andstæðna, ef þannig mætti
komast að orði.“
–Ég ætlaði einmitt að spyrja þig
hvort nunnurnar hefðu verið að
hlusta á þig. Kannski mega þær ekki
hlæja heldur?
„Vá, þetta er áhugaverð hugmynd,
að troða upp fyrir framan nunnur
sem mega ekki hlæja,“ segir Tiernan
og hlær innilega. „Það væri stórkost-
leg áskorun!“
Miðasala á uppistandið fer fram á
tix.is.
Orkubolti Tommy Tiernan í miklum ham á sviði í Cork á Írlandi.
Losnaði við reiðina
með heimsmeti
Tommy Tiernan verður undir áhrifum í Silfurbergi
Borgarráð samþykkti í fyrradag til-
lögu um viðbótarframlag til Lista-
safns Reykjavíkur upp á 8,5 millj-
ónir króna vegna nýrra verklags-
reglna safnsins um greiðslur til
myndlistarmanna sem taka gildi um
áramót og tekur upphæðin mið af
þeim sýningum sem fyrirhugaðar
eru á næsta ári, að því er fram
kemur í tilkynningu frá safninu.
Þar segir að undanfarið hafi verið
unnið að nýjum verklagsreglum fyr-
ir Listasafn Reykjavíkur um
greiðslur til myndlistarmanna
vegna þátttöku í sýningum og vinnu
við eigin sýningar innan safnsins.
„Tillögur að verklagsreglum sem
nú hafa litið dagsins ljós eru unnar í
samstarfi við Bandalag íslenskra
listamanna, líkt og mælt er fyrir um
í aðgerðaáætlun menningar- og
ferðamálaráðs vegna menningar-
stefnu Reykjavíkurborgar. Tillög-
urnar hafa verið kynntar stjórn
Sambands íslenskra myndlistar-
manna, SÍM, sem hefur lýst yfir
ánægju sinni og styður verklags-
reglurnar heilshugar.
Markmiðið er að tryggja að lista-
menn fái greitt fyrir þátttöku í sýn-
ingum og það vinnuframlag sem
innt er af hendi í tengslum við eigin
sýningar. Verklagsreglunum er
jafnframt ætlað að vera gegnsæjar,
en í útreikningum er meðal annars
miðað við starfslaun listamanna og
tímagjaldskrá SÍM. Til að mæta
þeim kostnaði sem nýjar verklags-
reglur hafa í för með sér fyrir safn-
ið samþykkti borgarráð að hækka
framlög til safnsins fyrir árið 2018
um 8,5 m.kr.,“ segir í tilkynning-
unni.
Í niðurlagi segir svo að með sam-
þykktinni geti Listasafn Reykja-
víkur aukið við þær greiðslur sem
listamenn fái fyrir að sýna í safninu
og komið til móts við sjálfsagðar
kröfur þeirra um auknar greiðslur
og viðurkenningu á vinnuframlagi
þeirra.
Viðbótarframlag samþykkt
Viðbót Listasafn Reykjavíkur í
Hafnarhúsi. Safnið getur nú aukið
greiðslur til listamanna.